Það eru fleiri pöndur í Skotlandi en íhaldsmenn

Skotar kjósa um sjálf­stæði í dag. Nýjustu kannanir sýna að allar líkur séu á því að sjálf­stæðið verði fellt með naumum mun. Innan raða sjálfstæðis­sinna ríkir þó enn von. Von um að þeir hafi náð að sannfæra nægilega marga þeirra sem eru óakveðnir, að stærstum hluta konur og elli­lífeyris­þegar, um að Skotlandi og þeim sjálfum sem einstaklingum muni farnast betur í sjálf­stæðu ríki.

Viðsnúningurinn í kosningar­baráttunni hefur verið ævintýra­legur undan­farnar vikur. Allt frá því að Skoski þjóðar­flokkurinn náði hreinum meirihluta í skoska þinginu árið 2011 hefur legið fyrir að kosið yrði um sjálf­stæði. Nánast allan þann tíma hefur það virst fjarlægur draumur samkvæmt skoðannakönnunum. Þann 7. ágúst síðastliðinn, fyrir sex vikum, birtist skoðannakönnun sem sýndi að 61 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætluðu að segja nei. Einungis 39 prósent ætluðu að segja já. Mánuði síðar var gerð ný könnun sem sýndi að 51 prósent var fylgjandi sjálf­stæði en 49 prósent á móti, tæpum tveimur vikum fyrir kosningar. Og Bretland fór á hliðina.

Hið auðuga Skotland


Það eru nokkuð margar ástæður fyrir því að, að minnsta kosti, tæpur helm­ingur Skota vill sjálf­stæði. Eins sú helsta er að Skotland er auð­ugt land. Þar eru miklar nátt­úru­auð­lindir. Um 90 pró­sent allrar olíu sem fram­leidd er í Bret­landi kemur m.a. frá Skotlandi. Og 75 pró­sent allrar olíu sem fram­leidd er í Evr­ópu­sam­band­inu kemur frá Bretum. Þrátt fyrir að Skotar séu ein­ungis um 8,4 pró­sent af heild­ar­fjölda Breta landa þeir einnig um 60 pró­sent alls fisk­veiði­afla sem landað er innan vébanda rík­is­ins. Glasgow er þess utan fjórða stærsta fram­leiðslu­borg Bret­lands. Viskí-útflutn­ingur Skota er líka stór­tækur. Um fjórð­ungur af útflutn­ingi Bret­lands á matar- og drykkj­ar­vörum er vegna viskís. Um 35 þús­und manns starfa í skoska viskí­geir­anum. Þá er mjög stór tækni- og nýsköp­un­ar­geiri í Skotlandi. Um 45 þús­und manns starfa í honum innan landamæra lands­ins.

Lands­framleiðsla á mann í sjálf­stæðu Skotlandi myndi verða 2.300 pundum, 444 þúsund krónum, hærri árlega en hún er í Bretlandi nú. Það myndi setja Skotland í 14. sæti yfir ríkustu þjóðir heims.

Þessum auð vilja margir Skotar að sé eytt betur. Og innan landamæra Skotlands.

Stýrt af flokki sem þeir kjósa ekki


Skotar leggja nefni­lega meiri áherslu á jöfnuð og sterkt vel­ferð­ar­kerfi en bresk stjórn­völd hafa gert. Sú aukna einka­væð­ing í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu sem átt hefur sér stað und­an­farin miss­eri hugn­ast mörgum Skotum illa.

Annað sem fer mjög öfugt ofan í þá er sú staðreynd að Íhalds­flokkurinn sé með stjórnar­taumanna í Stóra-Bretlandi. Því er ítrekað haldið fram í hálf­kæringi að það séu fleiri pöndur í Skotlandi en íhalds­menn. Það er samt stoð í brand­aranum. Undan­farna áratugi hefur flokkurinn nánast horfið í Skotlandi. Í dag á hann einungis 15 af 129 þing­mönnum á skoska þinginu. Af þeim 59 þing­mönnum sem Skotar kjósa til setu á breska þinginu í Westminster er einungis einn íhalds­maður. Þess vegna finnst mörgum Skotum bein­leiðis fáránlegt að þeim sé stjórnað af flokki sem hefur nánast ekkert fylgi á meðal þeirra.

Verkamanna­flokkurinn þarf hins vegar að hafa meiri áhyggjur af því ef sjálf­stæði verður samþykkt en íhalds­menn. Þeir eru með 40 þingmenn á breska þinginu sem kosnir eru af Skotum. Þeir eiga auk þess 37 þingmenn á skoska þinginu.

Gjaldmiðill, kjarnorka og alþjóðasamstarf


Deilu­málin í kosn­inga­bar­átt­unni hafa auð­vitað verið mýmörg. Eitt það helsta er að Skotar vilja halda breska pund­inu sem gjald­miðli, en breskir stjórn­mála­leið­togar hafa hafnað því algjör­lega. Þeir hafa einnig bent á að sjálf­stæð­is­sinnar hafi ekk­ert plan B ef pundið verður ekki mögu­leiki sem gjald­mið­ill.

Annað snýst um öryggis- og varnarmál. Þorri kjarnorku­vopna Bretlands er geymdur í Skotlandi, í Faslane-herstöðinni. Sjálfstæðis­sinnar hafa bent á að það sé siðferðis­lega rangt að hýsa vopnin og auk þess stjarnfræði­lega dýrt. Fyrir þann hluta af kostnaðinum sem Skotland greiðir vegna þeirra á ári væri hægt að mennta 3.880 hjúkrunar­fræðinga eða 4.527 kennara. Þetta er gríðar­lega mikið vandamál fyrir Breta, vegna þess að flutningur kjarnorku­vopnanna er nánast ómögulegur. Segi Skotar sig úr varnar­samstarfi við Bretland munu Skotar því vera í mjög góðri samnings­stöðu gagnvart gamla heims­veldinu. Það vill enda enginn annar fá nokkra kjarnorku­odda og kjarnorku­kafbáta í garðinn hjá sér.

Skotar hyggjast auk þess ganga bæði í NATO og ESB ef þeir verða sjálf­stæðir. Þeir eru hluti af báðum stofnunum nú þegar og því finnst þeim eðlilegt að sjálfstætt Skotland ætti að geta fengið aðild tiltölu­lega auðveldlega. Það á eftir að koma í ljós þegar á reynir hvort það verði raunin.

Allir á fullu í áróðrinum


Árangur sjálf­stæð­is­sinna á und­an­förnum vikum hefur sett Bretland á hlið­ina. Allskyns aðilar sem tóku ekki þátt í bar­átt­unni áður hafa nú opin­berað harða afstöðu. Risastór fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Skotlandi, eins og Royal Bank of Scotland og Lloyfs bank­inn, hafa sagt að þau muni flytja höf­uð­stöðvar sínar til Englands ef sjálf­stæði verði ofan á.

Helstu leiðtogar breskra stjórn­mála, sem dags daglega eru svarnir pólitískir óvinir, hafa tekið höndum saman og túrað Skotland undan­farna daga, í þeirri viðleitni að sannfæra, og jafnvel hræða, Skota til þess að kjósa gegn sjálf­stæði. David Cameron, forsætis­ráðherra og formaður Íhalds­flokksins, hefur gengið lengst í hræðslu­áróðrinum. Hann hefur til dæmis varað Skota við því að viðskilnaðurinn yrði afar sársauka­fullur fjárhags­lega.

Stóra útspilið kom síðan í byrjun þessarar viku þegar opið bréf var birt í fjöl­miðlum frá Cameron, Ed Miliband,formanni Verkamanna­flokksins, og Nick Clegg, formanni Frjáls­lyndra demókrata,þar sem þeir strengja þess heit að skoska þingið fái meiri völd á næstu árum kjósi Skotar gegn sjálf­stæði. Á meðal nýrra valda verði aukin tækifæri til að afla tekna og yfirráð yfir heilbrigðis­málum.

Útspilið hefur gert allt vitlaust bæði hjá sjálfstæðis­sinnum, sem líta á það sem örvæntinga­fulla tilraun til að snúa þeirri bylgju kjósenda sem flykkst hefur yfir til þeirra á undan­förnum vikum. Í breska þinginu hefur þessari heit­strengingu, sem er kölluð „The Vow“, heldur ekki verið tekið fangandi. Mýmargir þingmenn úr ýmsum flokkum hafa bent á að leiðtogar flokkanna hafi ekkert vald til að lofa slíkum völdum. Einungis breska þingið geti veitt þau. Þess utan séu kosningar í Bretlandi á næsta ári og ólíklegt sé að fleiri en í besta falli einn leið­toganna þriggja muni lifa þær af. Þess vegna séu þeir að lofa einhverju sem þeir hafi hvorki heimild né getu til að standa við.

Ferguson, Connery og Björk


Fræga fólkið hefur ekki látið sitt eftir liggja í bar­átt­unni. Und­an­farið hafa sam­bands­sinnar dregið fólk eins og David Beckham og nú síð­ast Sir Alex Ferguson á flot til að biðla til Skota um að segja nei. Hinum megin er Sean Connery og indie-popp­stjörnum á borð við Mogwai og Franz Ferdin­and flaggað eins og lukku­dýrum sjálf­stæð­is­bar­átt­unnar.

Ýmsir alþjóð­legir listamenn hafa ekki látið sitt eftir liggja. Björk Guðmunds­dóttir er einn þeirra. Hún lýsti yfir stuðningi við sjálf­stæði Skota á samfélags­miðlum í gær og deildi með lagi sínu „Declare Independence“.

Sambandið við Bretland verður aldrei samt


Hvernig sem fer þegar talið verður upp úr kjör­köss­unum í kvöld þá er ljóst að bar­áttan fyrir sjálf­stæði mun breyta stjórn­ar­háttum í Skotlandi um ókomna fram­tíð. Það sem fáum datt í hug að væri raun­hæfur mögu­leiki, að Skotar myndu kjosa með sjálf­stæði, er nú svo nálægt því að vera stað­reynd að sam­band þjóð­ar­innar við Bretland verður aldrei samt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár