Vænir embættismenn um misnotkun flugpunkta

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, kennir frekri emb­ætt­is­manna­stétt um frestun útboðs á flug­far­miða­kaupum.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, sakar emb­ætt­is­menn um að vilja mis­nota aðstöðu sína í starfi sínu fyrir ríkið til að afla sér ódýr­ari flug­ferða fyrir fjöl­skyldur sínar.

Vigdís skrifar á Facebook-síðu sína í dag: „Allt í stíl - enda vilja emb­ætt­is­menn helst ferð­ast með Icelandair til að fá vild­ar­punkta fyrir fjöl­skyld­una !!! Talandi um jöfnuð í sam­fé­lag­inu :-)“

Tilefni ummæl­anna er til­kynn­ing Félags atvinnu­rek­enda um að útboði á flug­far­miða­kaupum rík­is­ins, sem átti að fara fram á fyrri hluta árs­ins, hefði verið frestað fram til hausts­ins. Náðist ekki að afla upp­lýs­inga vegna útboðs­ins og vinna úr þeim fyrir sum­ar­leyfi og þurfti því að slá útboð­inu á frest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár