Stóru sjávarútvegsrisarnir verða stærri

Óhætt er að segja að það hafi gengið á ýmsu hjá Brimi, áður HB Granda, und­an­farin miss­eri. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi seldi hluta­bréf sín, meðal ann­ars vegna óánægju með stjórn­ar­hætti í félag­inu.

Mark­aðsvirði Brims, áður HB Granda, hefur hækkað umtals­vert und­an­farin miss­eri. Á einu ári hefur það hækkað um tæp­lega 25 pró­sent en sé horft til þessa árs ein­göngu nemur hækk­unin rúm­lega 17 pró­sent. Fyr­ir­tækið er nú tæp­lega 70 millj­arða króna virði.

Brim gerir upp í evrum og hefur veik­ing krón­unnar gagn­vart evru á und­an­förnu ári, sem nemur tæp­lega átta pró­sentum, því komið sér nokkuð vel fyrir fyr­ir­tækið.

Fjár­hags­staða þess er sterk og má segja að það sé eins­konar flagg­skip sjáv­ar­út­vegs­ins í Reykja­vík. Heild­ar­eignir fyr­ir­tæk­is­ins námu 650 millj­ónum evra, eða sem nemur 91 millj­arði króna, í lok 2. árs­fjórð­ungs. Hagnaður á fyrri helm­ingi árs­ins var 1,5 millj­arður króna, en eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins um mitt ár var rúm­lega 38 millj­arðar.

Hagn­að­ur­inn í fyrra var rúm­lega fjórir millj­arðar en Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi, var ekki ánægður með þá nið­ur­stöðu. „Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið að minnka á síð­ustu árum vegna styrk­ingar íslenskrar krónu og hærri veiði­gjalda. Á seinni hluta árs­ins 2018 veikt­ist íslenska krónan og það styrkir útflutn­ings­fyr­ir­tæki. Árið 1992 fjár­festi HB Grandi í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Síle. Þetta fyr­ir­tæki seldi lax­eld­is­fyr­ir­tæki sitt á síð­asta ári og fékk HB Grandi tölu­verðan hagnað af þeirri sölu og skýrir það að hluta góða afkomu á síð­asta árs­fjórð­ungi 2018,“ sagði Guð­mundur í til­kynn­ingu vegna afkom­unnar.

Guð­mundur er lang­sam­lega stærsti hlut­haf­inn í gegnum Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem áður hét Brim. Eign­ar­hlutur hans er nú kom­inn yfir 48 pró­sent og mun fara yfir 50 pró­sent eftir hluta­fjár­aukn­ingu, í tengslum við kaup Brims á nokkrum sölu­fé­lögum í eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur fyrir 4,4 millj­arða króna. Greiðslan fer fram með hlutafé í Brimi, og því eykst eign­ar­hlutur hans umtals­vert. Til fram­tíðar er þó vilji til þess að fara ekki yfir 50 pró­sent eign­ar­hlut, segir í til­kynn­ingu til Kaup­hallar.

Bændur í Skagafirði

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er risa­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða og FISK Seafood, útgerð­ar­armur þess, hefur látið veru­lega til sín taka í íslensku atvinnu­lífi að und­an­förnu. Fjár­hags­staða kaup­fé­lags­ins er með nokkrum ólík­indum, sé horft til þess að um hefð­bundið kaup­fé­lag er að ræða með dreifðri eign­ar­að­ild bænda í Skaga­firði sem bak­bein. Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri, hefur leitt félagið um ára­bil sem for­stjóri og var afkoma félags­ins á árinu 2018 sú besta í 130 ára sögu félags­ins. Upp­bygg­ing kaup­fé­lags­ins hefur verið veru­lega umfangs­mikil á und­an­förnum árum, en í lok árs í fyrra var eigið fé félags­ins rúm­lega 35 millj­arðar og heild­ar­eignir námu 62,3 millj­örðum króna.

Hagnaður af rekstri sam­stæð­unn­ar á ár­inu 2018, fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði, var rúm­lega fimm millj­arðar króna sam­an­borið við 2,3 millj­arða árið 2017.

Höfuðstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðarkróki. Mynd: ks.is
Höf­uð­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ar­króki. Mynd: ks.is

Það sem helst skýr­ir þenn­an mun er sölu­hagn­aður þar sem FISK Sea­food, eitt 14 dótt­ur­fé­laga Kaup­fé­lags­ins, seldi 50 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Olís og eign­ar­hlut sinn í fé­lag­inu Solo Sea­food í fyrra. Hag­ar hf. keyptu hlut­inn í Olís, en helm­ing­ur var greidd­ur með reiðufé og helm­ing­ur með hluta­bréf­um í Hög­um. Kaup­fé­lag­inu bar að selja þau bréf inn­an 30 mán­aða frá því við­skipt­in tóku gildi.

Fléttur og kaup á eignum af stærsta eigandanum

Hinn 18. ágúst síð­ast­lið­inn var frá því greint að FISK Seafood hefði gert skipti á hluta­bréfum við Gildi líf­eyr­is­sjóð. FISK eign­að­ist hluta­bréf Gildis í Brimi og Gildi eign­að­ist meðal ann­ars hluta­bréf í Högum í stað­inn.

Þarna fóru saman ann­ars vegar hags­munir FISK, vegna fyrr­greindra kvaða um að félagið seldi hluta­bréf sín í Högum, og síðan áhugi Gildis á því að fara út úr hlut­hafa­hópi Brims.

Ástæðan fyrir því var sú að Gildi hafði haft áhyggjur af stjórn­ar­háttum í Brimi um nokk­urt skeið, eða allt frá því að Guð­mundur Krist­jáns­son kom inn í hlut­hafa­hóp­inn, í gegnum Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, og varð for­stjóri.

Það sem helst trufl­aði Gildi voru við­skipti við Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, þar sem Brim var að kaupa eignir af félag­inu þar sem Guð­mundur, for­stjóri Brims, var helsti eig­andi. Fyrst voru það við­skipti með Ögurvík og síðan við­skipti þar sem Brim keypti sölu­fé­lög af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, sem þjón­ustu Asíu­markað, fyrir 4,4 millj­arða króna. Sam­an­lagt hefur Brim keypt eignir af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur fyrir 16,7 millj­arða króna frá því að Guð­mundur Krist­jáns­son varð for­stjóri félags­ins og stærsti eig­andi.

Grein­andi Capacent sagði um kaupin á Ögurvík á sínum tíma að honum hafi liðið „eins á laug­ar­dags­morgni eftir kvöld á Kaffi­barn­um“ þegar rýnt væri í for­sendur þess kaup­verðs sem var á Ögur­vík. „Svarið við alheim­inum og til­gangi lífs­ins er 42,“ sagði meðal ann­ars í grein­ingu hans, og vitnað til þess að hægt væri að fá út hin ýmsu verð á Ögur­vík. Töl­una 42 í sam­hengi við svarið við spurn­ing­unni um til­gang lífs­ins, má rekja til bók­ar­inn­ar The Hitchhi­ker's Guide to the Galaxy eftir Dou­glas Adams.

Fljótt út aftur með miklum hagnaði

Í til­kynn­ingu Gildis, í aðdrag­anda hlut­hafa­fundar 13. ágúst, þar sem við­skiptin með sölu­fé­lögin voru til umfjöll­unar, sagði að það væri mat Gildis að þessar fyr­ir­ætl­anir væru ekki trú­verð­ugar. „Við­skiptin virð­ast eiga sér afar skamman aðdrag­anda hjá stjórn félags­ins. Að mati Gildis eru þessar fyr­ir­ætl­anir ekki trú­verð­ugar og ekki hefur verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­miðum, mögu­lega með minni til­kostn­aði. Við­skipti milli tengdra aðila verða að vera hafin yfir vafa og að mati sjóðs­ins hefur ekki tek­ist að sýna fram á að þessi við­skipti séu hag­felld og nauð­syn­leg fyrir HB Granda (Nú Brim),” sagði í yfir­lýs­ingu Gildis.

Það sem helst trufl­aði Gildi voru við­skipti við Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, þar sem Brim var að kaupa eignir af félag­inu þar sem Guð­mundur, for­stjóri Brims, var helsti eig­andi. Fyrst voru það við­skipti með Ögurvík og síðan við­skipti þar sem Brim keypti sölu­fé­lög af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, sem þjón­ustu Asíu­markað, fyrir 4,4 millj­arða króna. Sam­an­lagt hefur Brim keypt eignir af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur fyrir 16,7 millj­arða króna frá því að Guð­mundur Krist­jáns­son varð for­stjóri félags­ins og stærsti eig­andi.

Grein­andi Capacent sagði um kaupin á Ögurvík á sínum tíma að honum hafi liðið „eins á laug­ar­dags­morgni eftir kvöld á Kaffi­barn­um“ þegar rýnt væri í for­sendur þess kaup­verðs sem var á Ögur­vík. „Svarið við alheim­inum og til­gangi lífs­ins er 42,“ sagði meðal ann­ars í grein­ingu hans, og vitnað til þess að hægt væri að fá út hin ýmsu verð á Ögur­vík. Töl­una 42 í sam­hengi við svarið við spurn­ing­unni um til­gang lífs­ins, má rekja til bók­ar­inn­ar The Hitchhi­ker's Guide to the Galaxy eftir Dou­glas Adams.

Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar og stað­geng­ill for­stjóra Gildis líf­eyr­is­sjóðs, sagði við Kjarnann að jafn umfangs­mikil og ítrekuð við­skipti stærsta hlut­hafa HB Granda/Brim við félagið sjálft væru ekki bara óheppi­leg heldur „for­dæma­laus á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði.“

Við­skiptin voru hins vegar sam­þykkt af full­trúum tæp­lega 90 pró­sent hlut­hafa. Þar á meðal hinum stóru líf­eyr­is­sjóð­unum sem eiga stóra hluti í félag­inu, Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins og Birtu líf­eyr­is­sjóði.

Gildi greip því til þess að losa um eign­ar­hlut sinn í félag­inu og skipta á bréfum við FISK í Högum. Þannig varð FISK að einum stærsta eig­anda félags­ins, sem breytti nafni sínu úr HB Granda í Brim á sama hlut­hafa­fundi.
FISK hefur stækkað sjáv­ar­út­vegs­veldi sitt mikið á und­an­förnum tveimur árum. Félagið keypti þriðj­ungs­eign­ar­hlut Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í Vinnslu­stöð­inni fyrir 9,4 millj­arða króna í sept­em­ber í fyrra, og árið 2017 keypti félagið Soff­an­ías Cecilsson hf., rót­gróið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Grund­ar­firði, fyrir 9,5 millj­arða króna. Félagið hefur því stækkað ört og víkkað út afla­heim­ildir sínar og vinnslu­mögu­leika, á síð­ustu miss­erum.

FISK var hins vegar ekki lengi hlut­hafi í Brimi. Hinn 9. sept­em­ber var til­kynnt um kaup Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur á hlut FISK í Brimi, sem var um tíu pró­sent af heild­ar­hlutafé. Kaup­verðið var á geng­inu 40,4 og nam um átta millj­örðum króna. FISK hafði eign­ast bréfin á geng­inu 36, um þremur vikum fyrr, og því var hagn­að­ur­inn umtals­verður af þessum við­skiptum, eða tæp­lega millj­arður. Ekki ama­legt það, fyrir bændur í Skaga­firði.

Frekari hagræðing í kortunum

Þessar umtals­verðu breyt­ingar á eign­ar­haldi hjá Brimi og fleiri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, sýna að mikil hag­ræð­ing og sam­þjöppun er að eiga sér stað í grein­inni. Þar eru hinir stóru að verða stærri, og sífellt verið að leita leiða til þess að hag­ræða í allri virð­is­keðj­unni hjá félög­unum, í veiðum, vinnslu og sölu­starf­semi. Það sem hefur gerst hjá Brimi er ekki óvænt, þegar horft er til þess­arar þró­unar. Það er hins vegar eina skráð sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið í land­inu og því eðli­legt að það valdi titr­ingi hjá ein­hverjum í hluta­hafa­hópnum, þegar félag for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins er að selja því eignir fyrir millj­arða.

Líklegt er að umræða um hámarks eign í kvóta verði hávær­ari á næst­unni, og þá hvort stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin eru komin upp fyrir hámarkið eða í það minnsta nærri því. Samkvæmt lögum um stjórn fisk­veiða má heild­ar­afla­hlut­deild fiski­skipa í eigu ein­stakra eða tengdra aðila ekki fara yfir 12 pró­sent af sam­an­lögðu heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deilda allra teg­unda. Þá má afla­hlut­deild í þorski ekki fara yfir 12 pró­sent. Í ýsu, ufsa, grá­lúðu, stein­bít, síld og loðnu má hún ekki fara yfir 20 pró­sent og í karfa ekki yfir 35 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið undanfarið ár