Eigið fé Samherja var 111 milljarðar króna í lok síðasta árs

Sam­herj­a­sam­stæð­unni var skipt upp á árinu 2018 í tvö félög. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra í fyrra var um tólf millj­arðar króna og sam­stæðan hefur hagn­ast alls um 112 millj­arða króna á átta árum. Samherji er að uppi­stöðu í eigu þriggja ein­stak­linga.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og einn aðaleigenda Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og einn aðal­eig­enda Samherja. Mynd: Hringbraut

Hagnaður Samherja vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæð­unnar var 110,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum Samherja hf., sem heldur utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Færeyjum, og Samherja Holding ehf., sem heldur meðal ann­ars utan um eign­ar­hluti Sam­herja í dótt­ur­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­fest­inga­fé­lagi á Íslandi.

Hagnaður Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hefur þar með numið yfir 112 millj­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka síð­asta árs. Hagn­að­ur­inn dróst lít­il­lega saman milli áranna 2017 og 2018, en hann var 14,4 millj­arðar króna á fyrra árinu.

Helstu eig­endur og stjórn­endur Sam­herja eru frænd­­­urn­ir, for­­­stjór­inn Þor­­­steinn Már Bald­vins­­­son og útgerð­­­ar­­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­­son. Þeir eiga sam­tals 65,4 pró­sent í sam­stæð­unni. Helga S. Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más, á 21,3 pró­sent.

[adspot]Þessir þrír ein­stak­lingar eiga því 86,7 pró­sent í Samherja, hér heima og erlendis, sem á eigið fé upp á tæp­lega 111 millj­arða króna. Líklegt er að virði Samherja sé umfram bók­fært eigið fé. Miðað við það er ljóst að þau þrjú eigi að minnsta um 100 millj­arða króna eignir.

Til við­bótar á félagið Bliki ehf. 11,7 pró­sent hlut í Sam­herj­a­sam­stæð­unni. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Færeyjum. Þor­steinn Már er helsti skráði stjórn­andi þess félags.

Stórir í Högum og Eimskip

Hlut­hafa­fundir Samherja sam­þykkti 11. maí 2018 að Sam­herj­a­sam­stæð­unni yrð­i­s­kipt upp í tvennt. Skipt­ingin var látin miða við 30. sept­em­ber 2017. Eftir það er inn­lendu starf­sem­in og starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­ar­hlutir Sam­herja í dótt­ur­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­fest­inga­fé­lagi á Íslandi.

Félögin tvö stunda ekki ein­ungis við­skipti með sjáv­ar­af­urðir. Samherji hf. á til að mynda stóran hlut í smá­söluris­anum Hög­um, en það er fjórði stærsti hlut­hafi þess með 9,26 pró­sent eign­ar­hlut. Samherji Holding ehf. er síðan stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­skip, með 27,1 pró­sent eign­ar­hlut. Bald­vin Þor­­steins­­son, sonur Þor­­steins Más og fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður Eim­skips og í jan­úar í ár var Vil­helm Már Þor­steins­son, frændi þeirra, ráð­inn sem for­stjóri skipa­fé­lags­ins.

Ófjárhagslegar upplýsingar

Síðasta blað­síðan í árs­reikn­ingum beggja félaga sam­stæð­unnar, Samherja hf. og Samherja Holding ehf., er und­ir­lögð undir ófjár­hags­lega upp­lýs­inga­gjöf. Þar er meðal ann­ars greint frá því að félög innan sam­stæð­unnar hafi und­an­farið unnið að marg­vís­legum stefnum og áætl­unum sem eigi það sam­merkt að styðja beint eða óbeint hver við aðra. „ Má þar nefna inn­leið­ingu á við­bragðs­á­ætlun gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu áreiti og ofbeldi, mann­rétt­inda­stefnu, stefnu í vinnu­verndar- og örygg­is­málum, jafn­rétt­is­á­ætlun, per­sónu­vernd­ar­stefnu og fleira. Vinna við fram­an­greindar stefnur og áætl­anir er vel á veg komin og er stefnt að því að þær verði inn­leiddar á árinu 2019.“

[adspot]Þar kemur fram að vinna standi yfir við gerð mann­rétt­inda­stefnu Samherja og Samherja Holding sem miði að því að tryggja að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóti mann­rétt­inda án til­lits til kyn­ferðis, kyn­hneigðar, trú­ar­bragða, skoð­ana, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­þáttar, lit­ar­háttar, efna­hags, ætt­ernis og stöðu að öðru leyti. „Engum skal haldið í nauð­ung­ar­vinnu eða barna­þrælkun og hafnar Samherji hvers kyns þræl­dómi, nauð­ung­ar­vinnu og man­sali.“

Sam­herj­a­sam­stæðan seg­ist telja að sam­fé­lags­leg ábyrgð sé ekki ein­ungis ábyrgð heldur að í henni felist einnit tæki­færi til að bæta vel­ferð nær­sam­fé­lags­ins. „Sam­stæðan leggur sitt af mörkum til að efla kom­andi kyn­slóðir og stuðla að fram­förum í sam­fé­lag­inu og hefur Samherji veitt styrki til ýmissa sam­fé­lags­verk­efna.“

Fjallað um siðferði, spillingu og mútur

Þá er sér­stak­lega fjallað um sið­ferði, spill­ingu, mútur og mann­rétt­indi í árs­reikn­ing­unum.

Þar segir að Sam­herj­a­sam­stæðan virði „almenn mann­rétt­indi, rétt allra til félaga­frelsis og kjara­samn­inga. Áhersla er lögð á að verk­takar og und­ir­verk­takar fari eftir gild­andi lögum er varðar alla sína starfs­menn, hvort sem það eru þeirra laun­þegar eða eigin und­ir­verk­takar.“ Sam­stæðan hafi þó ekki sett sér skrif­leg við­mið um sið­ferði, spill­ingu, mann­rétt­indi eða mútur en að vinna við það hafi verið í gangi og ljúki vænt­an­lega á árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár