Segir að það sé „sérstök orka“ og „rosalegur kraftur“ hjá Play, sem undirbýr flugtak

Birgir Jónsson, nýráðinn forstjóri flug­félagsins Play, segir að honum líði eins og allt sem hann hafi gert hingað til hafi verið uppbygging að því takast á við forstjóra­starfið hjá Play. Félagið auglýsir í dag tvær yfirmanna­stöður lausar til umsóknar.

Flugfélagið Play kynnti sig til leiks í árslok 2019. Síðan kom heimsfaraldur, en nú er komið nýtt fjármagn að borðinu og stefnt að flugi á næstu mánuðum.
Flug­fé­lagið Play kynnti sig til leiks í árs­lok 2019. Síðan kom heims­far­aldur, en nú er komið nýtt fjár­magn að borð­inu og stefnt að flugi á næstu mán­uðum. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Jónsson, nýráðinn forstjóri flug­félagsins Play, segir aldrei hafa „verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni eins og tæki­færinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Þetta sagði forstjórinn í færslu á Facebook í morgun og lét fylgja að það væri einhver „sérstök orka“ sem umlykti fólkið sem starfaði hjá fyrir­tækinu og fólkinu sem hefði fjárfest í félaginu sömuleiðis.

„Ótrúlegur metnaður og hungur í árangur. Rosalegur kraftur,“ skrifar Birgir og deilir nýrri starfs­auglýsingu frá félaginu, en Play auglýsir í dag tvær yfirmanna­stöður lausar til umsóknar, annars vegar stöðu framkvæmda­stjóra fjármála­sviðs og hins vegar stöðu framkvæmda­stjóra sölu- og markaðs­sviðs.

„Þetta verður erfitt, flókið og hratt. En djöfull sem þetta verður gaman!!“ skrifar forstjóri Play og bætir við að það sé „gríðar­legur heiður“ fyrir sig að fá að leiða hópinn – „einhvernveginn finnst mér eins og að allt sem ég hef gert hingað til hafi verið uppbygging að þessu verkefni.“

Birgir, sem síðast starfaði sem forstjóri Íslands­pósts, hefur reynslu úr flug­heiminum en hann var á sínum tíma framkvæmda­stjóri lággjalda­flug­félagsins Iceland Express og síðar aðstoðar­forstjóri hjá WOW air.

Í starfs­auglýsingunni frá Play segir að í hlutafjár­útboði félagsins, sem lauk í síðustu viku, hafi fjár­festar komið með alls ríflega 6 milljarða króna í nýju hlutafé inn í félagið.

„Á næstu vikum og mánuðum er fyrir­hugað að bjóða almenningi að fjárfesta í Play samhliða skráningu á verðbréfa­markað First North, leggja lokahönd á öflun flug­rekstrar­leyfis, hefja sölu flugmiða og að sjálfsögðu – byrja að fljúga. Meira seinna,“ segir í auglýsingu félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár