Snúin staða

Ísland er allt annarri stöðu en flest lönd í Evrópu, Asíu og Norður- og Suður-Ameríku, þegar kemur að einum þætti: fjár­mála­kerf­inu. Einum ára­tug eftir fjár­mála­hrunið stendur það traustum fótum, og búið að hreinsa út ónýt og slæm útlán. Þetta hefur ekki ve

Blaða­menn­irnir Jenna Randow og Alessandro Speciale, sem starfa fyrir Bloomberg, sendu frá sér ítar­lega grein 27. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, þar sem fjallað var um stöð­una í Evrópu síðla árs 2012, og hversu litlu mun­aði að það færi illa í álf­unni á þeim tíma.

Fyrir sex árum höfðu áhyggjur af efna­hags­vanda í Evrópu stig­magn­ast, með til­heyrr­andi hækkun á vaxta­á­lagi þjóð­ríkja og fyr­ir­tækja, og var margt farið að benda til þess að hálf­gert hrun væri framundan, með til­heyr­andi hörm­ungum fyrir almenn­ing. Ekki síst var staðan við­kvæm í Suður-Evrópu, þar sem atvinnu­leysi var hátt og óvissa um hvernig ætti að bjarga gríska hag­kerf­inu var við­var­andi.

Maður er nefndur Mario Draghi, dokt­or­s­mennt­aður hag­fræð­ingur frá MIT, en hann er for­seti banka­stjórnar Seðla­banka Evrópu. Með dramat­ískum hætti leiddi hann fram stefnu bank­ans, og hjó á hnúta sem voru að mynd­ast, bæði í innri póli­tík seðla­bank­ans, en ekki síður á mark­aðnum.

Í grein Randow og Speciale er frá því greint, að það hafi verið að grípa um sig tauga­veiklun innan bank­ans, en Draghi hafði skýra sýn á hlut­ina, og tal­aði fyrir henni. Hún var ein­föld, en áhrifa­mikil í senn: Evran yrði varin, alveg sama hvað gengi á. Hann lét orðin falla 26. Júlí 2012, og frá þeim degi mark­aði hann mikil spor í efna­hags­stefn­una í Evrópu.

Tiltrú fæddist

Hvers vegna skipti þetta miklu máli? Var þetta ekki aug­ljóst? Hvað þýddi þetta fyrir alþjóða­mark­aði?

Allt frá þess­ari yfir­lýs­ingu, sem sett var fram opin­ber­lega og í stefnu­yf­ir­lýs­ingu bank­ans, var allt í einu kom­inn ein­hvers konar björg­un­ar­hringur fyrir fjár­festa í Evrópu. Vaxta­á­lag fór hratt niður, fjár­fest­ing efldist. Tiltrú mynd­að­ist á því að evru­svæðið myndi ekki lið­ast í sundur.

En hlut­verk Seðla­bank­ans stór­efldist, við að halda hjól­unum gang­andi. Hinn 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn lauk umfangs­mik­illi áætlun seðla­bank­ans, sem hefur falist í því að fjár­festa fyrir um 60 millj­arða evra í skulda­bréfum fyr­ir­tækja, sveit­ar­fé­laga og þjóð­ríkja, með það að mark­miði að örva hag­vöxt í álf­unni. Umfangið hefur verið gríð­ar­legt, eins og töl­urnar gefa til kynna.

Margir ótt­ast nú, að tjöldin muni falla, og að nýr og erf­ið­ari veru­leiki taki við hjá þeim ríkjum sem ekki hafa nýtt tím­ann til þess að taka til. Sér­stak­lega bein­ast spjótin að stórum evr­ópskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem mörg hver eru enn í vand­ræðum og með mörg löskuð útlán í sínum eigna­söfnum, jafn­vel þó ára­tugur sé nú lið­inn frá því að fjár­málakreppa skall á mörk­uðum um allan heim.

Búast má við því að vextir fari hækk­andi hjá Seðla­banka Evrópu á næst­unni, og verð­bólgu­draug­ur­inn fari á stjá. Erfitt er þó um þetta að spá, en flestir grein­endur búast við því að það verði breyttur og erf­ið­ari veru­leiki fyrir marga að takast á við, þegar örvandi fjár­fest­inga seðla­bank­ans stoppa.

Atvinnu­leysi er nú komið niður í um 7 pró­sent í Evrópu, og hag­vöxtur hefur verið á bil­inu 1 til 2 pró­sent. Þetta er mikil breyt­ing frá árið 2012 þegar atvinnu­leysi mæld­ist um 11 pró­sent að með­al­tali, og hag­vöxtur var lít­ill sem eng­inn. Út frá þessum mæli­kvarða þá hafa þessar gríð­ar­lega umfangs­miklu fjár­fest­ingar seðla­bank­ans náð mark­miði sínu.

Ísland í bómull

Á meðan, á Íslandi. Staða end­ur­reistu bank­anna þriggja, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans, gæti vart verið ólík­ari heldur en hjá mörgum evr­ópskum og alþjóð­legum bönkum, þessi miss­erin. Hrunið - og þá einkum neyð­ar­lögin og fram­kvæmd fjár­magns­haft­anna - mark­aði upp­hafið að ein­hverri lygi­leg­ustu „hreinsun“ á efna­hags­reikn­ingum í heilu fjár­mála­kerfi sem farið hefur fram. Ónýt lán eru svo til alveg farin úr efna­hags­reikn­ingum íslensku bank­ana, en van­skila­hlut­fall er lítið sem ekk­ert.

Í hvít­bók­inni um fram­tíð­ar­sýn fyrir íslenska fjár­mála­kerfið, sem starfs­hópur stjórn­valda sendi frá sér á dög­unum og fjallað var ítar­lega um í Mannlífi og á vef Kjarnans fyrir tveimur vikum, sést glögg­lega hversu sterkt - og jafn­framt ein­angrað - íslenska fjár­mála­kerfið er. Sam­an­lagt eigið fé þriggja stærstu bank­anna er yfir 600 millj­arðar króna, og eig­in­fjár­hlut­fallið á bil­inu 20 til 25 pró­sent. Starf­semin er svo til alveg ein­angruð við Ísland, og ekki útlit fyrir að það breyt­ist í bráð, nema þá að óveru­legu leyti.

Samhliða þess­ari end­ur­reisn hefur það gerst, að skulda­staða þjóð­ar­bús­ins við útlönd hefur tekið algjörri kúvend­ing til hins betra.

Í nýlegri til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands var þessi ein­staka staða gerð að umtals­efni, en fá dæmi eru um við­líka stöðu meðal þró­aðra ríkja sem Ísland er venju­lega borið saman við. Þetta er ekki eðli­leg staða.

Á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 var 76,5 millj­arða afgangur á við­skipta­jöfn­uði við útlönd. Halli á vöru­skipta­jöfn­uði var 43,7 millj­arðar en afgangur á þjón­ustu­jöfn­uði var 123,7 millj­arðar, og munar þar mikið um hversu umfangs­mikil ferða­þjón­usta er orðin.

Samkvæmt bráða­birgða­yf­ir­liti námu erlendar eignir þjóð­ar­bús­ins 3.380 millj­örðum króna í lok árs­fjórð­ungs­ins en skuldir 3.012 millj­arðar. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 368 millj­arða króna eða 13,3% af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) og batn­aði um 162 millj­arða króna.

Hrein fjár­magns­við­skipti bættu erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins um 86 millj­arða á fjórð­ungnum. Erlendar eignir juk­ust um 17 millj­arða króna vegna fjár­magns­við­skipta en skuldir lækk­uðu um 69 millj­arða króna.

Þessi staða sýnir í raun, að Ísland er ekki aðeins í góðri stöðu, heldur um margt ein­stakri.

Rætist úr vanda í ferðaþjónustu?

En nú þegar 2019 er handan við hornið eru engu að síður ógnir í kort­unum. Helst má nefna að end­ur­skipu­lagn­ing í flug­iðn­aði muni skapa erf­ið­leika í ferða­þjón­ustu, og að kjara­við­ræður muni enda með illindum og verk­föllum. Slík staða getur verið erfið fyrir þjóð­ar­búið, og leitt til erf­ið­leika í efna­hags­mál­unum, eins og mörg dæmi úr sög­unni sanna.

Þrátt fyrir að mik­ill skjálfti hafi verið á mörk­uðum, eftir að erf­ið­leikar WOW air komu upp á yfir­borðið, þá virð­ist meira traust vera fyrir hendi um þessar mundir. Til­kynn­ing Icelandair um að félagið sé til­búið að auka veru­lega fram­boð flug­sæta, hefur haft róandi áhrif innan ferða­þjón­ust­unnar, en WOW air og Indigo Partners eiga enn í samn­inga­við­ræðum um mögu­lega fjár­fest­ingu síð­ar­nefnda félags­ins. Vonir standa til þess að hún gangi eftir, en ljóst er að félagið mun draga veru­lega saman seglin, eins og það hefur þegar til­kynnt um.

Sam­drátt­ur­inn jafn­gildir því að um 180 til 290 þús­und færri erlendir ferða­menn komi til lands­ins á ári, sé miðað við stöð­una eins og hún var í fyrra, en WOW air hefur flutt á bil­inu 600 til 700 þús­und erlenda ferða­menn hingað til lands á und­an­förnum árum. Til að setja þá tölu í sam­hengi, þá komu hingað til lands­ins um 450 þús­und erlendir ferða­menn árið 2010 en í fyrra voru þeir um 2,7 millj­ónir.

Þetta eru miklar stærðir, og ljóst að sam­dráttur getur haft mikil áhrif. Aðilar í ferða­þjón­ustu bera sig hins vegar vel, og virð­ast pant­anir gisti­staða og hót­ela fyrir kom­andi ár vera í ágætu horfi, miðað við síð­ustu ár. Auk þess er breyt­ing að eiga sér stað á mark­aði með gist­ingu, þar sem færri ferða­menn sækja í Airbnb gist­ingu um þessar mundir, á sama tíma og fram­boð hót­elgist­ingar, einkum í Reykja­vík, hefur auk­ist mikið.

Stál í stál

Í kjara­við­ræð­unum hefur dregið til tíð­inda að und­an­förnu þar sem Starfs­greina­sam­bandið, VR og Efling eru ekki alveg sam­stíga í samn­inga­við­ræð­unum við atvinnu­rek­endur. Þetta hefur leitt til þess að VR og Efling ganga nú í takti við Vilhjálm Birg­is­son og félagið sem hann er í for­svari fyrir, Verka­lýðs­fé­lag Akraness. Þessi þrjú fyrr­nefndu félög hafa vísað kjara­deilu sinni við Samtök atvinnu­lífs­ins til rík­is­sátta­semj­ara.

Ástæðan fyrir því að samn­ings­um­boð Starfs­greina­sam­bands­ins var aft­ur­kallað er tví­þætt. Annars vegar að meiri­hluti for­manna SGS vildu ekki að VR og SGS mynd­uðu sam­eig­in­lega samn­inga­nefnd en það var mat þess­ara félaga að slíkt myndi „klár­lega styrkja samn­ing­stöð­una umtals­vert“, eins og sagði í til­kynn­ingu, enda hefði SGS og VR verið með um 75% félags­manna innan ASÍ á bak­við sig.

Síðara atriðið laut að því að meiri­hluti Starfs­greina­sam­bands­ins vildi ekki vísa deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara þrátt fyrir að Samtök atvinnu­lífs­ins „hafi ekki lagt neitt á borðið hvað lýtur að spurn­ing­unni um svig­rúm til launa­breyt­inga og því til við­bótar hefur skiln­ings­leysi stjórn­valda að þess­ari kjara­deilu verið algert og hafa þau engu svarað um þær kröfur sem verka­lýðs­hreyf­ingin gerir á stjórn­völd.“

Óhætt er að segja að mikil gjá sé á milli þeirra sem nú sitja við samn­inga­borðið, þegar kemur að kröfum. Atvinnu­rek­endur telja að svig­rúmið til launa­hækk­ana sé á bil­inu 1 til 4 pró­sent, en for­ystu­fólk stærstu stétt­ar­fé­lag­anna hefur kynnt kröfu­gerð þar sem farið er fram á 20 til 30 pró­sent hækkun lægstu launa, og grunn­hækkun lægstu launa úr 300 þús­und í 425 þús­und. Auk þess hefur verið gerð krafa um mikla aðkomu stjórn­valda, meðal ann­ars með því að breyta skatt­kerf­inu þannig að það þjóni betur þeim sem lægstu launin hafa. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega að und­an­förnu, fyrir að sýna kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar ekki meiri skiln­ing.

Drífa Snædal forseti ASÍ
Drífa Snædal for­seti ASÍ

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, hefur hamrað á því í sínum mál­flutn­ingi, að besta leiðin til að koma til móts við það fólk sem lægstu launin hefur, sé að breyta skatt­kerf­inu. Í grein sem hún skrif­aði í Við­skipta­blaðið, sem birt­ist á Þor­láks­messu, segir hún skýrt að skatt­kerfið sé það sem rýna þurfi í, til að bæta hag fólks­ins á gólf­inu. „Besta leiðin til að rétta kjör fólks og jafna þau er að breyta skatt­kerf­inu. Að mínu mati þarf kerfið ekki að vera ein­falt en það þarf að virka bæði sem tekju­öfl­un­ar­tæki og jöfn­un­ar­tæki. Alþýðu­sam­bandið hefur með óyggj­andi hætti sýnt fram á að skattar hafi hækkað hjá lægst laun­aða fólk­inu en lækkað hjá þeim sem hæstar hafa tekj­urnar ef litið er aftur um 30 ár. Þetta þarf að leið­rétta. Það er líka alger­lega óásætt­an­legt að ákveð­inn hópur í sam­fé­lag­inu sem rekur sitt eigið fyr­ir­tæki og skammtar sér fjár­magnstekjur í hærra hlut­falli en laun, geti fengið veru­legan skatta­frá­drátt þar sem fjár­magns­skattur er lægri en tekju­skattur. Það má eng­inn vera stikk­frí þegar kemur að því að greiða í sam­eig­in­lega sjóði. Mitt mat er að vet­ur­inn framundan ráð­ist af því hvort stjórn­völd komi með aðgerðir sem um munar í skatta- og hús­næð­is­málum. Nú þegar er hús­næð­is­hópur á vegum stjórn­valda að störfum sem skilar af sér í jan­úar en skatta­málin standa út af. Þessi tvö mál munu skipta sköpum fyrir jöfnuð, jafn­rétti og sann­girni. Það er stjórn­valda ekki síður en atvinnu­rek­enda að mæta miklum vænt­ingum og kröfum um raun­veru­legar breyt­ingar,“ sagði Drífa.

Spjótin beinast að fasteignamarkaðnum

Hús­næð­is­málin hafa verið mikið til umræðu að und­an­förnu í tengslum við kjara­við­ræður. Miklar verð­hækk­anir á hús­næði hafa ein­kennt fast­eigna­markað á Íslandi und­an­farin fimm ár. Hápunkt­inum hefur vafa­lítið verið náð, í þeim efnum, en fast­eigna­verð fer enn hækk­andi, sé horft til mæl­inga Þjóð­skrár Íslands. Á vor­mán­uðum 2017 mæld­ist árs­hækkun á hús­næði 23,5 pró­sent, en hún mælist nú um 4 pró­sent.

Blikur eru á lofti á mark­aðnum, þar sem búist er við því að um 5 þús­und nýjar íbúðir komi út á markað á næstu 18 mán­uðum. Þetta gæti leitt til offram­boðs á mark­aðnum, sem ætti þá að leiða til lækk­unar á fast­eigna­verði. En eitt af því sem óvissa er um er hversu mikið þarf að byggja til að skapa meira jafn­vægi á mark­aðnum. Í nýlegri hag­sjá Lands­bank­ans var þetta gert að umtals­efni og bent á að ekki væri skýrt hversu mikil þörf væri fyrir hús­næð­is­upp­bygg­ingu.

Grein­endum ber ekki saman um hversu mikið þarf að byggja, og þá væri einnig erfitt að segja til um hvernig þró­unin yrði á næst­unni, þegar kæmi að eft­ir­spurn eftir hús­næði. Mikið væri byggt á dýrum svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, meðal ann­ars í mið­borg­inni, en eft­ir­spurnin væri frekar eftir ódýr­ari eignum, og þá einkum litlum og með­al­stórum íbúðum.

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur talað fyrir því að stjórn­völd eigi aðkomu að hús­næð­is­mál­unum, og liðki meðal ann­ars fyrir því að staða leigj­enda batni og fyrstu kaup­enda sömu­leiðis.

Möguleiki á góðri lendingu

Þrátt fyrir að staða efna­hags­mála nú í byrjun nýs árs, sé um margt snúin þá eru for­sendur fyrir góðri lend­ingu, eftir mik­inn upp­gang síð­ustu ára, fyrir hendi. Sterk staða rík­is­sjóðs og fjár­mála­kerf­is­ins getur skipt miklu máli á næst­unni þar sem tölu­verð óvissa er um þróun mála á alþjóða­mörk­uðum. Þá skiptir máli að vera með sterkar und­ir­stöður. En alveg eins og hingað til í hag­sögu Íslands, þá er það útflutn­ingur, bæði á vörum og þjón­ustu, sem mun skipta sköpum fyrir Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár