Er þetta það sem í vændum er?

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Rocky í leik­stjórn Vignis Rafns Valþórs­sonar sem er sýnt er í Tjarnar­bíói.

Tjarnarbíó í samvinnu við Óskabörn ógæfunnar: Rocky

Höfundur: Tue Biering

Leik­stjórn: Vignir Rafn Valþórsson

Leikmynd og búningar: Enóla Ríkey

Ljós: Jóhann Bjarni Pálmason og Magnús Thorlacius

Hljóð: Ísidór Jökull Bjarnason

Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sveinn Óskar Ásbjörnsson

Hver kannast ekki við söguna af minni­poka­manninum sem uppgötvar allt í einu að jafnvel hann gæti staðið uppi sem sigurvegari ef rétta tækifærið býðst og hann sjálfur ákveður að leggja allt í sölurnar til komast á verðlauna­pallinn?

Hér er hugtakið minni­pokamaður notað sem íslenskun á enska hugtakinu „underdog”, sem er sá einstaklingur sem almennt er talinn að tapa muni keppni. Upphaf­lega varð hugtakið til í kringum hundaat á seinni hluta átjándu aldar og „underdog” var þá sá hundur sem menn bjuggust við að myndi tapa hundaatinu meðan „top dog” var álitinn líklegur sigurvegari. Það álit stjórnaði síðan því á hvorn hundanna var veðjað.

Þetta er velþekkt þema í sagna­heiminum, hinum goðsögu­lega sem og hinum verald­lega, enda hvað er lífið nema keppni – sem þýðir þá væntanlega að sumir muni vinna og aðrir muni óhjá­kvæmilega tapa. Það er sum sé allt morandi í minni­pokamönnum og spurningin hvort maður sjálfur lendi í þeirra hópi eða standi uppi sem sigurvegari. Minni­pokamenn eru líka býsna fjölskrúðugur hópur: Það má nefna Hans klaufa, flæking Chaplins, Davíð sem barðist gegn Golíat. Það mætti jafnvel nefna Fjalla-Eyvind úr okkar eigin sagna- og bókmennta­heimi og svo má nefna alla þá, sem láta heltakast af ameríska draumnum og telja að þeir muni meika það – eins og Rocky. Allt eru þetta minni­pokamenn sem eiga sér draum, lítt líklegir til að láta drauminn rætast, en svo gerist það einsog fyrir krafta­verk að draumurinn rætist þrátt fyrir allt og gæfan blasir við þeim. End of story. Allir glaðir.

Við, venjulega fólkið, horfum á minni­pokamanninn takast á við lífið, leysa þrjár þrautir eins og í ævintýrunum eða – eins og Rocky – berjast við Apollo Creed. Þegar minni­poka­maðurinn stendur frammi fyrir áskoruninni lítum við á hann sem einn af „hinum”. Þessir „hinir” eru ekki „við”. „Við” erum með okkar á hreinu, „við” erum forréttinda­fólk, „við” getum valið hvort við viljum Benz eða BMW, í hvaða skóla við sendum krakkana okkar, hvort við förum til Barcelona eða Berlínar í helgar­ferð. Ef minni­poka­maðurinn leysir lífs­gátuna, þrautirnar þrjár eða sigrar Apollo Creed verður hann hugsanlega einn af „okkur”.

Og hvað gerist þá? Hvað gerist ef minni­poka­manninum nægir ekki krafta­verkið, að hafa unnið sigur, ef það er ekki nóg að gæfan blasi við honum á sama hátt og hún blasir við „okkur”? Hvað gerist ef hann vill hefna sín á „okkur”, sem áður neituðu að trúa á hann, fannst fjarstæðu­kennt að hann gæti hafið sig upp af botninum og komist til metorða? Ef Hans klaufi hefndi sín á bræðrum sínum, ef flækingur Chaplins léti vitlausu lögguna og ríkis­bubbann finna til tevatnsins, ef Davíð hefði útrýmt Filistunum?

Þetta er sú hugsun sem danska leik­skáldið, leik­stjórinn og leikarinn Tue Biering lagði upp með þegar hann fór að rýna í söguna af Rocky, hnefaleika­kappanum sem Sylvester Stallone hefur leikið í átta kvik­myndum (sú níunda mun vera í vinnslu). Rocky er í upphafi dæmigert fórnar­lamb hins ameríska draums, hann fær þá flugu í höfuðið (Rocky I og II) að hann geti jafnvel sigrað hinn óviðjafnanlega Apollo Creed – og gerir það á endanum. Tue Biering leyfir þessari sögu að halda áfram og sýnir hvernig hún gæti þróast í okkar nútíma – og það er allt annað en fögur upplifun.

Hin ósköp sakleysis­lega saga um minni­pokamanninn sem meikar það líkt og snýst upp í öndverðu sína og verður að því sem er mun hættulegra og erfiðara viðureignar. Er kannski hægt að tala um “siðrof” – sem virðist vera umræða sem líkt og óvart hefur komist upp á yfir­borðið?

Rocky finnur sig vera minni­pokamanns og til þess að sigrast á þeirri tilfinningu verður hann að vinna með sjálfs­virðingu sína. En virðing – og þá ekki síður sjálfs­virðing – er varhuga­vert vopn. Ef maður eflir sjálfs­virðinguna og upphefur með því sjálfan sig, felur það þá ekki í sér að virðing manns gagnvart „hinum” þverr að sama skapi. Þar er að finna hina spennandi mótsögn sem Tue Biering tekur fyrir og tengir við nútímann. Skyndi­lega verður saga Rockys óþyrmilega áleitin, hún fjallar um þann veruleika sem blasir við okkur sjálfum.

Sú saga sem sögð er í Rocky Tue Bierings er afar sann­færandi, og er bæði vel byggð og undir­byggð. Hún er harmræn í þeim skilningi að þegar Rocky eygir loks möguleika á að takast á við – og jafnvel sigra!!! – ofurmennið Apollo Creed verður hvergi aftur snúið, örlögin taka við taumunum og stýra för til hinna harmrænu endaloka. Uppreisn minni­poka­mannsins Rocky beinist gegn okkur, góða fólkinu, okkur sem sitjum í salnum! Þessu venjulega fólki sem vill ekkert nema velja hvaða hvítvín skal drukkið með humarnum í kvöld – slagur Rockys er ekki okkar slagur, en við eigum engrar undankomu auðið. Örlög okkar, góða fólksins, eru innsigluð um leið og Rocky rís upp með sjálfs­virðinguna að vopni.

Rocky er óþægileg sýning. Hún kemur við kaunin á manni og ónotin verða raun­veruleg, líkamleg á köflum. Sveinn Ólafur Gunnarsson fer með hlutverk sögu­mannsins, sem byrjar ósköp sakleysis­lega á því að tala um aðdáun sína á Rocky – kvik­myndum Sylvester Stallones – og rifjar upp sögu­þráðinn með okkur, titil­stefið, leiðir okkur inn í hugarheim Rockys og vekur athygli okkar á því þegar Rocky horfir til stjarnanna og uppgötvar að hann getur hugsanlega rifið sig upp úr minni­poka­mennskunni, orðið maður með mönnum, öðlast sjálfs­virðinguna á ný. Þetta er sakleysislegt í upphafi, en smám saman læðast ónotin að. Leikur Sveins Ólafs er magnaður, honum vex hægt og rólega ásmegin, leiðir okkur inn í hugarheim minni­poka­mannsins sem misbýður vantrú okkar á honum og smám saman nær hann valdi á okkur og við engum engrar undankomu auðið. Rocky í meðförum Sveins Ólafs gerir „okkur”, góða fólkið, að „hinum” og aðstæður allar snúast við. „Við” töpum, „við” verðum minni­pokafólkið, lúserarnir.

Þetta er feikivel gert, bæði í texta Tue Bierings og ekki síður í leik Sveins Ólafs. Hann beitir smáum, ísmeygilegum meðulum til að koma því á framfæri sem segja þarf og við erum algerlega með á nótunum eftir því sem líður á frásögnina. Spennan eykst og þegar við uppgötvum að ekki verður aftur snúið er það of seint. Hér skal ekki uppljóstrað um endinn, en hann er óvæntur. Óvæntur og ógeð­felldur. Og – það sem kannski er óhugnanlegast af öllu: endirinn ber með sér ákveðna fegurð, estetísk hinnar fullkomnu og óafturkræfu niður­lægingar; það er engu líkara en eigi sér stað nútíma kross­festing. Endirinn er ritúalskur – og má hér minna á leikmynd Enólu Ríkeyjar og lýsingu Jóhanns Bjarna Pálma­sonar og Magnúsar Thorlacius – og það er engu líkara en Sveinn Ólafur og við áhorf­endur rennum saman og maður spyr sig: er þetta það sem í vændum er?

En svo kemur eftirmáli og hann er meira en óvæntur: ung kona birtist á sviðinu og les texta af snjall­síma, þar sem hún virðist réttlæta gjörðir Rockys – baráttu hans gegn „góða fólkinu” og viðhorf hans til „okkar hinna” – sem eru líka innflytjendur, flótta­menn, allt það sem er ógnin við minni­pokamennina og tekur frá þeim það sem er þeirra: söguna, menninguna, vinnuna, sjálfs­virðinguna, mögu­leikana á frama ... já, allt. Þessi unga kona heitir Margrét Friðriks­dóttir og ku vera bæði þekkt og umdeild fyrir skoðanir sínar, sem eru andstæðar fjöl­menningu og andstæðar skoðunum „góða fólksins”.

Það er vissulega ákveðið stílbragð að hleypa Margréti Friðriks­dóttur að í lok sýningar og það stílbragð má kalla „verfremdung” og kenna við Brecht; það mun auk þess sótt í handrit og upphaf­lega sýningu í Danmörku. Fyrstu viðbrögð undir­ritaðs voru að þessi eftirmáli væri óþarfur, að hann drægi úr áhrifa­ríkum endi hinnar eiginlegu sýningar. Við nánari umhugsun er raunin önnur. Eftirmáli Margrétar er í raun nauðsyn­legur, hann hrekur okkur úr leik­húsinu og aftur í raun­veruleikann og minnir okkur á að hvar sem Rocky er – goðsagan, mýtan, draumurinn um sigur minni­poka­mannsins – þar er líka að finna alls konar Margrétar Friðriks­dætur sem hafa misskilið hvað lífið snýst um í raun. Engin gildi gera sig sjálf – það verður að berjast fyrir mann­kærleika, mildi og mannúð!

Rocky er svo sannarlega áleitin og sönn sýning sem tekur á þeim raun­veruleika sem við búum við. Enginn ætti að láta Rocky framhjá sér fara!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár