Stígamót: „Nú rignir eldi og brennisteini“

Samtökin Stígamót segja á Facebook-síðu sinni að nær­tæk­ast væri að ráða fólki frá því að kæra nauðgun. Sveinn Andri Sveins­son gagn­rýndi sam­tökin harð­lega í DV. Fimm karl­menn voru í dag sýkn­aðir af ákæru um hópnauðgun.

Lögmaður
Lögmaður Sveinn Andri Sveins­son gagn­rýndi sam­tökin harð­lega.

Samtökin Stígamót birtu harð­orða yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni rétt í þessu, í kjöl­far þess að fimm karl­menn voru sýkn­aðir af ákæru um hópnauðgun.

„Nú rignir eldi og brenni­steini eins og stundum áður. Það er svo komið að okkur sýn­ist ekki bara erfitt að mæla með því að kæra kyn­ferð­is­of­beldi. Okkur sýn­ist að svo sé komið að nær­tæk­ast sé að ráða fólki frá því að kæra. Það er ekki bara von­lítið að ná fram rétt­læti, heldur á fólk á hættu að vera úthrópað glæpa­fólk. Það getur átt von á að vera kært fyrir falskar ásak­anir og þurfa þá að sanna það sem lög­regl­unni tekst oft­ast ekki að sanna, að nauðgun hafi átt sér stað. Í þá stöðu er ekki hægt að setja fólk og það er óvið­un­andi.

Við minnum á Sann­leiks­sjóð­inn okkar. Hann er ætl­aður til þess að styðja við þær konur sem eru kærðar fyrir að segja frá ofbeldi gegn sér. Í honum er lítið fé, en við gætum reynt að efla hann.

Gras­rótin í kvenna­hreyf­ing­unni er sprell­lif­andi og lok­aðir hópar kvenna sem beittar hafa verið kyn­ferð­is­of­beldi, hafa óskað eftir stuðn­ingi og neyð­ar­fundi hjá Stíga­mótum til þess að geta haldið utanum hverja aðra og til þess láta ekki órétt­inn buga sig. Í þessu ríki þykir ríkja mest jafn­rétti í öllum heim­inum sjö­unda árið í röð,“ segir í yfir­lýs­ingu Stíga­móta.

Blaut tuska

Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður eins mann­anna, skaut fast á Stígamót í við­tali við DV fyrr í dag. Þar sagði hann að nið­ur­staða dóm­stóla væri blaut tuska í and­litið á dóm­stól göt­unnar. „Þetta er lexía fyrir íslenskt sam­fé­lag. Þegar svona brot koma upp eiga menn að halda aðeins aftur af sér og treysta lög­reglu og dóm­stólum að klára málin. Þetta er líka þörf ábend­ing til Stíga­móta um að sinna sínum fórn­ar­lömbum en ekki kynda undir ófrið­ar­bálið þegar málin eru í upp­hafi máls­með­ferðar,“ er haft eftir Sveini Andra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár