Útgerðarfélag Reykjavíkur kaupir allan hlut Kaupfélagsins í Brimi

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem er að stærstum hluta í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brim, hefur keypt allan hlut Kaup­fé­lags Skag­firð­inga í sjáv­ar­út­vegs­ris­anum Brimi á tæp­lega átta millj­arða króna.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefur keypt félagið FISK-Seafood eign­ar­halds­fé­lag ehf., sem átti 196,5 millj­ónir hluti í Brimi, áður hét HB Grandi, af Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga. Um er að ræða alla hluti þess í Brimi. Gengið sem við­skiptin fara fram á er 40,4 krónur á hlut, sem er yfir síð­asta skráða gengi á mark­aði, en virði hvers hlutar í Brimi var 38,35 krónur við lok við­skipta á föstu­dag. Gera þarf upp kaupin fyrir 1. des­em­ber næst­kom­andi.

[links]Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem er langstærsti eig­andi Brims, mun því greiða rúm­lega 7,9 millj­arða króna fyrir hlut­ina. For­­stjóri Brims, Guð­­mundur Krist­jáns­­son, er stærsti hlut­hafi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­vík­­­ur. Eign­ar­hlutur þess í Brimi, sem er eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og það eina slíka sem er skráð á hluta­bréfa­markað, er nú 48,44 pró­sent sam­kvæmt flögg­un­ar­til­kynn­ingu sem send var í til Kaup­hallar í nótt.

Í þeirri eign­ar­hlut­ar­tölu er þó ekki tekið til­lit til hluta­fjár­aukn­ingar sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi í Brimi 15. ágúst síð­ast­lið­inn þar sem ákveðið var að auka hlutafé um 133 millj­ónir hluta, 7,3 pró­sent, og nota það til að kaupa allt hlutafé í sölu­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­­arða króna.

[adspot]Því stefnir í að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur eigi tæp­lega 56 pró­sent hlut í Brimi ef sú hluta­fjár­aukn­ing verður skráð. Samkvæmt til­kynn­ingu til Kaup­hallar kemur hins vegar fram að félagið stefni að því að eign­ar­hlutur þess í Brimi verði undir helm­ingi hluta­fjár til fram­tíðar.

Kaupfélagið ný búið að kaupa í Brimi

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er ein­ungis búið að halda á þorra þeirra hluta sem það seldi nú einum helst sam­keppn­is­að­ila sínum í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi í nokkra daga. Það keypti alls 151,5 milljón hluti, á rétt tæp­lega fimm millj­arða króna, seinni hluta ágúst­mán­aðar af Gildi líf­eyr­is­sjóði.

Da­víð Rúd­ólfs­son, for­­stöð­u­­maður eigna­­stýr­ingar og stað­­geng­ill for­­stjóra Gildis líf­eyr­is­­sjóðs, sagði við Kjarninn að ástæða söl­unnar væru við­skipti Brims við stærsta hlut­hafa félags­ins, sam­þykkt höfðu verið á hlut­hafa­fundi vik­una áður. Við­skiptin snér­ust um áður­nefnd kaup Brims á öllu hlutafé í sölu­­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­­­arða króna.

[adspot]Davíð sagði að við­skiptin hafi verið óheppi­leg og að nið­ur­staða hlut­hafa­fundar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, þar sem hlut­hafar sam­þykktu við­skipt­in, hafi verið von­brigði. „Veg­ferðin sem félagið virð­ist vera á með end­ur­teknum og umfangs­miklum við­skiptum við stærsta hlut­hafa og for­stjóra félags­ins er óásætt­an­leg. Afleið­ingin er sú að eign­ar­haldið á HB Granda er orðið með þeim hætti að við teljum rétt að hverfa á braut.“

Milljarða viðskipti við stærsta eigandann

Umrædd sölu­­fé­lög keypti Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur af Icelandic Group í lok árs 2015. Engar upp­­lýs­ingar eru um hver verð­mið­inn á þeim var í árs­­reikn­ingum Icelandic Group frá þeim tíma né í árs­­reikn­ingi þáver­andi eig­anda félags­­ins, Fram­taks­­sjóðs Íslands.

Kaupin á sölu­­fé­lög­unum verða ekki einu við­­skiptin sem átt hafa sér stað milli Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur og Brim, frá því að fyrr­nefnda félagið varð stærsti hlut­hafi Brim í fyrra. Seint á síð­­asta ári sam­­þykkti fram­halds­­að­al­fundur kaup á Ögur­vík, sem gerir út skipið Vigra RE, á 12,3 millj­­arða króna, af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur. Gildi var einnig mót­fallið þeim kaup­um.

Þess má geta að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hét Brim árum saman, en breytti nafni sínu þegar það keypti stóran hluta í HB Granda. Nafni HB Granda var svo breytt í Brim í síð­asta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár