Minnsti innleiðingarhalli Íslands síðan 2010

Umtals­vert hefur dregið úr inn­leið­ing­ar­halla til­skip­ana og reglu­gerða sem falla undir EES samn­ing­inn og er hann í til­viki Íslands sá minnsti frá árinu 2010. Þetta er nið­ur­staða 42. frammi­stöðu­mats Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA.

Íslenska skjaldamerkið.
Íslenska skjalda­merkið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Verulega hefur dregið úr inn­leið­ing­ar­halla Íslands, bæði hvað varðar EES-til­skip­anir og reglu­gerðir. Miklar breyt­ingar eru hjá Íslandi í frammi­stöðu­mati sem Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA sendi frá sér í dag. Inn­leið­ing­ar­halli til­skip­ana er 1 pró­sent sam­an­borið við 1,8 pró­sent í síð­asta frammi­stöðu­mati og hefur ekki verið minni frá nóv­em­ber 2010. Inn­leið­ing­ar­halli reglu­gerða er 0,8 pró­sent sam­an­borið við 1,2 pró­sent áður sem er að sama skapi sá lægsti frá árinu 2016 þegar ESA birti slíkar tölur í fyrsta sinn.

Frammi­stöðu­matið sýnir stöðu inn­leið­ingar á EES gerðum í EFTA ríkj­unum, Íslandi, Liechtenstein og Noregi. Í til­kynn­ingu frá ESA kemur fram að nið­ur­staðan stað­festi sterka áherslu ríkj­anna á greiða fram­kvæmd EES samn­ings­ins. Ríkin eru hvött til þess að halda áfram á þess­ari braut.

Högni Krist­jáns­son, stjórn­ar­maður ESA, segir að þessi mikli árangur í að draga úr inn­leið­ing­ar­halla til­skip­ana og reglu­gerða á Íslandi, sem og í öðrum EFTA ríkjum, lýsi vel traustu sam­starfi EFTA ríkj­anna og vilja þeirra til þess að vinna saman að öfl­ugum innri mark­aði.

Jafn­framt kemur fram í frammi­stöðu­mat­inu að í til­viki Noregs dragi á ný úr inn­leið­ing­ar­halla til­skip­ana sem er aðeins 0,1 pró­sent sam­an­borið við 0,5 pró­sent áður. Inn­leið­ing­ar­halli reglu­gerða sé nú 1,1 pró­sent en hafi verið 0,1 pró­sent áður.

Enn fremur dregur úr inn­leið­ing­ar­halla í Liechtenstein en 0,7 pró­sent til­skip­ana hafa ekki verið inn­leiddar sam­an­borið við 1,3 pró­sent áður. „Síðar í sumar mun Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins birta frammi­stöðu­mat ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Uppfærð útgáfa frammi­stöðu­mats ESA, með sam­an­burði við öll ríki EES svæð­is­ins, verður birt á sama tíma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár