Boða um 5 milljarða mótvægisaðgerðir gegn áhrifum verðbólgu á viðkvæma hópa

Bætur almanna­trygginga hækka um þrjú prósent 1. júní, húsnæðis­bætur um 10 prósent og svo á að greiða 20 þúsund króna barnabóta­auka til þeirra sem fá tekju­tengdar barna­bætur. Kostnaðar­auki ríkisins vegna aðgerð­anna á þessu ári nemur um 5 milljörðum króna.

Mótvægisaðgerðir gegn áhrifum verðbólgu á viðkvæma hópa voru samþykktar á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Mót­væg­is­að­gerðir gegn áhrifum verð­bólgu á við­kvæma hópa voru sam­þykktar á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að ráðast í mótvægis­aðgerðir til að „draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins“, eins og það er orðað í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins.

Áætlaður heildar­kostnaður aðgerð­anna sem samþykktar voru í dag er á bilinu 4,7-5,2 milljarðar það sem eftir lifir árs og 7,1-7,6 milljarðar á ársgrundvelli.

Þriggja prósenta hækkun almannatrygginga

Aðgerðirnar eru þær að bætur almanna­trygginga (m.a. örorku­bætur og elli­lífeyris­bætur) hækka um 3 prósent frá 1. júní, húsnæðis­bætur hækka um 10 prósent frá sama degi og sérstakur 20 þúsund króna barnabóta­auki verður greiddur út í lok júní, með hverju barni, til þeirra sem fá tekju­tengdar barna­bætur.

Áætlaður kostnaður við hækkun bóta almanna­trygginga nemur 3-3,5 milljörðum það sem eftir lifir árs og 5-5,5 milljörðum á ársgrundvelli. Kostnaður við hækkun húsnæðis­bóta nemur svo um 600 milljónum það sem eftir lifir árs og um 1 milljarði króna á ársgrundvelli og útgreiðsla barnabóta­aukans mun kosta um 1,1 milljarð króna, samkvæmt áætlunum stjórn­valda. Í heildina er kostnaður því rúmir 4,7-5,2 milljarðar það sem eftir lifir árs og varanleg hækkun sem nemur um 7,1-7,6 milljörðum á ársgrundvelli.

Komið til móts við þá sem verðbólgan hafi hvað mest áhrif á

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir í færslu á Facebook að ríkis­stjórnin sé með þessu að bregðast við vaxandi verðbólgu með því að „koma til móts við þessa hópa sem verð­bólgan hefur hvað mest áhrif á og koma þannig í veg fyrir vaxandi fjárhags­erfiðleika og ójöfnuð“.

Í tilkynningunni á vef stjórnar­ráðsins segir að sérstak­lega hafi verið horft á þessa hópa eftir ítarlega greiningu fjármála- og efnahags­ráðuneytisins.

„Ríkis­stjórnin telur brýnt að koma til móts við þann hóp sem hækkandi verðbólga mun bitna verst á og það strax. Ríkis­stjórnin mun engu að síður leggja áherslu á aðhaldssöm ríkis­fjármál til að styðja við peninga­stefnu Seðla­bankans,“ segir einnig í tilkynningunni á vef stjórnar­ráðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár