Afdrifarík ákvörðun Rússa sem ætti ekki að koma neinum á óvart

Rússar hafa bætt Íslend­ingum á lista yfir þau lönd sem Rússum er nú óheim­ilt að flytja inn mat­væli frá. Kjarninn greindi frá því í morgun, fyrstur íslenskra fjöl­miðla, að Dmitri Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, hefði stað­fest að fimm ríkjum hefði verið bætt á slíkan lista. Löndin fimm eru Albanía, Svart­fjalla­land, Liechtenstein, Úkraína og auð­vitað Ísland.

Fyrir voru á list­anum öll aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, Banda­ríkin, Kanada, Noregur og Ástralía. Ástæðan fyrir veru allra þess­arra ríkju á bann­list­anum er ein­föld: það standa að eða styðja við­skipta­þving­anir á hendur Rúss­landi vegna inn­limunar þeirra á Krím­skaga.

Ákvörðun Rússa er mikið áfall fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, og íslenskt efna­hags­líf. Hún mun að öllum lík­indum skerða útflutn­ings­tekjur lands­ins, að minnsta kosti til skamms tíma. Ákvörð­unin átti samt ekki að koma mikið á óvart.

Legið í loftinu


Í raun hafði ákvörðun Rússa legið í loft­inu í lengri tíma, þótt form­leg ákvörðun hafi ekki verið tekin fyrr en í morgun. Það vakti mikla athygli í fyrra þegar listi Rússa var settur saman, fyrir tæpu ári síðan, að það var nokkuð til­vilj­un­ar­kennt hvaða ríki lentu á honum. Þannig lentu Norðmenn á honum en ekki Íslend­ingar þrátt fyrir að bæði ríkin hefðu staðið með þeim við­skipta­þving­unum sem lagðar voru á Rússa í júní 2014.

Nokkrum mán­uðum síðar, nánar til­tekið 15. októ­ber 2014, birti Evr­ópu­ráðið síðan form­lega til­kynn­ingu um að Ísland, Makedónía, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Noregur, auk Úkraínu og Georgíu, ætl­uðu að styðja þær við­skipta­þving­anir sem Evr­ópu­sam­bandið, Banda­ríkin og Kanada höfðu lagt á Rússa. Frá því að þessi til­kynn­ing birt­ist hefur verið órói innan íslensku stjórn­sýsl­unnar, og ekki síður hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, vegna þess mögu­leika að Rússar myndu bæta Íslandi á lista yfir þau lönd sem mega ekki flytja mat­væli til Rúss­lands. Sá listi er við­bragð við við­skipta­þving­unum vest­ur­veld­anna gagn­vart Rúss­landi.

Það þurfti ekki að bíða lengi eftir stað­fest­ingu á að sá óró­leiki sem var til staðar hér­lendis átti fullan rétt á sér.

Mikill órói í fyrrahaust


Þann 23. októ­ber 2014 greindi Kjarninn til að mynda frá því að hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi hefðu verið boð­aðir á fund í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu vegna stöð­unnar sem komin var upp milli Íslands og Rúss­lands. Þeim höfðu þá borist upp­lýs­ingar, í gegnum við­skipta­vini sína í Rúss­landi, að rúss­nesk stjórn­völd hefðu hug á að loka á við­skipti við Ísland. Adolf Guð­munds­son, þáver­andi for­maður LÍÚ, sagði þá í sam­tali við Kjarnann að hann hefði heyrt af áhyggjum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja af því að Rússar væru að loka á við­skipti við Ísland og útvíkka inn­flutn­ings­bannið.

Ekkert varð hins vegar af bann­inu þá. Ástæður þess hafa ekki verið útskýrðar opin­ber­lega.

[caption id="attachment_29406" align="alignnone" width="748"] Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur lýst yfir miklum von­brigðum með ákvörðun Rússa. MYND:EPA.[/caption]

Medvedev boðar viðbót á listann


Í lok júli voru við­skipta­þving­an­irnar gagn­vart Rúss­landi fram­lengdar um ár. Skömmu eftir að sú ákvörðun lá fyrir birti Evr­ópu­ráðið nýjan lista yfir þau ríki sem studdu aðgerð­irnar, og þar á meðal voru Íslend­ingar.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Rússa. MYND:EPA.
Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur lýst yfir miklum von­brigðum með ákvörðun Rússa. MYND:EPA.

Rússar brugð­ust skjótt við og Dmi­tri Peskov, fjöl­miðla­full­trúi Vla­dimirs Pútin, for­seta Rúss­lands, sagði að til greina kæmi að Rússland myndi fjölga lönd­unum á sínum bann­lista.

Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti svo í síð­ustu viku að hann ætl­aði sjálfur stýra rann­sókn á því hvort Rússland ætti að útvíkka bannið þannig að það myndi ná til fleiri landa.

Síðan þá hefur verið mik­ill órói hér­lendis. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sagði við Morg­un­blaðið að ráðu­neyti hans og rík­is­stjórnin hefðu haft áhyggjur af því „allan tím­ann“ að lenda á við­skipta­bann­lista Rússa. Jón Garðar Helgason, for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, sagði á sama stað að við­skipta­bann gæti sett mikla hags­muni Íslands í upp­nám. Kolbeinn Árnason, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, kvart­aði yfir skort á sam­ráði við hags­muna­að­ila.

[caption id="attachment_35734" align="alignnone" width="982"] Dmitri Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, stýrði rann­sókn á því hvaða lönd ættu að fara á list­ann.[/caption]

Margir ósáttir


Margir stigu fram og viljað að íslensk stjórn­völd breyti afstöðu sinni gagn­vart við­skipta­þving­unum sem Rússar eru beittir. Á meðal þeirra var Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaups­stað, sem sagði þátt­töku Íslands í aðgerð­unum vera van­hugs­aða. Með þátt­töku eru gríð­ar­legir hags­munir þjóð­ar­bús­ins lagðir að veði. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, steig fram og sagði að Íslend­ingar ættu að hætta að styðja þving­an­irnar. Jón Bjarna­son, fyrrum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, tók opin­ber­lega í sama streng.

Dmitri Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, stýrði rannsókn á því hvaða lönd ættu að fara á listann.
Dmitri Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, stýrði rann­sókn á því hvaða lönd ættu að fara á list­ann.

Þverpóli­tísk sam­staða var hins vegar um það í utan­rík­is­mála­nefnd að standa áfram með sögu­legum banda­mönnum Íslands og styðja aðgerð­irnar gegn Rússum. Fram­ferði þeirra gegn Úkraínu væri ólíð­andi og gegn því yrði að standa.

Gríðarlega miklir hagsmunir undir


Það var ekki að ástæðu­lausu að allt nötr­aði og skalf út af hinu yfir­vof­andi banni. Íslend­ingar stunda gríð­ar­lega mikil við­skipti við Rússa og mikið af þeim auknu útflutn­ings­tekjum sem við höfum fengið eftir hrun, og hafa skipt lyk­il­máli í að rétta við íslenskt efna­hags­líf, eru til­komnar vegna sölu á mak­ríl til Rúss­lands.

Um fimm pró­sent útflutn­ings­verð­mæta Íslands á síð­asta ári komu til vegna útflutn­ings til Rúss­lands. Á árinu 2014 voru aðeins fimm lönd sem keyptu meira af útflutn­ings­af­urðum Íslands, en alls nam verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands um 29 millj­örðum króna á síð­asta ári af sam­tals um 590 millj­arða króna útflutn­ings­verð­mætum. Í minn­is­blaði sem Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi lögðu fram á fundi með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis á mánu­dag kom fram að áætlað útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands í ár nemi 37 millj­örðum króna, eða um átta millj­örðum króna til við­bótar við það sem þau skil­uðu í fyrra. Uppi­staðan í þessum tekjum er sala á mak­ríl, en um helm­ingur þess mak­ríls sem veiðst hefur við Íslands­strendur und­an­farin ár hefur farið á Rúss­lands­markað.

Samkvæmt nýbirtum bráða­birgða­nið­ur­stöðum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar er heild­ar­magn mak­ríls meira en nokkru sinni fyrr á Íslands­miðum, eða frá því að athug­anir hófust árið 2009.

Lokast hefur fyrir aðra markaði


Mik­il­vægi Rúss­lands­markað fyrir íslenskan fisk­út­flutn­ing, sér­stak­lega á mak­ríl, hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum. Ástæðan er meðal ann­ars sú að Ísland getur ekki selt mak­ríl inn á innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins án þess að greiða tolla. Ástæðan er sú að fyrir rúmu ári gerðu Norðmenn, Færeyjar og Evr­ópu­sam­bandið sam­komu­lag um mak­ríl­veiðar í Atl­ants­hafi án aðkomu og vit­undar Íslands.

Auk þess hefur lok­ast fyrir sölu á mak­ríl til Nígeríu eftir að yfir­völd þar kynntu nýverið um bann á inn­flutn­ingi á fiski og fjöl­mörgum fleiri vöru­flokkum. Í fyrra fluttu íslensk fyr­ir­tæki yfir 20 þús­und tonn af mak­ríl til Nígeríu og landið voru stærstu kaup­endur af afurð­inni, utan Rússa. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum Níger­íu­manna eru meðal ann­ars höft á gjald­eyr­is­við­skipti og útgáfa handa­hófs­kenndra inn­flutn­ings­kvóta til að efla inn­lenda fram­leiðslu. Ofan á allt saman er Úkra­ínu­mark­aður, sem hefur lengi verið mik­il­vægur mark­aður fyrir íslenskan upp­sjáv­ar­fisk, verið sem lamaður vegna þeirra átaka sem átt hafa sér stað í land­inu.

Þess ber þó að geta að öll þessi lönd eru fjarri því að vera mik­il­væg­ustu við­skipta­lönd Íslend­inga. Alls fer á bil­inu 75 til 80 pró­sent af útflutn­ingi Íslend­inga inn á Evrópska efna­hags­svæðið. Þá kemur 63 pró­sent af öllum inn­flutn­ingi til lands­ins þaðan og um tíu pró­sent frá Banda­ríkj­unum. Í þeim skiln­ingi eru íslensk stjórn­völd því að veðja á réttan hest með því að standa sam­hliða sögu­legum sam­herjum lands­ins í aðgerðum þeirra gegn Rússum. Lang­mestu við­skipta­hags­munir Íslend­inga eru hjá þeirri blokk.

Íslandi bætt á listann


Í gær virt­ist ein­boðið að Rússar myndu bæta löndum við á bann­list­ann sinn. Eina óvissan var hversu mörg þau yrðu. Íslensk stjórn­völd og hags­muna­að­ilar von­uðu fram á síð­ustu stundu að Ísland yrði þar und­an­skilið og miklar skeyta­send­ingar áttu sér aug­ljós­lega stað milli íslenskra og rúss­neskra stjórn­valda til að reyna að tryggja að svo yrði.

En allt kom fyrir ekki. Í morgun var birtur listi yfir þau fimm lönd sem bætt yrði á bann­list­ann. Þau voru Ísland, Albanía, Svart­fjalla­land, Liechtenstein og Úkraína.

Hvað þýðir þetta?


Eftir því sem liðið hefur á dag­inn hefur komið skýrar í ljós hvað vera Íslands á list­anum þýðir. Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kom fram að bannið feli í sér að íslenskum fyr­ir­tækjum verður ekki lengur unnt að mark­aðs­setja sjáv­ar­af­urðir í Rúss­landi auk þess sem bannið tekur til land­bún­að­ar­vara að frá­töldu lamba­kjöti, ærkjöti, hrossa­kjöti og nið­ur­soðnu fisk­meti í dósum. Samkvæmt upp­lýs­ingum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins liggur fyrir að íslenskar vörur verði ekki toll­af­greiddar og hætta sé á að vörum verði fargað á landa­mær­unum.

[caption id="attachment_32480" align="alignnone" width="640"] Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hitti sendi­herra Rúss­lands á Íslandi í dag til að ræða þá stöðu sem er uppi.[/caption]

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hitti sendiherra Rússlands á Íslandi í dag til að ræða þá stöðu sem er uppi.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hitti sendi­herra Rúss­lands á Íslandi í dag til að ræða þá stöðu sem er uppi.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og lands­bún­að­ar­ráð­herra, ræddi við sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Anton V. Vasiliev, á óform­legum fundi í dag. Þar sagði sendi­herr­ann að ákvörð­unin frá því í morgun beind­ist ekki sér­stak­lega gegn Íslandi, heldur væru Rússar að svara í sömu mynt fyrir þær aðgerðir sem beitt hefði verið gegn þeim. Aðgerðir sem Rússar telji ólög­legar. Sendi­herr­ann sagð­ist ekki hafa upp­lýs­ingar um hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið væri, en það væri tíma­bundið og nauð­syn­legt að vinna að sam­eig­in­legri lausn.

Viðbrögðin eftir bókinni


Viðbrögð við ákvörð­un­inni í dag hafa verið eftir bók­inni. Gunnar Bragi sendi frá sér til­kynn­ingu þar sem hann sagði ákvörðun Rússa vera gríð­ar­leg von­brigði. „Við höfum leitað allra leita til að útskýra afstöðu okkar fyrir rúss­neskum stjórn­völdum og þá hags­muni sem undir eru.“

HB Grandi, eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð er á markað. Sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar til að greina frá áhrifum banns­ins á starf­semi sína. Þar sagði að í fyrra hafi sautján pró­sent tekna HB Granda frá við­skiptum við rúss­neska aðila. Gróflega áætlað mun inn­flutn­ings­bann Rúss­lands á mat­vöru frá Íslandi lækka tekjur félags­ins um um það bil tíu til fimmtán millj­ónir evra á árs­grund­velli. Félagið á nú um 6 millj­ónir evra í útistand­andi kröfum í Rúss­landi. Tekið var fram að erfitt sé að meta fjár­hags­leg áhrif banns­ins á HB Granda. Tíu til fimmtán millj­ónir evra eru jafn­virði um 1.470 til 2.200 millj­óna króna. Hluta­bréf í HB Granda lækk­uðu um 2,64 pró­sent í dag í 607 millj­óna króna við­skiptum.

Þá greindi vef­ur­inn Undercurrent News, sem sér­hæfir sig í fréttum af sjáv­ar­út­vegi,frá því að þremur send­ingum með vörum frá Íslandi á leið til Rúss­lands hafi í dag verið snúið við.

Önnur áhrif banns­ins munu síðan koma fram á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár