Vill breyta fjárlagafrumvarpi og gera tíðavörur gjaldfrjálsar

Það að gera tíða­vörur aðgengi­legar ókeypis fyrir ákveðna hópa myndi kosta 280 millj­ónir króna sem er sama upp­hæð og hækka á sókn­ar­gjöld um. Andrés Ingi Jónsson hefur lagt fram breyt­inga­til­lögu við fjár­lög þessa efnis.

Vill fara skosku leiðina
Vill fara skosku leið­ina Andrés Ingi vill að tíða­vörur verði gerðir aðgengi­legar án end­ur­gjalds til ákveð­inna hópa. Mynd: Shutterstock

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, hefur lagt fram breyt­inga­til­lögu við fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2021 þess efnis að tíða­vörur verið ókeypis fyrir ákveðna hópa. Í til­lög­unni er gert ráð fyrir að fram­lag til þess nemi 280 millj­ónum króna á næsta ári.

Í til­lögu Andrésar Inga er gert ráð fyrir að öllum nem­endum í grunn- og fram­halds­skólum verði með henni tryggt aðgengi að tíða­vörum án end­ur­gjalds. Þá verði fólki með lágar tekjur einnig gert kleift að nálg­ast tíða­vörur án end­ur­gjalds og nefnir Andrés Ingi að það gæti gerst á heilsu­gæslu­stöðvum eða í gegnum félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga. Gert er ráð fyrir að heil­brigð­is­ráð­ehrra útfæri aðgerð­irnar í sam­ráði við aðra.

„Í sam­hengi fjár­laga sem telja milljón millj­ónir króna, þá er það lítið gjald til að tryggja þeim sem þurfa aðgang að þess­ari nauð­synja­vöru“

Stundin greindi frá því í októ­ber að tvær stúlkur í Lang­holts­skóla, Anna María Allawawi Sonde, 14 ára, og Saga María Sæþórs­dóttir, 15 ára, hefðu sent inn umsögn við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur fyrir næsta ár þar sem þær skor­uðu á Alþingi að afnema skatt­lagn­ingu á tíða­vörur, svo­kall­aðan bleikan skatt. Getn­að­ar­varnir og tíða­vörur bera nú 11 pró­senta virð­is­auka­skatt en báru 24 pró­senta skatt fram á síð­asta ár. Ekki hefur verið orðið við áskorun með fram­komnum breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hluta fjár­laga­nefndar og því leggur Andrés Ingi fram sína breyt­ing­ar­til­lögu.

Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum sam­þykkti skoska þingið ein­róma frum­varp þess efnis að tíða­vörur yrðu gerðar ókeypis í land­inu. Verði breyt­ing­ar­til­laga Andrésar Inga sam­þykkt gæti hún náð til um 22.500 ein­stak­linga á land­inu öllu. Miðað við 1.000 krónur í tíða­vörur á mán­uði myndi það því kosta rík­is­sjóð 270 millj­ónir á ári, sem Andrés hefur kosið að hækka upp í 280 millj­ónir. Það er raunar sama upp­hæð og lagt er til að hækka sókn­ar­gjöld um í fjár­laga­frum­varp­inu. „Í sam­hengi fjár­laga sem telja milljón millj­ónir króna, þá er það lítið gjald til að tryggja þeim sem þurfa aðgang að þess­ari nauð­synja­vöru,“ skrifar Andrés Ingi um til­lögu sína í grein á Stund­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár