Mynd: EPA.

Sjávarútvegur hefur hagnast um tæpa 400 milljarða á áratug

Arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa numið 92,5 millj­örðum króna frá árinu 2010. Á sama tíma­bili hafa þau greitt 65,6 millj­arða króna í veiði­gjöld. Eigið fé geirans er nú 276 millj­arðar króna.

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eiga eigið fé upp á 276 millj­arða króna. Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

í lok árs 2008 var eig­in­fjár­staða geirans nei­kvæð en er nú, líkt og áður sagði jákvæð um 276 millj­arða króna. Hún batn­aði um 14 millj­arða króna á árinu 2018.

Þetta kemur fram í Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte fyrir árið 2018 sem kynntur var í gær. Hann nær yfir rekstur 92 pró­sent allra fyr­ir­tækja í íslenska sjáv­ar­út­vegs­geir­anum.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur.

Sam­an­lagt hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins, því vænkast um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út síð­asta ár, eða á einum ára­tug.

Skuldir hækkuðu lítillega

Í gagna­grunn­inum kemur fram að tekjur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna sem hann nær til hafi alls muni 247 millj­örðum króna í fyrra og auk­ist um 22 millj­arða króna á milli ára. EBIDTA-hagn­aður þeirra, hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­gjöld og skatta, var 53 millj­arðar króna og jókst um 13 millj­arða króna. End­an­legur hagn­aður var 27 millj­arðar króna, sem er sami hagn­aður og geir­inn skil­aði árið 2017.

Samtals hafa íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hagn­ast um 396 millj­arða króna eftir hrun.

Skuldir geirans hækk­uðu á milli ára í 389 millj­arða króna en þegar skuld­irnar eru reikn­aðar sem hlut­fall á móti EBITDA-hagn­aði lækka þær. Ný lang­tíma­lán umfram afborg­anir námu 13 millj­örðum króna. Hægst hefur á fjár­fest­ingum í sjáv­ar­út­vegi. Þær námu 18 millj­örðum króna í fyrra, en 20 millj­örðum króna árið áður. 

Veiðigjöld munu lækka á þessu ári

Veiði­gjöld voru 11,3 millj­arðar króna í fyrra, sem eru þau hæstu sem geir­inn hefur greitt. Það nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára, úr 6,8 millj­örðum króna árið 2017. Samtals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 63,3 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Veiði­gjöldin lækka á þessu ári, en áætlað er að þau skili um sjö millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í ár og nán­ast sömu upp­hæð á árinu 2020, sam­kvæmt nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi. Ný lög um veiði­gjald tóku gildi um síð­ustu ára­mót þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns. Í fjár­laga­frum­varp­inu sagði að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­ferð upp­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­ár­s.

Bein opin­ber gjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem gagna­grunnur Deloitte nær yfir voru 21,4 millj­arðar króna í fyrra að veiði­gjöld­unum með­töldum.

Geta seilst til áhrifa í óskyldum geirum

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin hafa því sam­an­dregið átt ótrú­legri rekstr­ar­legri vel­gengni að fagna á und­an­förnum árum. Hagnaður hefur verið gríð­ar­legur og upp hefur byggst ákafa­f­lega sterk eig­in­fjár­staða þrátt fyrir miklar arð­greiðslur til eig­enda.

Þess utan geta stærstu fyr­ir­tækin í sjáv­ar­út­vegi fjár­magnað sig og gert upp í öðrum myntum en íslensku krón­unni, sem tryggir þeim mun betri lána­kjör en þeim bjóð­ast á inn­lendum mark­aði.

Það gerir það að verkum að fjár­fest­inga­geta þeirra hefur auk­ist feyki­lega mikið og þau hafa mörg hver fjár­fest umtals­vert í öðrum og óskyldum geirum. Kjarninn greindi til að mynda frá því um miðjan þennan mánuð að eigið fé Samherja, stærstu sjáv­ar­út­vegs­sam­stæðu lands­ins, hefði verið 111 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Sú sam­stæða hefur ein og sér hagn­ast um 112 millj­arða króna á átta árum.

Helstu eig­endur og stjórn­endur Sam­herja eru frænd­­­­urn­ir, for­­­­stjór­inn Þor­­­­steinn Már Bald­vins­­­­son og útgerð­­­­ar­­­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­­­son. Þeir eiga sam­tals 65,4 pró­sent í sam­stæð­unni. Helga S. Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más, á 21,3 pró­sent.

Þessir þrír ein­stak­lingar eiga því 86,7 pró­sent í Sam­herja, hér heima og erlend­is, sem á eigið fé upp á tæp­lega 111 millj­arða króna.

Félögin tvö sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una stunda ekki ein­ungis við­skipti með sjáv­ar­af­urðir. Sam­herji hf. á til að mynda stóran hlut í smá­­söluris­­anum Hög­um, en það er fjórði stærsti hlut­hafi þess með 9,26 pró­­sent eign­­ar­hlut. Sam­herji Holding ehf. er síðan stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­skip, með 27,1 pró­­sent eign­­ar­hlut.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um vöxt stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hægt er að lesa hana hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár