Bók um mig og móður mína

Um leið og þetta er minning um mömmu þá er þetta óður til formæðra okkar og forfeðra, segir Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir um bókina Ilmreyr.

„Ilmreyr, móður­minning er titill þessarar bókar. Þetta er bók sem er kveðja frá mér til móður minnar,“ segir höfundurinn Ólína Kjerúlf. „Bókin fór að fæðast í huga mér þegar ég sat við banabeð hennar fyrir þremur árum. En um leið og þetta er bók um mömmu, minning um mömmu, þá er þetta óður til formæðra okkar og forfeðra og tímaspönnin í bókinni er tvö hundruð og fjörutíu ár. Í gegnum sögu þessa fólks og frásagnir og minningar mömmu frá bernsku spinn ég þráðinn inn í mitt eigið líf og til dagsins í dag. Þannig að bókin er að hluta til sjálfsævisöguleg en hún er líka sagnfræði og þjóðfræði og það er í henni talsverður skáld­skapur. Hér er sagt frá samskiptum fólks, frá ástum og örlögum, frá hversdags­legu lífi og sorgum, öllu því sem gerir fólk að fólki. Og gripið þannig um ættar­strenginn því að ævi okkar er alltaf framhald af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu

Í bókinni Allir fuglar fljúga í ljósið riðlast tilvera ráfarans Bjartar og lífssaga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rithöfundur og skapari sögunnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hugleiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draumurinn kominn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár