Spáir 8,5 prósenta samdrætti í ár

Lands­bankinn spáir meiri samdrætti í ár heldur en Seðla­bankinn og Hagstofan en býst þó við að viðspyrnan verði meiri á næstu árum.

Lands­bankinn spáir því að lands­framleiðsla dragist saman um 8,5 prósent í ár í nýútgefinni hagspá sinni. Skammtíma­horfur bankans eru nokkru dekkri en hjá Hagstofunni og Seðla­bankanum, þótt að gert sé ráð fyrir meiri hagvexti til lengri tíma í hagspánni. Bankinn spáir einnig hærra atvinnu­leysi á næsta ári, auk þess sem vextir verði óbreyttir út árið 2021.

Hjarðónæmi síðsumars

Í spánni er gert ráð fyrir að eitt eða fleiri bóluefni gegn kórónu­veirunni verði samþykkt um næstu áramót og að Íslendingar muni hafa myndað hjarð­ónæmi síðsumars á næsta ári. Því til stuðnings vísar bankinn til nýlegrar greiningar ráðgjafa­fyrir­tækisins McKinsey, sem spáði því að líklegast væri að hjarð­ónæmi næðist á þriðja ársfjórðungi árið 2021 í Banda­ríkjunum.

Samkvæmt Lands­bankanum er líklegt að þróunin verði svipuð í öðrum iðnríkjum. Gert er ráð fyrir að þriðja bylgja faraldursins verði gengin yfir í lok þessa árs og að efnahags­starfsemi innanlands verði með nokkuð eðlilegum hætti, eða svipuð og hún var í sumar, eftir það, þótt harðar sótt­varnar­aðgerðir gildi enn á landa­mærunum.

Hins vegar er ekki gert ráð fyrir almennilegri fjölgun ferða­manna hér á landi fyrr en um næsta haust, sökum sótt­varnar­aðgerða. Gert er ráð fyrir komu um hálfrar milljónar ferða­manna í ár, 650.000 á næsta ári, 1,3 milljón árið 2022 og 1,9 milljón 2023

Svartsýnni til skamms tíma

Kjarninn hefur áður fjallað um hagspá Íslands­banka, sem gefin var út í septemberlok. Hagstofan gerði einnig hagspá október­byrjun, auk þess sem hagspá fylgdi síðasta hefti Peninga­mála í ágústlok. Greina má skýran mun á spám Seðla­bankans og Hagstofunnar annars vegar og bankanna tveggja hins vegar.

Muninn má sjá á mynd hér að ofan, þar sem spátölur um hagvöxt fyrir árin 2020, 2021 og 2022 eru bornar saman. Bankarnir tveir spá meiri samdrætti til skamms tíma, en búast þó við að hagkerfið rétti meira úr kútnum á seinni tveimur árunum. Samkvæmt öllum spám mun lands­fram­leiðslan þó ekki ná að komast á sama stig og hún var á árið 2019 fyrr en í fyrsta lagi árið 2023.

Sömu sögu er að segja um vinnu­markaðinn, þar sem Lands­bankinn spáir 7,8 prósenta atvinnu­leysi í ár og 8,4 prósentum á næsta ári. Enginn annar greiningar­aðili spáir jafnháu atvinnu­leysi á næsta ári og Lands­bankinn, en bankinn gerir þó ráð fyrir að það minnki fljótt árin 2022 til 2024.

Óbreyttir vextir út 2021

Samkvæmt hagspá Lands­bankans eru frekari vaxta­lækkanir af hálfu Seðla­bankans ólíklegar þar sem verðbólgu­þrýstingur hefur skapast vegna gengis­veikingar krónunnar. Hækkun vaxta til skamms tíma sé einnig verulega ólíkleg, þar sem mikill framleiðslu­slaki sé í hagkerfinu um þessar mundir sem endur­speglast m.a. í miklu atvinnu­leysi. Bankinn telur því því að peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands muni halda vöxtum óbreyttum út þetta ár og næsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár