Hvað er eiginlega að gerast í hagkerfinu?

Það má til sanns vegar færa að staðan í íslenska hag­kerf­inu sé góð, eins og stjórn­mála­menn hafa haldið fram að und­an­förnu. En það er líka ekki gott að átta sig á því hvernig staðan er í raun og veru.

Virði afla­heim­ilda í land­inu, miðað við síð­ustu við­skipti með þær, er nú um 1.200 millj­arðar króna. Það er sam­bæri­legt og virði eigna orku­fyr­ir­tækj­anna í land­inu, en það nemur nú um 1.200 millj­örðum. Þar af er virði eigna Lands­virkj­unar, miðað við bók­fært verð, 562 millj­arðar, og virði eigna Orku­veitu Reykja­víkur, 340 millj­arðar.

Þá nemur sam­an­lagt mark­aðsvirði skráðu félag­anna á aðal­l­ista kaup­hall­ar­innar um 1.200 millj­örðum. Útlán Lands­bank­ans til við­skipta­vina og lána­stofn­ana, nema sam­an­lagt sömu upp­hæð; um 1.200 millj­örðum. Sam­an­lagt eru þetta 4.800 millj­arðar króna, sem er sam­bæri­legt og sem nemur heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóð­anna, en þeir eiga um helm­ing af öllum skráðum hluta­bréfum í kaup­höll­inni.

Önnur deild

Þessar tölur gefa ákveðna mynd af und­ir­liggj­andi verð­mætum í hag­kerf­inu. Upp­hæð­irnar eru háar, t.d. þegar horft er til virðis afla­heim­ilda en segja má að útgerð­ar­fyr­ir­tækin í land­inu, einkum þau stærstu, séu í allt annarri deild þegar kemur að fjár­hags­legum styrk, en flest fyr­ir­tæki í land­inu.

Á hag­vaxt­ar­skeið­inu frá 2011 og fram til 2018 styrkt­ust stoð­irnar í hag­kerf­inu veru­lega. Ævin­týra­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu kom á besta tíma í end­ur­reisn­ar­starf­inu eftir hrunið, og end­ur­skipu­lagn­ingin á fjár­mála­kerf­inu - með stöð­ug­leika­fram­lögum frá slita­búum föllnu bank­anna - skil­aði miklum ávinn­ingi fyrir rík­is­sjóð og almenn­ing.

En nú eru breyttir tímar. Fall WOW air og loðnu­brestur höfðu mikil áhrif til hins verra, en einnig má segja að það hafi verið kom­inn tími til þess að hægja á hjólum atvinnu­lífs­ins sem höfðu snú­ist á fullri ferð, með miklum hag­vexti og hækkun fast­eigna­verðs sem ekki átti sér for­dæmi í þró­uðum ríkjum. Vorið 2017 mæld­ist árs­hækkun fast­eigna­verðs 23,5 pró­sent, sem hvergi í heim­inum var eins mikil.

Á rúmum tveimur árum er staðan nú þannig að fast­eigna­verð stendur í stað, og hefur ekki hækkað að raun­virði í eitt ár. Hag­vaxt­ar­spár hafa flestar verið á þann veg að á þessu ári verði hag­vöxtur á bil­inu -0,4 pró­sent til 0,2 pró­sent hag­vöxtur. Þrátt fyrir að oft sé á það minnst, að staðan sé góð í hag­kerf­inu, þá er þetta mesta kúvend­ing í hag­vexti, miðað við árið á undan, sem nokk­urt Evr­ópu­ríki er að glíma við þessi miss­erin.

Árið 2018 var hag­vöxtur 4,6 pró­sent og sköp­uð­ust á árinu 6.500 ný störf, sam­kvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Nú er öldin önnur, og bendir flest til þess að stöðnun sé í kort­unum næstu miss­eri. Störfum er tekið að fækka í hag­kerf­inu, bæði inn­flutn­ingur og útflutn­ingur eru í sam­drætti, og blikur eru á lofti í mörgum geirum þar sem hag­ræð­ing er ýmist í und­ir­bún­ingi eða að kom­ast til fram­kvæmda.

Hver er landsframleiðslan?

Hagstofa Íslands hefur á skömmum tíma birt leið­rétt­ingar á hag­tölum sínum. Nú síð­ast voru það tölur um veltu greiðslu­korta. Komið hefur í ljós villa í birtum tölum um veltu greiðslu­korta. Áður birtar tölur byggðu á villu í gögnum frá greiðslu­korta­fyr­ir­tækjum. Sú villa hefur nú verið leið­rétt. Velta erlendra greiðslu­korta í ágúst minnk­aði um 2,7% frá fyrra ári. Í júlí­mán­uði var lækk­unin 0,7% sam­an­borið við sama mánuð árið áður. Í þessum tölum hafa við­skipti við íslensk flug­fé­lög verið tekin út úr velt­unni, til að gefa betri mynd af eyðslu útlend­inga á Íslandi,” sagði í leið­rétt­ing­unni, en fyrri tölur höfðu sýnt nokkra aukn­ingu í eyðsl­unni, eða um 4,7 pró­sent, og voru það talin vera afar jákvæð tíð­indi í ljósi þeirra hremm­inga sem höfðu átt sér stað í ferða­þjón­ust­unni.

Landsframleiðslan á Íslandi.
Lands­fram­leiðslan á Íslandi.

Önnur leið­rétt­ingin frá Hag­stof­unni, sem birt­ist 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, varð­aði lands­fram­leiðsl­una í land­inu, en líkt og með töl­urnar um greiðslu­korta­notkun ferða­manna þá hafði tölu­verð umræða átt sér stað um stöðu mála út frá þessum tölum. Vanmat hafði þá verið í fyrri útreikn­ingum á fjár­muna­myndun í hag­kerf­inu. Lands­fram­leiðslan var því mun meiri á 2. árs­fjórð­ungi, en fyrri tölur Hag­stof­unnar höfðu sagt til um. „Talna­efni á vef Hag­stof­unnar hefur verið upp­fært í sam­ræmi við þetta. Hagstofu Íslands þykir miður að mis­tök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig,” sagði meðal ann­ars á vef Hag­stof­unnar.

Leið­rétt­ingin á rætur að rekja til mis­taka sem urðu til þess að fjár­muna­myndun tíma­bils­ins reynd­ist van­metin um sem nemur 9,1 millj­arði króna á verð­lagi árs­ins.

Áhrifin koma fram í tveimur und­ir­liðum fjár­muna­mynd­unar, fjár­muna­myndun hins opin­bera og í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu, nánar til­tekið í fjár­muna­myndun í skipum og flug­vélum. Eftir leið­rétt­ingu mælist 16,6 pró­sent vöxtur í fjár­muna­myndun hins opin­bera og 26,5 pró­sent sam­dráttur í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu.

„Sam­dráttur í heild­ar­fjár­muna­myndun mælist 9,2 pró­sent, borið saman við 14,2 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöðum. Eftir leið­rétt­ingu mælist vöxtur lands­fram­leiðsl­unnar 2,7 pró­sent að raun­gildi á 2. árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 1,4 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöðum. Lands­fram­leiðslan á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 jókst um 0,9 pró­sent borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018 en sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöðum mæld­ist breyt­ing lands­fram­leiðsl­unnar 0,3 pró­sent á tíma­bil­inu.

Lands­fram­leiðslan á 2. árs­fjórð­ungi 2019 jókst að raun­gildi um 2,7 pró­sent frá sama árs­fjórð­ungi fyrra árs. Á sama tíma juk­ust þjóð­ar­út­gjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjár­fest­ingar, um 0,2 pró­sent. Vöxtur einka­neyslu mæld­ist 2,2 pró­sent og sam­neyslu 3,1 pró­sent en fjár­muna­myndun dróst saman um 9,2 pró­sent.

Sam­dráttur mæld­ist í bæði inn- og útflutn­ingi, eins og áður segir. Útflutn­ingur dróst saman um 6,9 pró­sent en sam­dráttur í inn­flutn­ingi mæld­ist nokkru meiri, eða 12,4 pró­sent. Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var jákvæður um 9,4 millj­arða króna á tíma­bil­inu, en vöxtur lands­fram­leiðsl­unnar á 2. árs­fjórð­ungi skýrist aðal­lega af jákvæðum áhrifum utan­rík­is­við­skipta.

Vextir lækka og hvað svo?

Vextir hafa farið lækk­andi í síð­ustu vaxta­á­kvörð­unum pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands og hafa þær verið kær­komnar fyrir efna­hags­lífið. Það er sjaldan sem þær aðstæður hafa skap­ast á Íslandi, þar sem stjórn­völd og hið opin­bera almennt - ríki og sveit­ar­fé­lög - vinna í takt með seðla­bank­anum.

Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, og Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, minnt­ust báðir á þetta þegar þeir komu fyrir þing­nefnd til að ræða um stöðu efna­hags­mála. Ásgeir hefur þó sagt, að hann telji lík­legt að staðan geti breyst, og að hún sé mögu­lega of góð til að vera sönn, eins og hann orð­aði það.

Þó vextir hafi lækkað, og þar með létt á greiðslu­byrði lána heim­ila og fyr­ir­tækja, þá hafa sést aug­ljós merki um kólnun í fjár­fest­ingu fyr­ir­tæki, þegar rýnt er í bækur bank­anna. Nýjar tölur Seðla­banka Íslands, sem voru birtar í vik­unni, sýna að hrein ný útlán banka til fyr­ir­tækja hafa dreg­ist mikið saman á þessu ári, miðað við árið í fyrra.

Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins tók fyr­ir­tæki 82,6 millj­arða í ný lán, en með hreinum nýjum lánum er átt við ný lán að frá­dregnum upp­reiðslum lána.

Á sama tíma í fyrra voru ný útlán 172,4 millj­arðar, og er sam­drátt­ur­inn því rúm­lega 50 pró­sent milli ára. Sé horft til síð­ustu tólf mán­aða, sam­an­borið við ár þar á undan, þá hafa verið veitt ný lán upp á 118,9 millj­arða sam­an­borið verið 242 millj­arða á tíma­bil­inu á undan.

Þetta bendir ein­dregið til þess að fyr­ir­tæki haldi að sér höndum þegar kemur að fjár­fest­ingu og vexti, og styður við það mat við­mæl­enda Kjarnans, að hag­ræð­ing sé nú víða í kort­unum. Heimilin í land­inu virð­ast einnig vera að halda að sér höndum, þegar horft er sér­tækt á lán­tök­urnar. Þar eru sveifl­urnar þó mun minni, en hrein ný útlán til heim­ila á þessu ári hafa numið 93,6 millj­örðum sam­an­borið við rúm­lega 100 millj­arða á sama tíma í fyrra.

Meg­in­vextir Seðla­bank­ans eru 3,5 pró­sent en verð­bólga mælist á sama tíma 3,2 pró­sent. Í sögu­legu til­liti eru raun­vextir hér á landi með allra lægsta móti, sem ætti að geta stutt við við­spyrnu í efna­hags­líf­inu, þó ekki sjá­ist mikil ein­kenni um það ennþá.

Frekar er hægt að draga þá ályktun, að áföllin sem fall WOW air og loðnu­brestur voru fyrir þjóð­ar­búið hafi reynst minni en margir héldu, en á sama tíma er of snemmt að segja til hvernig lend­ingin verður þegar öll kurl eru komin til grafar. Eitt af því sem óvissa er um, er hvernig vinnu­mark­að­ur­inn þró­ast, en mik­ill straumur starfs­fólks erlendis frá til Íslands virð­ist nú á und­an­haldi.

Á und­an­förnum árum hafa yfir 70 pró­sent nýrra skatt­greið­enda á hverju ári komið erlendis frá, ekki síst frá Austur-Evrópu, og þá til að vinna í mann­virkja­geira og ferða­þjón­ustu, þar sem flest ný störf hafa orðið til.

Þetta hafa verið miklar og sögu­legar breyt­ingar fyrir íslenskt sam­fé­lag en hópur inn­flytj­enda hér á landi telur nú yfir 47 þús­und manns, og eru Pól­verjar fjöl­menn­astir eða rúm­lega 20 þús­und. Þessi mikli straumur til lands­ins hefur verið hluti af þeim miklu umsvifum sem hafa verið í hag­kerf­inu á und­an­förnum árum, en atvinnu­leysi hefur verið lítið sem ekk­ert, eða á bil­inu 2 til 3 pró­sent. Atvinnu­leysi hefur farið lítið upp á við, og mælist rúm­lega 4 pró­sent, en að sama skapi eru mun færri ný störf að verða til, og þá kemur það fram í því að færri flytja til lands­ins til að vinna.

Búast má við því að atvinnu­leysis­tölur hækki eitt­hvað á næst­unni. Í lið­inni viku var ráð­ist í stór­felldar upp­sagnir í fjár­mála­kerf­inu þar sem 134 misstu vinn­una og við­búið er að störfum í ferða­þjón­ustu, sem mörg hver eru mönnuð með erlendum rík­is­borg­urum, geti fækkað þegar líður á árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár