Í þá tíð… Forsetaraunir fyrri tíðar

Talsvert hefur hitnað undir Bandaríkja­forseta upp á síðkastið, en þrátt fyrir umræðu um að hann muni jafnvel ekki ljúka kjör­tímabilinu er óvíst hvernig fer. Sögubækur geyma tvö tilfelli um ákæru gegn forseta vegna brota í starfi, en hvorugt gekk í gegn.

Það er fátt gott að frétta af Donald Trump þessa dagana. Óvíst er þó hvort hann verði ákærður af þinginu.
Það er fátt gott að frétta af Donald Trump þessa dag­ana. Óvíst er þó hvort hann verði ákærður af þing­inu. Mynd: EPA

Það er ekki ofsögum sagt að forsetatíð Donalds Trump hafi verið talsvert brokkgeng það sem af er. Þrátt fyrir fögur (og allnokkur verulega ófögur) fyrirheit hefur honum orðið fátt úr verki nema að undir­byggja þær efasemdir sem flestir höfðu um hæfi hans í embætti.

Fyrir utan að hafa verið gerður afturreka með bann við komum fólks frá sérvöldum löndum þar sem múslimar eru í meirihluta og áætlanir sínar um að byggja tröll­vaxinn múr við suðurmæri landsins, hlaðast upp grun­semdir um hvort Trump og hans fólk hafi mögulega brotið lög í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra.

Nú þykir ljóst að nokkrir af hans helstu trúnaðar­mönnum voru í sambandi við rússneska aðila, og er jafnvel talið að einhverjir þeirra hafi lagt á ráðin með Rússum til að koma höggi á Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trumps.

Andstæðingar Trumps hafa verið ósparir á yfir­lýsingar um svik, lygar, vald­níðslu og landráð og á þingi hafa sumir demó­kratar kallað eftir því að hann verði ákærður fyrir brot í embætti og settur af (impeachment) eins og stjórnar­skráin leyfir.

Enn sem komið er þykir það harla ólíklegt að slíkt fari í gang á næstunni og forysta demókrata vill bíða og sjá hvað kemur út úr rann­sóknunum á afskiptum Rússa af kosningunum, en kannanir sína að fleiri Bandaríkja­menn eru fylgjandi því að ákæra verði lögð fram á hendur honum en eru mótfallnir. Þá eru uppi fréttir um að lögfræðingar í Hvíta húsinu séu farnir að kynna sér hvernig ferlið virkar og hvernig sé best að verjast. Hverju sem fram vindur, má vitna í Keith E. Whittington, stjórnmála­fræði­prófessor við Princeton:

Tvisvar reynt en hvorug tilraunin tókst – Nixon „slapp“

Í sögu bandarískra stjórn­mála hefur tvisvar verið reynt að koma forseta frá með því að ákæra fyrir brot í embætti.

Síðast var það Bill Clinton sem mátti standa fyrir máli sínu frammi fyrir þinginu árið 1998 fyrir meinsæri og að hindra framgang rétt­vísinnar í Lewinski-málinu sem tröllreið bandarísku þjóðlífi um árabil, (og Trump var svo vænn að endur­lífga í kosninga­baráttunni).

Clinton sagðist, fyrir rétti, aldrei hafa átt í kynferðis­legu sambandi við Lewinski, en sú full­yrðing reyndist síðar vera röng eins og allir vita. Repúblikanar á þingi þóttust þar hafa höndlað gullið tækifæri til að bola forsetanum í burtu, en þrátt fyrir ákafa og harða baráttu náðu þeir ekki að safna saman þeim 2/3 atkvæða sem til þarf til að setja forsetann af.

Fyrsti forsetinn sem mátti bera af sér sakir í ákæru til embættis­missis var Andrew Johnson, árið 1868. Johnson var vara­forseti Abrahams Lincoln en settist í forseta­stól eftir að Lincoln var ráðinn af dögum.

Bakgrunnur Johnsons var sérstakur því að hann var eini öldunga­deildar­þingmaður uppreisnar­ríkjanna í suðri, sem sögðu sig úr ríkja­sambandinu árið 1861, sem hélt tryggð við sambandið.

Eftir að Johnson tók við, gerði hann samning við Suður­ríkin um endur­reisn, sem þótti þeim afar hagstæður. Þau fengu með honum full ríkja­réttindi á meðan þau fengu að setja sér lög um réttindi svartra sem afmnámu þrælahald aðeins að nafni til.

Af þessum ástæðum, og öðrum, tróð Johnson illsakir við róttækari öfl, sem voru fylgjandi afnámi þræla­halds, bæði á þingi og í hans eigin ríkis­stjórn. Til að tempra völd hans setti þingið lög sem áttu að koma í veg fyrir að forseti gæti rekið embættis­menn sem öldunga­deildin hafði staðfest, án samþykkis deildarinnar.

---- Hæ @Pallih! ----

Johnson fór þvert á þessi nýju lög með því að reka Edward Standon hermála­ráðherra, sem var stækur andstæðingur þræla­halds. Stanton tók því ekki þegjandi og læsti sig inni á skrif­stofu sinni á meðan þing­heimur hóf mála­rekstur gegn Johnson. Forsetinn var ákærður í febrúar 1868, en, líkt og með Clinton síðar, fékkst ekki nægur meirihluti til að sakfella hann, þótt það hafi staðið ansi tæpt. Sumir lykilmenn kusu gegn sakfellingu, ekki til að verja Johnson, heldur til að standa vörð um skiptingu ríkis­valdsins og rétt forsetans til að vera ósammála þinginu.

Johnson lauk kjör­tímabilinu, en hlaut ekki tilnefningu demókrata til að verða forseta­efni þeirra síðar sama ár.

Alræmdasti forsetinn í sögu Banda­ríkjanna, og sá eini sem hefur horfið úr stóli fyrir lok kjör­tímabils lifandi lífs, er Richard Nixon. Eins og alkunna er, braut Nixon gróflega af sér í embætti þar sem hann reyndi að hylma yfir með glæp sem undirmenn hans frömdu.

Ákæru­ferlið var hafið og Nixon hugðist standa fyrir máli sínu, en eftir að upptökur af fundi hans með aðstoðar­manni, þar sem fram kom að hann hafði sannarlega lagt á ráðin um að stöðva rann­sóknina, var ljóst að hann hafði ekki stuðning á þingi. Áður en til þess kom að hann væri settur af, sagði hann af sér og Gerald Ford vara­forseti tók við.

Hvað gerist ef forseti er settur af?

Allt of snemmt er að spá fyrir um hvort Trump verði ákærður, enda er alls óvíst að nægur fjöldi repúblikana muni kjósa gegn sínum manni, jafnvel þó að yfir­standandi rannsókn muni koma illa út fyrir forsetann.

Ef svo færi, myndi Mike Pence vara­forseti taka við völdum, en næstir í goggunar­röðinni eru forseti fulltrúa­deildarinnar, Paul Ryan, þar á eftir vara­forseti öldunga­deildarinnar (Vara­forsetinn Pence er forseti öldunga­deildarinnar), en Orrin Hatch gegnir því embætti. Rex Tillerson utan­ríkis­ráðherra kemur honum næst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár