Rússnesk glæpagengi talin falsa merkingar á innfluttum laxi - Merkja hann sem íslenskan

Yfirmenn í rússnesku toll­gæslunni funduðu með kollegum sínum hjá Evrópu­sambandinu í Brussel í gær. Fundurinn vakti töluverða athygli, enda samskipti Rússlands og Evrópu­sambandsins ekki upp á sitt besta sökum viðskipta­þvinganna sem sambandið hefur beitt Rússa vegna ástandsins í Úkraínu frá því snemma árs 2014. Í frétt Reuters um fundinn kemur hins vegar fram að ástæða hans hafi verið sú að rússneska toll­gæslan hafi óskað eftir samvinnu Evrópu­sambandsins til að takast á við falsaðar merkingar á matvöru sem flutt er inn til Rússlands og er sögð vera frá löndum utan Evrópu­sambandsins. Þar á meðal er innfluttur lax sem hafi verið merktur sem íslensk vara.

Í frétt Reuters um málið er haft eftir Yevgeny Nepoklonov, yfirmanni hjá rússnesku matvæla­stofnuninni Rossel Rosselkhoznadzor, að rússnesk tolla­yfirvöld hafi haldlagt stórar vöru­sendingar af svína­kjöti sem fylgigögn sögðu að væru frá Svart­fjallalandi, sem er ekki í Evrópu­sambandinu. Þá hafa þau einnig haldlagt umtals­vert magn af laxi sem fylgigögn sögðu að væri frá Íslandi. Nepolklonov sagði að vöru­sendingarnar væri skipulagðar af glæpa­gengjum og að Rússar vildu vinna með Evrópu­sambandinu til að koma í veg fyrir þennan ólöglega innfluttning.

Innfluttningsbann á Ísland

Dmitry Medveded, forsætis­ráðherra Rússa, tilkynnti í ágúst að Ísland væri komið á lista yfir þau lönd sem nú er óheimilt að flytja inn matvæli frá. Auk Íslands bættust Albanía, Svart­fjallaland, Liechtenstein og Úkraína á listann. Í tilkynningu frá utan­ríkis­ráðuneytinu í kjölfar ákvörðunarinnar sagði: "Ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyrir­tækjum verður ekki lengur unnt að markaðs­setja sjávar­afurðir í Rússlandi auk þess sem bannið tekur til landbúnaðar­vara að frátöldu lamba­kjöti, ærkjöti, hrossa­kjöti og niður­soðnu fiskmeti í dósum". Samkvæmt upplýsingum frá utan­ríkis­ráðuneytinu má ekki flytja inn íslenskan lax til Rússlands samkvæmt innflutnings­banninu. Því er óljóst hvaða tilgangi það eigi að þjóna að segja laxinn með röngu merkingunum vera frá Íslandi.

Innflutnings­bann Rússa er viðbragð þeirra við viðskipta­þvingunum Evrópu­sambandsins, Banda­ríkjanna og Kanada sem þeir búa við vegna innlimunar þeirra á Krímskaga. Ísland er á meðal þeirra landa sem stutt hafa viðskipta­þvinganirnar. Rússland er stórt viðskipta­land Íslands og stærsti kaupandi uppsjávarafla, einkum makríls. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár