Gistináttaskattur ekki innheimtur fyrr en árið 2024

Vegna áfram­haldandi samdráttar og óvissu í ferða­þjónustu leggur ríkis­stjórnin til að gistinátta­gjald verði ekki innheimt út árið 2023. Til stendur að útfæra gistinátta­gjaldið upp á nýtt á kjör­tímabilinu og láta sveitar­félög njóta góðs af því.

Lagt er til að greiðsla og innheimta gistináttaskatts verði felld niður til og með 31. desember 2023, í bandormsfrumvarpi sem fylgdi fjárlagafrumvarpinu í dag.
Lagt er til að greiðsla og inn­heimta gistin­átta­skatts verði felld niður til og með 31. des­em­ber 2023, í band­orms­frum­varpi sem fylgdi fjár­laga­frum­varp­inu í dag. Mynd: Pexels

Gistinátta­skattur, sérstakt gjald sem leggst ofan á hverja selda einingu nætur­gistingar, verður ekki innheimtur fyrr en árið 2024, samkvæmt því sem fram kemur í svokölluðum bandormi – frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjár­laga­frumvarps næsta árs.

Skatturinn var fyrst tekinn upp árið 2012 og hefur þann tilgang að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjöl­sóttra ferðamanna­staða, frið­lýstra svæða og þjóðgarða. Skatturinn er nú 300 krónur fyrir hverja selda einingu nætur­gistingar á Íslandi. Áður en kórónu­veiru­faraldurinn skall á í upphafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatturinn skilaði yfir 1,2 milljörðum króna í ríkissjóð.

En svo kom veiran og lét á sér kræla. Skatturinn var felldur niður tíma­bundið í einum af fyrstu aðgerða­pökkunum til þess að mæta efnahags­legum áhrifum veirunnar. Skatturinn átti hins vegar að óbreyttu að taka gildi á ný þann 1. janúar 2022, en það mun ekki gerast, samkvæmt fyrir­ætlunum ríkis­stjórnarinnar.

„Þar sem enn er mikill samdráttur í ferða­þjónustu og ófyrirséð er hve lengi samdrátturinn muni standa yfir er lagt til að bráðabirgða­ákvæðið verði framlengt tíma­bundið og greiðsla og innheimta gistinátta­skatts verði felld niður til og með 31. desember 2023. Fram­lenging á tíma­bundinni niður­fellingu gistinátta­skatts mun skipta fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu í landinu verulegu máli,“ segir um þetta efni í nýju laga­frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra.

Gistináttaskattur til sveitarfélaga í stjórnarsáttmála

Fjallað er stuttlega um gistinátta­gjaldið í nýjum stjórnar­sáttmála Framsóknar­flokks, Sjálfstæðis­flokks og Vinstri grænna, sem kynntur var á sunnudag. Þar segir að stefnt sé að því að endur­skoða fyrir­komulag gjaldtöku í ferða­þjónustu heilt yfir, samhliða endur­reisn ferða­þjónustunnar eftir faraldurinn.

Stefnt er að því að „breikka skatt­stofninn“ í ferða­þjónustu og „tryggja jafnræði aðila á markaði“ auk þess að breyta fyrir­komulagi gistinátta­gjalds.

Þetta á að gera í samvinnu við greinina og sveitar­félög landsins, „með það að markmiði að sveitar­félögin njóti góðs af gjald­tökunni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár