Kjarninn tilnefndur til blaðamannaverðlauna fyrir að greina umrót og breytingar í íslensku efnahagslífi

Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son voru í gær til­nefndir til Blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir umfjöllun um íslenskt efna­hags­líf í fyrra. Á meðal þess sem fellur þar undir eru for­dæma­lausar grein­ingar á stöðu íslensks sjáv­ar­út­vegs.

Árið 2019 var mikið umrótsár í íslenskum efna­hags­málum. Gjald­þrot WOW air, loðnu­brestur og aðrar búsifjar í ferða­þjón­ustu gerðu það að verkum að for­dæma­laust góð­ær­is­tíma­bil, sem staðið hafði yfir á tíma­bil­inu 2012 til 2018, lauk sínu skeiði, þótt lend­ingin hafi á end­anum verið mild­ari en svart­sýn­ustu menn höfðu reiknað með.

Við tóku krefj­andi aðstæður sem gerðar voru enn erf­ið­ari með flók­inni kjara­deilu í upp­hafi árs. Á sama tíma voru að eiga sér stað svipt­ingar í fjár­mála­kerf­inu sem fólu meðal ann­ars í sér að eig­endur eins banka voru að minnka hann hratt á sama tíma og unnið var að und­ir­bún­ingi sölu rík­is­bank­anna þótt engir aug­ljósir kaup­endur væru af þeim.

Þá voru að mynd­ast nýjar valda­blokkir og fyr­ir­tæki sem farið höfðu mik­inn, lentu á vegg.

Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son skrif­uðu fjöl­margar frétta­skýr­ingar á Kjarnann um stöðu mála á árinu 2019 þar sem hún var greind og sett í sam­hengi. Við vinnslu þeirra nutu þeir þess að hafa byggt upp víð­feðmt tengsla­net á blaða­mennsku­ferli sem spannar, hjá hvorum þeirra, vel á annan tug ára og þeirrar sér­þekk­ingar sem þeir hafa byggt upp á þeim tíma þegar kemur að umfjöllun um efna­hags­mál og við­skipti.

Þegar um er að ræða stór­tækar breyt­ingar sem verða í efna­hags­lífi þjóðar er nauð­syn­legt að blaða­menn búi yfir getu til að geta útskýrt hvað sé að eiga sér stað, af hverju, hverjir séu í helstu hlut­verkum þar og hvaða afleið­ingar geti orðið af yfir­stand­andi þróun.

Umfjöllun um gjör­breytta stöðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, sem eru nú í annarri deild en áður hefur þekkst hér­lendis sökum umfangs og auðs, eru síðan eins­dæmi í íslenskri fjöl­miðlaum­fjöllun. Sú kort­lagn­ing er almenn­ingi afar mik­il­væg í ljósi þess að þar er um að ræða fyr­ir­tæki sem byggja veldi sín á nýt­ingu nátt­úru­auð­linda sem eru, sam­kvæmt laga­bók­staf, nýttar í þágu þjóðar.

Með skrifum sínum svör­uðu Magnús og Þórður Snær mörgum ósvöruðum spurn­ingum um stöðu mála í íslensku efna­hags­lífi og sjáv­ar­út­vegs­málum og fylltu upp í heild­ar­mynd af henni.

Hér að neðan er sam­an­tekt greinum sem Magnús og Þórður Snær skrif­uðu um efna­hags­mál, við­skipta­líf og sjáv­ar­út­veg á síð­asta ári.

Efnahagsmál og viðskipti:

Snúin staða

Ísland er allt annarri stöðu en flest lönd í Evrópu, Asíu og Norður- og Suður-Ameríku, þegar kemur að einum þætti: fjár­mála­kerf­inu. Einum ára­tug eftir fjár­mála­hrunið stendur það traustum fótum, og búið að hreinsa út ónýt og slæm útlán. Þetta hefur ekki verið gert vítt og breitt um heim­inn. Tjöldin eru fallin, því seðla­bankar munu ekki halda hjól­unum gang­andi á næst­unni í heim­inum. Hvað þýðir það fyrir Ísland? Hvað er framundan?

Gripið inn í

Seðla­banki Íslands hefur að und­an­förnu ítrekað gripið inn í við­skipti á gjald­eyr­is­mark­aði með það að mark­miði að vinna á móti veik­ingu krón­unnar. Miklar sveiflur hafa ein­kennt gengi krón­unnar und­an­farna mán­uði. Hvað veldur? Hvers er að vænta? Hinn end­an­legi loka­hnykkur á end­ur­skipu­lagn­ing­unni í kjöl­far hruns­ins er framundan.

Nýr veruleiki á markaði

Ýmsir ótt­ast að ládeyða á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði sé komin til að vera, ef fjár­fest­ingar glæð­ast ekki með meiri áhuga fjár­festa. Sé litið til baka þá kunna fjár­magns­höftin að hafa verið áhrifa­meiri fyrir efna­hags­lífið en margir átt­uðu sig á. Þrátt fyrir allt, gegnir skráður mark­aður veru­lega mik­il­vægu hlut­verki fyrir almenn­ing í land­inu. Stjórn­völd gætu stigið skrefið og eflt hann með sölu á rík­is­eignum í gegnum hann.

Nýtt Ísland og nýjar valdablokkir

Á Íslandi er að finna ansi kröft­ugar fjár­fest­inga­blokkir einka­fjár­festa sem hafa verið að láta á sér kræla í fjár­fest­ingum í atvinnu­líf­inu. Og hafa getu til að gera enn meira.

Nýtt Ísland og nýjar leikreglur

Nýjar valda­blokkir eru byrj­aðar að teikn­ast upp í atvinnu­líf­inu, og þar eru kunn­ug­legar per­sónur og leik­endur í aðal­hlut­verkum. Afnám fjár­magns­hafta er nú að teikn­ast upp eins og strik í sand­inn, fyrir þróun mála í hag­kerf­inu. Vaxandi þrýst­ingur er á afnám reglu­verks. Kunn­ug­legt, segja sumir.

Arion banki á breytingaskeiðinu

Einn kerf­is­lægt mik­il­vægur banki, sam­kvæmt form­legri skil­grein­ingu stjórn­valda, er í einka­eigu. Það er Arion banki. Á sama tíma og rætt er um mik­il­vægi þess að bankar styðji við vöxt í efna­hags­líf­inu, eftir áfall með falli WOW air, þá er Arion banki að end­ur­skipu­leggja rekstur og draga saman seglin. Til­gang­ur­inn virð­ist meðal ann­ars vera sá að geta greitt eins mikið eigið fé út úr bank­anum og mögu­legt er til hlut­hafa hans.

Hlupu hratt, uxu mikið en hrösuðu á endanum

Fjár­mála­fyr­ir­tækið GAMMA hefur verið mikið til umfjöll­unar und­an­farið vegna þess að hluti sjóða þess reynd­ust ekki jafn burð­ugir og áður hafði verið greint frá. Vöxtur GAMMA á þeim rúma ára­tug sem það var sjálf­stætt fyr­ir­tæki var hraður og margir högn­uð­ust vel á við­skiptum sínum við það. Nú er hins vegar lítið eftir af því og lík­legra en ekki að GAMMA verði vart til í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð.

Eigið fé sjóðs GAMMA þurrkaðist nánast út

Eigið fé GAMMA: Novus, sjóðs í stýr­ingu hjá GAMMA sem á fast­eigna­fé­lagið Upphaf, var metið á 4,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Eftir að eignir sjóðs­ins voru end­ur­metnar er eigið féð 40 millj­ónir króna.

Hvað gerðist eiginlega hjá GAMMA?

Tveir sjóðir í stýr­ingu GAMMA færðu niður virði eigna sinna um millj­arða króna. Fleiri sjóðir á vegum félags­ins hafa verið í vand­ræðum. Kaup­endur af skulda­bréfum sem gefin voru út í byrjun sum­ars eru fok­illir með upp­lýs­ing­arnar sem þeim voru gefnar. GAMMA, sem fór með him­in­skautum í nokkur ár, virð­ist vera í miklum vand­ræðum. Hvað gerð­ist?

Sjávarútvegsmál:

Útgerðin í annarri deild

Und­an­far­inn ára­tugur hefur verið einn allra besti tím­inn í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs. Fjár­hags­staða margra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna er orðin það sterk, að þau eru í annarri deild heldur en meg­in­þorri fyr­ir­tækja í íslensku atvinnu­lífi. Umsvif þeirra í öðrum geirum fara vax­andi, og má búast við að sú þróun haldi áfram. En hvað þýðir það?

Sjávarútvegur hefur hagnast um tæpa 400 milljarða á áratug

Arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa numið 92,5 millj­örðum króna frá árinu 2010. Á sama tíma­bili hafa þau greitt 65,6 millj­arða króna í veiði­gjöld. Eigið fé geirans er nú 276 millj­arðar króna og hagur hans hefur vænkast um tæpa 450 millj­arða króna frá banka­hruni.

Eigið fé Samherja var 111 milljarðar króna í lok síðasta árs

Sam­herj­a­sam­stæð­unni var skipt upp á árinu 2018 í tvö félög. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra í fyrra var um tólf millj­arðar króna og sam­stæðan hefur hagn­ast alls um 112 millj­arða króna á átta árum. Samherji er að uppi­stöðu í eigu þriggja ein­stak­linga.

Stóru sjávarútvegsrisarnir verða stærri

Óhætt er að segja að það hafi gengið á ýmsu hjá Brimi, áður HB Granda, und­an­farin miss­eri. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi seldi hluta­bréf sín, meðal ann­ars vegna óánægju með stjórn­ar­hætti í félag­inu. Þá kom FISK Seafood, útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, inn í hlut­hafa­hóp­inn en var svo far­inn úr honum þremur vikum síðar. Guð­mundur Krist­jáns­son for­stjóri hefur ekki hikað við stór við­skipti við eigið fyr­ir­tæki og notið stuðn­ings hlut­hafa til að gera það. Hinir stóru eru að verða stærri í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Útgerðarfélag Reykjavíkur kaupir allan hlut Kaupfélagsins í Brimi

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem er að stærstum hluta í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brim, hefur keypt allan hlut Kaup­fé­lags Skag­firð­inga í sjáv­ar­út­vegs­ris­anum Brimi á tæp­lega átta millj­arða króna.

Samþykkt að kaupa eignir af stærsta eiganda HB Granda á 4,4 milljarða

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur fær fulla greiðslu fyrir eignir sem það selur HB Granda en lofar að end­ur­greiða hana að hluta ef rekstr­ar­á­ætl­anir stand­ast ekki. Samþykkt að breyta nafni HB Granda í Brim.

Umfangsmikil og ítrekuð viðskipti við stærsta hluthafa HB Granda óheppileg

For­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis segir að ítrekuð við­skipti HB Granda við stærsta hlut­hafann sinn séu for­dæma­laus á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði og óheppi­leg. Til stendur að HB Grandi kaupi sölu­fé­lög af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna.

Gildi selur hlut sinn í HB Granda/Brim vegna kaupa á sölufélögum

Einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins hefur selt Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga nær allan hlut sinn í HB Granda, sem nú heitir Brim, vegna við­skipta sem félagið hefur átt við stærsta hlut­hafa sinn.

Samherji kynnti Síldarvinnsluna sem hluta af samstæðunni

Þegar Samherji kynnti sam­stæð­una sína erlendis þá var Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Á Íslandi hefur Samherji aldrei geng­ist við því að Síld­ar­vinnslan sé tengdur aðili, enda fer sam­eig­in­legur kvóti sam­stæð­unnar þá langt yfir það þak á kvóta sem einn hópur má halda á. Samherji á, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni.

Uppskipting Samherja veitti skjól gegn víðtækri upplýsingagjöf

Velta Samherja eins og hún var á árinu 2018 var það há að sam­stæðan var við það að þurfa að veita skatta­yf­ir­völdum víð­tækar upp­lýs­ingar um tekjur og skatta allra félaga innan hennar í þeim löndum sem þau starfa. Eftir að Samherja var skipt upp í tvö félög í fyrra var sú hætta úr sög­unni.

Sjávarútvegsfyrirtæki áttu 709 milljarða um síðustu áramót

Frá hruni hefur hagur allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins batnað um hátt í 500 millj­arða króna. Eigið fé þeirra hefur tífald­ast frá árinu 2010 og það jókst um 28,8 millj­arða króna í fyrra. Veiði­gjöld hafa his vegar lækkað vegna þess að fjár­fest­ing síð­ustu ára er dregin frá þegar stofn þeirra er reikn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár