Mynd: Úr safni

Útgerðin í annarri deild

Und­an­far­inn ára­tugur hefur verið einn allra besti tím­inn í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs. Fjár­hags­staða margra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna er orðin það sterk, að þau eru í annarri deild heldur en meg­in­þorri fyr­ir­tækja í íslensku atvinnu­lífi.

Lengi hefur verið deilt um kvóta­kerfið á Íslandi og mörgum sjón­ar­miðum haldið á lofti. Það var tekið upp árið 1984 og útgerðir með afla­reynslu þriggja ára þar á undan fengu afhentan kvóta án end­ur­gjalds.

Þá var afkoman slæm og kvót­inn (afla­heim­ildir) lít­ils virði.

Eftir að fram­sal á kvóta var gefið frjálst juk­ust smám saman við­skipti með kvóta og hægt og bít­andi safn­að­ist kvót­inn til þeirra fyr­ir­tækja sem vildu gera út áfram af ýmsum ástæðum og gerðu út á hag­kvæman hátt.

Sumir útgerð­ar­menn seldu t.d. fyrir ald­urs sakir og aðrir sáu leik á borði þegar kvót­inn varð skyndi­lega orð­inn verð­mætur og inn­leystu hagnað og fjár­festu í öðrum atvinnu­greinum. Enn aðrir seldu kvóta vegna hjóna­skiln­aðar. Og allt þar á milli.

Hreyfanleiki og fjárfesting

Þessi hreyf­an­leiki á afla­heim­ildum leiddi til mik­illar hag­ræð­ingar í grein­inni, og mik­illar auð­söfn­unar eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna. Stóru fyr­ir­tækin urðu stærri. Á und­an­förnum ára­tug hefur þró­unin haldið áfram á sömu braut; aukin hag­ræð­ing og sterk­ari efna­hagur fyr­ir­tækj­anna hefur gefið þeim tæki­færi á auk­inni fjár­fest­ingu og tækni­væð­ingu.

Algjör kúvend­ing hefur orðið á efna­hags­reikn­ingum helstu útgerð­ar­fyr­ir­tækja lands­ins á ára­tug. Hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar, haustið 2008, var í raun mikil búbót fyrir sjáv­ar­út­veg­inn í land­inu, sem hafði árin á undan glímt við erf­ið­leika vegna sterks gengis krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa sínar tekjur í erlendri mynt og því þýddi mikil og hröð veik­ing krón­unnar, í kjöl­far hruns­ins, að sam­keppn­is­staða íslensks sjáv­ar­út­vegs batn­aði veru­lega. Nýr rekstr­ar­grund­völlur fyr­ir­tækj­anna varð í raun til við þetta, svo mikil var breyt­ingin.

Sé horft til áranna 2010 og út árið 2017 þá hefur hagur útgerða­fyr­ir­tækja lands­ins vænkast um 421,3 millj­arða króna. Eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­ins var nei­kvæð, að með­al­tali, í lok árs 2008 en var jákvæð í lok árs 2017 um 262 millj­arða króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Deloitte hefur tekið saman, og byggir á upp­lýs­ingum frá 87 pró­sent af sjáv­ar­út­vegnum. Frá árinu 2010 hafa eig­endur útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna fengið 80,3 millj­arða króna í arð­greiðslur.

Tekjur sjáv­ar­út­vegs­ins á árinu 2017 voru um 225 millj­arðar króna og fram­legðin af rekstr­inum um 40 millj­arðar. EBITDA-hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostnað, skatta og afskriftir) var 18 pró­sent á árinu 2017, en árin á undan var hann nokkuð meiri, eða ríf­lega 20 pró­sent.

Skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, það er skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem til­heyra grunn­inum, hækk­uðu í 362 millj­arða króna árið 2017. Það er umtals­verð hækkun á milli ára, eða úr 319 millj­örðum króna. Skuldir eru samt minni 2017 en þær voru árið 2014.

Geirinn hefur þó lagað skulda­stöðu sína gríð­ar­lega á árunum 2009-2017, eða um 86 millj­arða króna umfram nýjar lang­tíma­skuldir. Einungis tví­vegis á því tíma­bili hefur verið stofnað til skulda umfram afborg­anir, árið 2015 þegar ný lán voru 18 millj­arða fram yfir afborg­anir, og í fyrra þegar þau voru 15 millj­arða fram yfir afborg­anir.

Kvótaverð þokast uppá við

Ýmsar hlið­ar­verk­anir hafa verið á þess­ari til­tölu­lega stuttu þróun kvóta­kerf­is­ins, sé litið til hag­sög­unnar íslensku. Eftir því sem árin hafa liðið og verð á kvóta hefur hækkað hefur sífellt orðið erf­ið­ara fyrir venju­legt fólk að fjár­festa í kvóta og kaupa sér bát, en end­ur­nýjun og nýliðun í grein­inni hefur lengi verið hluti af póli­tískri rök­ræðu um grein­ina.

Hin síð­ari ár hefur flest fólk sem byrjar með tvær hendur tómar ekki tök á að kaupa sér nokkra tugi tonna af t.d. þorsk­kvóta og bát með. Upp­hafs­kostn­aður við slíkt eru millj­óna­tugir og ekki á færi nema sterk­efn­aðra. Auk þess er stærð­ar­hag­kvæmni í grein­inni orðin svo ráð­andi þáttur að erfitt er að „keppa“ við stærri fyr­ir­tækin þegar kemur að verðum á mark­aði.

Í stað þess að það verði mikil end­ur­nýjun eða nýliðun í grein­inni þá selja yfir­leitt eldri útgerð­ar­menn, hvort sem er í smá­út­gerðum eða stærri, sem eiga litla kvóta­pakka, til stóru útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem sjá sér hag í að bæta við kvóta og hag­ræða enn frekar í rekstri, enda hafa þau yfir að ráða tækjum og tólum til að nýta kvót­ann betur, með hag­kvæmri vinnslu.

Risar í mörgum atvinnugreinum

Á allra síð­ustu hefur sam­þjöpp­unin auk­ist áfram á miklum hraða. Nokkur af allra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum hafa stækkað sífellt meira með hverju árinu sem líður. Arðsemi í grein­inni er vissu­lega mis­mikil eftir því hvernig gengi krón­unnar sveifl­ast og einnig eftir afla­brögðum og fisk­verði. Hin stóru og sterku sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru þó vel varin fyrir sveiflum þar sem flest þeirra eiga mik­inn kvóta í mörgum mis­mun­andi teg­undum.

Svo bæt­ist við að tækni­fram­farir hafa verið miklar og aukið hag­kvæmni. Skipum hefur fækkað og störfum í landi einnig. Mörg þessi stærstu fyr­ir­tæki eru veru­lega arð­söm og eig­endur þeirra hafa hagn­ast mikið á síð­ustu árum.

Arðsemin hjá best reknu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum er í algerum sér­flokki í sam­an­burði við annan atvinnu­rekstur í land­inu. Mörg af stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum hafa valið að fjár­festa í auknum mæli út fyrir grein­ina til að dreifa áhætt­unni.

Fjárfest fyrir utan geirann

Nú á t.d. Síld­ar­vinnslan kjöl­festu­hlut í trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá. Samherji, sem stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar, á kjöl­festu­hlut í Eimskip (25 pró­sent) og stóran hlut í Högum (tæp­lega 10 pró­sent) og mörgum fleirum fyr­ir­tækjum í ýmsum atvinnu­greinum.

Hið sama má segja um Ísfélag Vest­manna­eyja, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Skinney-Þinganes.

Ísfé­lagið keypti eina stærstu heild­verslun lands­ins, Íslensk/Ameríska, árið 2014 og 45 þús­und fer­metra atvinnu­hús­næði, Korpu­torg, árið 2016, svo dæmi séu nefnd. Þá ræður félagið yfir tæp­lega 30 pró­sent hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Hvalur hf., þar sem Kristján Loftsson er stærsti eig­andi ásamt systu sinni Birnu Lofts­dóttur, hefur einnig látið nokkuð að sér kveða að und­an­förnu. Félagið keypti fyrir um 600 millj­ónir í Arion banka, þegar bank­inn var skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð, og nýlega keypti Hvalur síðan hlut í Marel fyrir um millj­arð króna og nemur eign­ar­hlutur félags­ins nú um 0,4 pró­sentum. Eftir söl­una á um þriðj­ungs­hlut í HB Granda í fyrra, sem Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur (áður Brim) keypti, hefur fjár­hags­staðan styrkst enn frekar, en sölu­verðið var 21,7 millj­arðar króna.

Aukin umsvif

Flest stærstu fyr­ir­tækin í sjáv­ar­út­vegi hafa því fjár­fest út fyrir grein­ina til að dreifa áhættu og auka umsvif sín. Arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefðu getað orðið miklu meiri ef þau hefðu ekki valið að fjár­festa í öðrum atvinnu­greinum, og hafa þær því verið hóf­legar á hefð­bundna rekstr­ar­mæli­kvarða.

Ef fram heldur sem horfir og ytri aðstæður verða áfram góðar hjá stóru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum í land­inu verða þau mögu­lega alls ráð­andi í atvinnu­rekstri í land­inu áður en langt um líður. Helsta ástæða þessa er hin mikla und­ir­liggj­andi arð­semi hjá þessum fyr­ir­tækjum, í sam­an­burði við aðra geira. Þá er bann við beinni erlendri fjár­fest­ingu í afla­heim­ildum einnig til þess fallið að þrengja mögu­lega sam­keppni og inn­leið fyrir ný fyr­ir­tæki, enda tak­markað hversu mörg fyr­ir­tæki hafa bol­magn til þess að fara inn á þennan markað í litlu 350 þús­und manna örríki eins og Íslandi.

Stærð­irnar hjá stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum, og eig­endum þeirra, eru miklar þegar kemur að fjár­hags­legum styrk.

Í lok árs 2017 nam eigið fé Samherja 754 millj­ónum evra, eða sem nemur um 105 millj­örðum króna. Stærstu eig­end­urnir eru frænd­urnir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri, og Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri.

Hjá Ísfé­lag­inu, og Guð­björgu Matth­í­as­dóttur, eig­anda þess, er staðan einnig sterk, en eigið fé hjá félag­inu Fram ehf., sem er móð­ur­fé­lag Kristins ehf., eig­anda Ísfé­lags­ins, var um 35,5 millj­arðar króna í lok árs 2017.

Verðmætin í aflaheimildum

Sú mikla verð­mæta­sköpun sem hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum árum er meðal áhuga­verð­ustu og merki­leg­ustu kafla í hag­sögu lands­ins.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru á meðal rikustu, og áhrifamestu, manna landsins.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru á meðal rik­ustu, og áhrifa­mestu, manna lands­ins.

Á ein­ungis 35 árum hefur mik­ill auður safn­ast upp í sjáv­ar­út­vegi, með mik­illi hag­ræð­ingu og tækni­væð­ingu ekki síst, þar sem allt snýst um afla­heim­ildir, kvót­ann.

Sé miðað við algengt virði á kvót­anum í við­skiptum, og upp­lausn hans, er heild­ar­virði kvóta um 1.200 millj­arðar króna. Það er upp­hæð sem nemur tæp­lega tvö­földu virði alls eig­in­fjár hjá Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans.

Eins og áður segir bendir margt til þess, að áfram­hald­andi upp­bygg­ing verð­mæta í íslenskum sjáv­ar­út­vegi muni auka umsvif stærstu félag­anna í íslensku atvinnu­lífi. Gam­al­kunn­ugt tal um kol­krabba verður þá eflaust ekki langt undan, enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin í allt annarri deild en flest fyr­ir­tækin í land­inu þegar kemur að fjár­hags­legum styrk.

Spurt og svarað um lykilatriðin í íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu

Hvernig er úthlutun aflaheimilda?

Fiski­stofa úthlutar afla­marki (í tonnum) til veiða á kvóta­bundnum teg­undum til eins fisk­veiði­árs í senn á grund­velli afla­hlut­deildar hlut­að­eig­andi skips og ákvörð­unar atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um leyfi­legan heild­ar­afla í ein­stökum teg­undum á fisk­veiði­ár­inu (1. sept. - 31. ág.). Með afla­hlut­deild er átt við það hlut­fall (í pró­sentum talið) af leyfi­legum heild­ar­afla í kvóta­bund­inni teg­und sem fiski­skip má veiða af leyfi­legum heild­ar­afla í teg­und­inni.

Aflamark flestra teg­unda mið­ast við fisk­veiði­árið en það er tíma­bilið frá 1. sept­em­ber til 31. ágúst ár hvert. Flestir nytja­stofnar á Íslands­miðum eru kvóta­bundnir (98% af heild­ar­afla­verð­mæti).

Hvernig er flutningur aflaheimilda milli skipa?

Afla­heim­ildir (afla­hlut­deildir og afla­mark) verða lögum sam­kvæmt alltaf að vera bundin við fiski­skip. Að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum og með ákveðnum tak­mörk­unum er heim­ilt að flytja afla­heim­ildir á milli fiski­skipa. Flutn­ingur afla­heim­ilda öðl­ast ekki gildi fyrr en Fiski­stofa hefur stað­fest hann.

Lögum sam­kvæmt mega yfir­ráð ein­stakra eða tengdra aðila yfir afla­hlut­deildum almennt og í til­teknum ein­stökum teg­undum ekki fara yfir ákveðin mörk.

Hvernig er sveigjanleikinn í aflamarkskerfinu?

Nokkur sveigj­an­leiki er inn­byggður í afla­marks­kerfið. Meg­in­mark­miðið með honum er að auð­velda útgerð­ar­mönnum og sjó­mönnum að fara að settum reglum og stuðla að ábyrgri nýt­ingu fiski­stofna. Í því sam­bandi má nefna að heim­ilt er að flytja allt að 15% af afla­marki flestra teg­unda frá einu fisk­veiði­ári yfir á það næsta og þá er heim­ilt að veiða allt að 5% umfram úthlutað afla­mark skips á ein­stöku fisk­veiði­ári og dregst sá afli frá úthlutun á næsta ári.

Með teg­unda­til­færsla er átt við reglu sem heim­ilar að afli í einni teg­und drag­ist að ákveðnu marki frá afla­heim­ildum skips í annarri teg­und. Þessi heim­ild nær þó ekki til veiða á þorski.

Afli undir ákveðnum lengd­ar­mörkum (“und­ir­máls­afli”) til­tek­inna teg­unda, þorsks ýsu, ufsa og karfa dregst ekki að fullu frá afla­marki fiski­skips, enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla um borð og vigtaður og skráður sér­stak­lega.

Allt að 5% umfram afla­mark fiski­skips má, að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum, landa sem svoköll­uðum VS-afla og dregst sá afli ekki frá afla­marki hlut­að­eig­andi skips. Andvirði þessa afla rennur að stærstum hluta (80%) til Verk­efna­sjóðs sjáv­ar­út­vegs­ins en það sem eftir stendur gengur til útgerðar og áhafnar skips­ins.

Heimilt er að stunda tóm­stunda­veiðar til eigin neyslu. Við þær veiðar má ein­göngu nýta hand­færi án sjálf­virkni­bún­aðar. Óheimilt er að selja afla sem fæst við tóm­stund­veiðar eða fénýta hann á annan hátt.

Hvað er aflamark?

Aflamark er tvenns konar, þ.e. almennt afla­mark, sem nýta má með veiðum með öllum leyfi­legum veið­ar­færum og króka­afla­mark sem ein­ungis er heim­ilt að nýta með króka­veið­ar­færum (hand­færi og línu). Bátar sem stunda veiðar á grund­velli króka­afla­marks eru nefndir króka­bátar. Þeir þurfa að vera minni en 15 brúttó­tonn og er þeim ein­ungis heim­ilt að stunda veiðar með línu og/eða hand­færum. Óheimilt er að flytja afla­heim­ildir úr króka­afla­marks­kerfi í afla­marks­kerfi. Liðlega 700 bátar hafa leyfi til veiða með króka­afla­marki.

Hvernig á að standa að vigtun afla?

Það er meg­in­regla í íslenska fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu að allur afli skuli veg­inn í lönd­un­ar­höfn. Lög­giltir vigt­ar­menn ann­ast alla vigtun afla sam­kvæmt ítar­legum reglum sem gilda um vigtun og skrán­ingu sjáv­ar­afla. Fisk­vinnslu­stöðvar og fisk­mark­aðir geta, að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum, fengið leyfi til þess að end­ur­vigta ísaðan fisk.

Hafn­ar­yf­ir­völd skrá, strax að löndun lok­inni, nið­ur­stöður hverrar vigt­unar í gagna­grunni Fiski­stofu og Lönd­un­ar­hafna (GAFL). Þannig hefur Fiski­stofa alltaf nýjar upp­lýs­ingar um land­anir afla og afla­heim­ilda­stöðu ein­stakra fiski­skipa og fiski­skipa­flot­ans í heild. Þessar upp­lýs­ingar eru birtar jafn­óðum á vef Fiski­stofu.

Það er mik­il­væg meg­in­regla íslenska fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu að allan afla, sem kemur í veið­ar­færi á að koma með að landi og láta vigta í lönd­un­ar­höfn. Brott­kast afla er óheim­ilt og skal veiðum hagað þannig að þess sé gætt að afli skemmist ekki í veið­ar­færum.

Við afla­skrán­ingu á afurðum full­vinnslu­skipa er afl­inn reikn­aður til afla­marks sam­kvæmt ein­stak­lings­bundnum nýt­ing­ar­stuðlum. Nýt­ing­ar­stuðlar byggja á mæl­ingum sem teknar eru um borð í full­vinnslu­skipum sam­kvæmt ákveðnum reglum og aðferðum og með reglu­bundnu milli­bili. Fiski­stofa gerir reglu­lega úttekt á nýt­ing­ar­stuðlum ein­stakra skipa.

Hvenær má loka veiðisvæði?

Ef hlut­fall smá­fisks í afla mælist yfir ákveðnum mörkum er heim­ilt að loka veiði­svæði. Lokanir geta verið til skamms tíma (skyndi­lok­anir) eða til lengri tíma (reglu­gerða­lok­anir).

Sér­stakar reglur gilda um útbúnað veiði­færa, s.s. hvað varðar möskva­stærð og smá­fiska­skiljur og er þeim fyrst og fremst ætlað að koma í veg fyrir veiðar á smá­fiski eða aðrar skað­legar veiðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár