Kvennafrídagurinn endurvakinn í ár

Kvenna­hreyfingin og heildar­samtök launa­fólks ætla að boða til útifundar 24. október næst­komandi klukkan 15, undir yfir­skriftinni kjara­jafnrétti strax. Allar konur eru hvattar til þess að leggja niður störf snemma þann dag og fylkja liði niður á Austur­völl. Vonast er til þess að tugþúsundir kvenna taki þátt.

Forsíða Morgunblaðsins 25. október 1975
Forsíða Morg­un­blaðs­ins 25. októ­ber 1975 Um 25 þús­und konur tóku sér kvenna­frí árið 24. októ­ber 1975 og mættu á kröfufundi víðs vegar um land. Vonast er til þess að enn fleiri mæti í ár. Mynd: timarit.is

Þann 24. október næst­komandi er 41 ár liðið frá því að 25 þúsund íslenskar konur lögðu niður störf og fylktu liði á Lækjar­torg. Markmiðið var að sýna fram á mikilvægi vinnu­framlags kvenna og það tókst vel. Atvinnu­lífið lamaðist og máttur kvenna­samstöðunnar varð öllum ljós um stund. Í ár á að endurtaka leikinn, eins og hefur verið gert nokkrum sinnum síðan, eða árin 1985, 2005 og 2010.

Fundinn ber upp í sömu viku og Alþingis­kosningar fara fram. „Það er auðvitað ekki oft sem 24. október lendir svo skömmu fyrir Alþingis­kosningar og auðvitað vonumst við til þess að útifundurinn verði til þess að jafnréttismál verði mál málanna hjá nýrri ríkis­stjórn,“ segir Maríanna Trausta­dóttir, sérfræðingur í jafnréttis- og umhverfis­málum hjá ASÍ, og ein margra kvenna sem koma að skipulagningu viðburðarins. Að honum standa heildar­samtök launa­fólks, ASÍ, BSRB, BHM, KÍ og SSF, og kvenna­hreyfingin öll, með Kven­réttinda­félag Íslands, Kven­félaga­samband Íslands, Stígamót, Kvenna­athvarfið, Knúz, Tabú og Feminístafélag HÍ innanborðs.

„Kosningarnar eru þó ekki ástæðan fyrir því að við ákváðum að blása til kröfu­fundar nú, heldur voru það niður­stöður launa­kannana undan­farinna vikna og mánaða, meðal annars frá BHM, VR og SFR. Allar eru þær konum mjög í óhag og sýna svo ekki verður um villst að launa­munur er sannarlega til staðar og að hann fari ekki minnkandi milli ára. Við viljum útrýma þessum mun. Hann er mein sem verður að vinna á,“ segir Maríanna. 

Maríanna Trausta­dóttir

„Þetta er óásættanlegt.“

Öllum sé ljóst að barátt­unnar sé enn þörf og tími sé kominn til að minna á mátt kvenna­samstöðunnar aftur. Hún vonast eftir því að tugþúsundir kvenna flykkist á Austur­völl. „Við þurfum að minna á að við konur erum ekkert að þagna og sýna þann mátt sem býr í kvenna­samstöðunni. Við viljum kjara­jafnrétti strax og við hljótum að geta náð til tugþúsunda kvenna. Þetta er málefni okkar allra, hvort sem er ungra, miðaldra eða eldri kvenna. Að sjálfsögðu hvetjum við líka alla karla til að mæta.“  

Kynbundinn launa­munur hafi áhrif á kjör kvenna almennt, frá upphafi starfs­ævinnar og fram á eldri ár. Hann sé þó aðeins einn hluti af því mikla kjara­misrétti sem viðgangist á Íslandi. Það eigi sér margar birtingar­myndir. „Við sjáum ungar, menntaðar konur hefja störf á sömu launum og karlarnir en fljótlega byrjar bilið að aukast. Það er meðal annars vegna þess að þær fara frá til að eignast börnin. Samfélag okkar er enn þannig að ólaunuð umönnunar­vinna lendir meira á konum en körlum. Konur stunda frekar hluta­störf en karlar, oft vegna þess að þær eru undir meira álagi inn á heimilinu. Þar með hafa þær ekki aðgang að frekari framgangi í störfum sínum. Svona gengur þetta alla starfs­ævina og endar í lífeyris­kjörunum, sem eru alla jafna verri hjá konum en körlum. Þetta er óásættanlegt.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár