Mynd: Mannlíf

Nýr veruleiki á markaði

Ýmsir ótt­ast að ládeyða á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði sé komin til að vera, ef fjár­fest­ingar glæð­ast ekki með meiri áhuga fjár­festa. Sé litið til baka þá kunna fjár­magns­höftin að hafa verið áhrifa­meiri fyrir efna­hags­lífið en margir átt­uðu sig á.

Sé horft fram hjá gengi Marel í kaup­höll­inni, sem hefur hækkað um tæp­lega 50 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, mest í aðdrag­anda skrán­ingar í Euronext kaup­höll­ina í Amster­dam, og er rúm­lega 450 millj­arða virði, þá hefur verið fátt um fína drætti og ávöxtun verið lítil sem engin að með­al­tali.

Ástæðan er meðal ann­ars minni eft­ir­spurn en var þegar fjár­magns­höftin voru fyrir hendi, en þá voru líf­eyr­is­sjóðir dug­legri við að kaupa hluta­bréf, eins og eðli­legt er meðan mark­að­ur­inn var að byggj­ast upp eftir alls­herj­ar­hrun haustið 2008.

Fjármagn líf­eyr­is­sjóð­anna gat ekki leitað út úr hag­kerf­inu, á meðan höftin voru fyrir hendi - á árunum 2008 til 2016. Á þessu tíma­bili hækk­aði fast­eigna­verð einnig mikið - um tæp­lega 50 pró­sent á árunum 2013 til 2018, og mikið fjár­magn var í umferð.

Þegar höftin voru afnumin að mestu árið 2016 þá breytt­ust aðstæður mikið. Erlendir fjár­festir sýndu hag­kerf­inu auk­inn áhuga á nýjan leik, til skamms tíma, en á móti kom að fjár­festar, ekki síst líf­eyr­is­sjóðir, færðu fjár­magn út fyrir land­stein­anna.

Segja má að ákveð­inn hápunktur hafi verið á því mikla hag­vaxt­ar­skeiði sem var á hafta­tíma­bil­inu um það leyti sem höftum var aflétt. Um fjórum mán­uðum eftir að til­kynnt var um afnámið þá mæld­ist árs­hækkun fast­eigna­verðs 23,5 pró­sent, og var þá mesta hækkun meðal þró­aðra ríkja í heim­inum. Gengi krón­unnar hafði einnig styrkst jafnt og þétt, enda jókst umfangið í hag­kerf­inu á þessum tíma, ekki síst.

Sé horft aftur til árs­ins 2016 þá er staðan svipuð nú og hún var, að frá­dregnu gengi Marels. Með­al­tals­á­vöxtun þeirra félaga sem eru á aðal­l­ista hefur verið lítil sem engin, nálægt núlli. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur þetta valdið nokkrum áhyggjum hjá fjár­festum að und­an­förnu, þar sem ávinn­ing­ur­inn af hinum skráða mark­aði hefur ekki verið nægi­lega mik­ill. Hafa einka­fjár­festar rætt þetta sín á milli og velt því fyrir sér hvort best sé að afskrá félög.

Á sér skýringar

Verð­mið­inn á félög­unum er einnig fremur lágur, í alþjóð­legum sam­an­burði. Verðið er að með­al­tali um 1,4 sinnum eigið fé, en algengt er í alþjóð­legum kaup­höllum að með­al­talið sé nærri þrír. Kjarninn hefur fylgst náið með þessu við­miði und­an­farin fimm ár, og hefur það hæst farið í 1,6 sinnum eigið fé á því tíma­bili.

Það er vissu­lega ólíku saman að jafna, þegar kemur að félögum í inn­lendri starf­semi á Íslandi og síðan stærri félög í alþjóð­legri starf­semi, en engu að síður gefa svona með­al­töl ákveðna vís­bend­ingu um hvernig fjár­festar horfa til rekst­urs félag­anna.

En þó verð­miðar hafi ekki hækkað mikið þá hefur margt annað spilað inn í en áhuga­leysi fjár­festa. Frekar er lík­legt að bjög­unin sem fylgdi fjár­magns­höft­unum, hafi ýtt undir eigna­verð - bæði hluta­bréfa og fast­eigna - og síðan hafi aðlög­unin orðið nokkuð aug­ljós­lega niður á við eftir að höftin voru losuð.

Erlendir fjár­festar hafa komið inn, en þó ekki í sama mæli og hefði verið æski­legt til að vinna upp á móti breyttri fjár­fest­inga­hegðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem eru bak­beinið í hluta­bréfa­mark­aðnum með rúm­lega helm­ing allra hluta­bréfa á mark­aði sem eig­endur.

Vantar fleiri félög

Lífeyrir lands­manna nemur sam­tals um 4.800 millj­örðum króna þessi miss­eri. Þar af voru eignir sam­trygg­inga­deilda 4.308 millj­arðar króna og sér­eigna­deilda 490 millj­arðar Inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða námu 3.418 millj­örðum. Þar af voru inn­lán í inn­lendum inn­láns­stofn­unum 167 millj­arðar króna og inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf 3.115 millj­arðar. Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða voru 1.379 millj­arðar í lok ágúst.

Að mati við­mæl­enda Kjarnans er helsti veik­leika íslenska mark­að­ar­ins ekki endi­lega bundin við að ekki sé nægi­leg velta, heldur frekar að meiri áhugi þurfi að koma erlendis frá. Þannig sé hægt að ýta undir betri ávöxtun og einnig fleiri mögu­leika og nýsköpun í atvinnu­líf­inu almennt.

Baldur Thorlacius, við­skipta­stjóri hjá Nasdaq, gerði þetta að umtals­efni í grein á vef Kjarnans á mið­viku­dag, og sagði þar að sam­an­burður við erlendar kaup­hallir sýndi að veltan á íslenska mark­aðnum væri hlut­falls­lega ekki lítil. 

Veltu­hrað­inn (velta miðað við stærð fyr­ir­tækja) það sem af er ári 54 pró­sent að með­al­tali fyrir stór fyr­ir­tæki á Íslandi en 54 – 62 pró­sent á hinum nor­rænu kaup­höllum Nasdaq. Þá er hann 71 pró­sent í sam­an­burði við 21 – 60 pró­sent fyrir með­al­stór fyr­ir­tæki og 69 pró­sent sam­an­borið við 19 – 41 pró­sent fyrir lítil fyr­ir­tæki.

„Það er því varla hægt að kvarta undan veltu með hvert og eitt félag. Flest íslensk fyr­ir­tæki telj­ast aftur á móti lítil á alþjóð­legan mæli­kvarða og skráð félög eru of fá, sem skýrir lík­lega þennan mis­skiln­ing. Það vantar ein­fald­lega fleiri félög á markað til þess að auka heild­ar­velt­una. Það vantar fleiri lítil og með­al­stór nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki á markað til þess að skapa áhuga­verð störf og nýta þau fjöl­mörgu tæki­færi sem leyn­ast í íslensku hug­viti. Það vantar fleiri stór fyr­ir­tæki á markað til þess koma Íslandi betur á kortið hjá alþjóð­legum stofn­ana­fjár­festum. Þetta mun seint ger­ast ef við höldum áfram að dreifa rang­færslum um lélega veltu og tala niður skrán­ingar á markað,” segir meðal ann­ars í grein Baldurs.

Að hans mati þurfi frekar að leita leiða til koma fleiri fyr­ir­tækjum á markað.

„Íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn stendur að mörgu leyti traustum fótum í dag en það er margt sem má betur fara. Við þurfum að greiða leið nýrra fyr­ir­tækja inn á markað svo íslenskt atvinnu­líf geti blómstrað og við þurfum að fá almenn­ing og erlenda fjár­festa inn af meiri krafti til þess að fá fjöl­breytt­ari skoð­ana­skipti og njóta betur „visku fjöld­ans“, svo dæmi séu tekin,” segir í grein Baldurs.

Enn fremur segir að það ætti að vera for­gangs­at­riði, að efla skráðan markað frekar en að tala hann niður að óþörfu. „Það hefur sjaldan verið mik­il­væg­ara en nú að stjórn­völd, atvinnu­lífið og fjár­mála­kerfið taki höndum saman um að efla hluta­bréfa­mark­að­inn, þegar hag­kerfið er komið á brems­una og bankar eru farnir að draga úr útlán­um. Hættum að tala niður það sem gengur vel og göngum strax í að bæta það sem bæta má.“

Hagræðing og einangrun?

Eins og rakið var í frétta­skýr­ingu á þessum vett­vangi fyrir skemmstu undir fyr­ir­sögn­inni; Hvað er að ger­ast í hag­kerf­inu?, þá bendir margt til þess að tölu­verður hæga­gangur sé nú í hag­kerf­inu.

Mikill sam­dráttur hefur verið í inn­flutn­ingi, eða um sem nemur 9 pró­sentum miðað árið í fyrra, og einka­neysla hefur dreg­ist tölu­vert saman.

Í sam­tölum við sér­fræð­inga og grein­endur á fjár­mála­mark­aði, mátti greina tölu­verðar áhyggjur af þess­ari stöðu, jafn­vel þó und­ir­stöð­urnar í hag­kerf­inu væru traustar, það er að skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja væru ekki of miklar.

Það sé kom­inn upp nýr veru­leiki sem erfitt sé að lesa í hvernig muni þró­ast. Þó stýri­vaxta­lækk­anir séu af hinu góða, og í takt við Lífs­kjara­samn­inga aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda, þá er það ládeyðan á mark­aði - ekki síst hluta­bréfa­mark­aðnum - sem við­mæl­endum fannst gefa til­efni til þess að ákveð­inn doði sé að mynd­ast í hag­kerf­inu, eins og er víða vanda­mál í heim­inum um þessar mundir.

Hag­vaxt­ar­spár gera ráð fyrir litlum sem engum hag­vexti á þessu ári, eftir 4,6 pró­sent hag­vöxt í fyrra. Á næsta ári mun hag­kerfið taka við sér aftur, að mati flestra grein­enda. Það er hins vegar háð því að það tak­ist að spyrna við fótum.

Eins og staðan er núna, virð­ist lík­legt að vet­ur­inn muni ein­kenn­ast af frek­ari hag­ræð­ingu, með fækkun starfa og breyt­ingum í hag­kerf­inu. Það er ekki víst að það heyr­ist mikið af því í formi hóp­upp­sagna, heldur frekar að fyr­ir­tæki muni draga saman seglin - í eilífri leit að betri rekstr­ar­grund­velli.

Þá eru áhrifin af auk­inni sjálf­virkni­væð­ingu einnig ekki hluti af ein­hverri fjar­lægðri fram­tíð, heldur má sjá slíka þróun glögg­lega í nýjum samn­ingum fyr­ir­tækja. Í vik­unni var til­kynnt um kaup Brims á tækjum og tækni frá Marel, sem mun gera bol­fisk­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins þá full­komn­ustu í heimi.

Hún mun þurfa mun færri hendur en hún gerir núna, en um leið verða afkasta­meiri og stuðla að betri nýt­ingu hrá­efnis. Þó íslenskur sjáv­ar­út­vegur hafi lengi verið á þess­ari veg­ferð - með auk­inni vél­væð­ingu og sjálf­virkni - þá má gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram á næst­unni, af meiri hraða og krafta en und­an­farin ár.

Fyrir rúm­lega 200 þús­und manna vinnu­mark­að­inn á Íslandi, þá getur hvert til­felli þar sem störfum fækkar tölu­vert í einni svipan með auk­inni tækni og sjálf­virkni, valdið titr­ingi, t.d. hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni, eins og eðli­legt er.

Efling og sala á ríkiseignum

Stjórn­völd hafa það á stefnu­skránni að selja Íslands­banka og lengi vel var horft til þess að selja einnig stóran hluta af eign­ar­hlut í Lands­bank­anum, en halda eftir 30 til 40 pró­sent hlut.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur verið rætt um það að und­an­förnu, að horfa til hluta­bréfa­mark­að­ar­ins þegar kemur að sölu. Það er að skrá Íslands­banka á markað, og selja þannig eign­ar­hlut í bank­anum. Í fyrstu væri það ekki allur bank­inn, heldur frekar að hefja sölu­ferlið með því að selja hluta í bank­anum, til dæmis 10 til 15 pró­sent, og stíga þannig skrefið sem til­tekið er í stjórn­ar­sátt­mála Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Í honum segir: „Fjár­mála­kerfið á að vera traust og þjóna sam­fé­lag­inu á hag­kvæman og sann­gjarnan hátt. Eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum er það umfangs­mesta í Evrópu og vill rík­is­stjórnin leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að rík­is­sjóður verður leið­andi fjár­festir í að minnsta kosti einni kerf­is­lega mik­il­vægri fjár­mála­stofnun.”

Þá er einnig kveðið á um að hvít­bókin um fjár­mála­kerfið - sem þegar hefur verið skilað og hún kynnt opin­ber­lega - sé leið­ar­vísir um hvernig eigi að móta stefnu fjár­mála­kerf­is­ins til fram­tíðar litið.

„Leið­ar­ljósin í vinnu við hvít­bók­ina verða aukið traust á íslenskum fjár­mála­mark­aði, aukið gagn­sæi og fjár­mála­stöð­ug­leiki. Þótt mik­il­vægar umbætur hafi verið gerðar á lagaum­hverfi fjár­mála­fyr­ir­tækja er brýnt að gera betur. Eign­ar­hald á kerf­is­lega mik­il­vægum fjár­mála­stofn­unum verður að vera gagn­sætt. Rík­is­stjórnin vill að unnið verði að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu með það að leið­ar­ljósi að lækka kostnað neyt­enda. Mik­il­vægt er að dregið sé úr áhættu vegna óskyldra þátta í starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja. Í mótun að fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lagi skal sér­stak­lega litið til ann­arra lít­illa opinna hag­kerfa og reynslu ann­ars staðar á Norð­ur­löndum,” segir í stjórn­ar­sátt­mál­anum.

Í henni er fjallað um hvernig ríkið geti losað um eign­ar­hald sitt, og sér­stak­lega vikið að skrán­ingu á markað sem mögu­leika. Ljóst er að slík leið myndi stór­efla skráðan markað hér á landi.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur markað sér þá skýru stefnu að vilja selja hluti í ríkisbönkum. Mynd: Birgir Þór
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur markað sér þá skýru stefnu að vilja selja hluti í rík­is­bönkum. Mynd: Birgir Þór

En það er samt ekki ólík­legt að um þessi skref verið harka­lega deilt í stjórn­málum. Í stefnu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru afar ólíkar áherslur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með skýra stefnu um að vilja selja eign­ar­hluti í rík­is­bönk­unum, en það á ekki við um Fram­sókn­ar­flokk­inn og Vinstri græn.

Þar er meira horft til þess að móta ramma um fjár­mála­kerfið þar sem almanna­hags­muni ráði ferð­inni, og að skilið sé á milli fjár­fest­inga- og við­skipta­banka­starf­semi. Það er helst að það sé stjórn­ar­sátt­málin sem sé leið­ar­stefið sem horfa þurfi til, en eins og fyrr segir er þar ekki að finna skýra leið­sögn um hvernig eigi að standa að málum.

Mikil verð­mæti liggja í rík­is­bönk­unum. Sam­an­lagt eigið fé þeirra er um 415 millj­arðar, þar af 175 millj­arðar hjá Íslands­banka og 240 millj­arðar hjá Lands­bank­anum. 

Sé horft til mark­aðsvirðis bank­anna, miðað við verð­mið­ann á Arion banka - sem skráður er á markað á Íslandi og í Svíþjóð, og hefur stöðu kerf­is­lægs mik­il­vægs banka eins og hinir tveir fyrr­nefndu - þá er virði bank­anna um 280 millj­arðar króna. Sala á 10 pró­sent hlut í Íslands­banka, miðað við fyrr­nefnt verð (0,67 sinnum eigið fé) gæti skilað rúm­lega 11,7 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann.

Sá nýi veru­leiki sem er uppi er í hag­kerf­inu - með meiri hæga­gangi og ládeyðu á mörk­uðum - gerir tíma­setn­ingu til sölu hins vegar erf­iða. Bankar eru ekki vin­sælir til kaups á alþjóða­mörk­uðum þessi miss­erin, þvert á móti. Við­mæl­endur Kjarnans bentu enn fremur á að breyt­ingar á sam­keppn­is­lögum, sem nú hafa verið boð­aðar, gætu auð­veldað hag­ræð­ingu á fjár­mála­mark­aði, t.d. með því að opna á sam­ein­ingu kerf­is­lægt mik­il­vægra banka sem til þessa hefur verið álit­inn fjar­lægur mögu­leiki vegna sam­keppn­islaga.

Þeir eru flestir að hag­ræða í rekstri og laga sig að nýjum tímum auk­innar tækni og sjálf­virkni, enda hefur nýtt reglu­verk í Evrópu sem opnar á greiðslu­miðlun fjár­tækni­fyr­ir­tækja, leitt til mik­illa breyt­inga sem ekki sér fyrir end­ann á. Ólíkt alþjóð­legum bönkum - og banka­kerf­inu fyrir hrun - þá er íslenska banka­kerfið hins vegar nær ein­göngu bundið við Ísland í þetta skiptið, og þykir nokkuð traust, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem koma fram í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands. Þá á að þola áföll í atvinnu­lífi, þar sem eig­in­fjár­kröfur FME eru háar og gefa svig­rúm til að takast á við erf­ið­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár