Verðmæti útfluttra sjávarafurða til Rússlands áætlað 37 milljarðar í ár

Í minn­is­blaði sem Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi lögðu fram á fundi með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis á mánu­dag kemur fram að áætlað útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands í ár nemi 37 millj­örðum króna. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Það eru meiri verð­mæti en áður var talið og mikil og tölu­verð aukn­ing frá árinu 2014, þegar verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands var um 29 millj­arðar króna, eða fimm pró­sent útflutn­ings­verð­mæta Íslands á því ári.

Kjarninn greindi frá því í gær að Rússar hafi nú tekið ákvörð­unn um að bæta löndum á lista sinn yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vöru. Þetta til­kynntu þeir í gær. Aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, Arkady Dvor­kovítsj, nefndi ekki löndin sem bætt verða á list­ann en sagði ákvörðun um það verða tekna í nán­ustu fram­tíð.

Interfax-frétta­stofan sagði sjö lönd bæt­ast á list­ann sem Rússar gerðu í ágúst í fyrra. Frá þessum löndum er Rússum bannað að flytja inn mat­vöru, þar með talið fisk og fiski­af­urðir.

Sjö lönd hafa ákveðið að standa með Evr­ópu­sam­band­inu, Banda­ríkj­unum og Kanada í hertum við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi frá því að þær voru settar á í upp­hafi síð­asta árs. Auk Íslands eru það Úkraína, Svart­fjalla­land, Albanía, Liechtenstein, Georgía og Noregur. Af þessum löndum er aðeins Noregur nú þegar á bann­lista Rússa.

Í Morg­un­blað­inu segir að allar líkur séu nú taldar á því að Rússar muni bæta Íslandi á lista yfir þau ríki sem þeir beita við­skipta­banni. Ekki sé þó víst hvort bannið muni hafa áhrif á mak­ríl­sölu Íslend­inga til Rúss­lands. Blaðið vitnar í frétta­stof­una Tass sem hefur eftir starfs­manni rúss­neska land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins að enn sé óljóst hvort við­skipta­bann við Ísland nái yfir "ákveðnar fisk­teg­undir".

Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar er heild­ar­magn mak­ríls meira en nokkru sinni fyrr á Íslands­miðum, eða frá því að athug­anir hófust árið 2009. Frá þessu var greint í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár