Ríkisstjórnarviðræðum fimm flokka undir stjórn Pírata slitið: Strandaði á sjávarútvegsmálum

Viðræðum um fimm flokka ríkis­stjórn var slitið rétt í þessu. Viðræðurnar strönduðu á sjávar­útvegs­málum og hvernig ætti að fjármagna útgjalda­aukningu. Birgitta Jóns­dóttir fer á fund forseta í dag og skilar umboðinu.

Ríkis­stjórnar­viðræðum undir stjórn Pírata hefur verið slitið. Þetta stað­festir Birgitta Jóns­dóttir, sem fer á fund forseta klukkan 17 í dag þar sem hún mun skila umboðinu. Birgitta segir að viðræðurnar hafi strandað á því að flokkarnir voru ekki tilbúnir til þess að gera mála­miðlanir, en erfiðustu málin hafi verið sjávar­útvegs­málin og hvernig ætti að fara með ríkis­fjármál. 

„Mér finnst rétt, úr því að við komumst ekki lengra með þetta, að umboðið fari eitthvað annað eða að forseti gefi aftur út að öllum sé frjálst að fara í viðræður,“ segir Birgitta í samtali við Stundina.

Fram til þessa hefur hún sagt viðræðurnar ganga vel og verið bjartsýn á að flokkarnir gætu náð saman. Fyrir helgi sagði Birgitta nítíu prósent líkur á að þessum flokkum myndi takast að mynda ríkis­stjórn. Hvað breyttist í milli­tíðinni? „Okkur tókst ekki að fá fólk til að fara í mála­miðlanir. Allir voru sammála um hvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár