Umfangsmikil og ítrekuð viðskipti við stærsta hluthafa HB Granda óheppileg

For­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis segir að ítrekuð við­skipti HB Granda við stærsta hlut­hafann sinn séu for­dæma­laus á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði og óheppi­leg. Til stendur að HB Grandi kaupi sölu­fé­lög af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna.

„Umfangs­mikil og ítrekuð við­skipti stærsta hlut­hafa HB Granda við félagið eru óheppi­leg að okkar mati. Slíkt er for­dæma­laust á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði.“ Þetta segir Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar og stað­geng­ill for­stjóra Gildis líf­eyr­is­sjóðs.

Þau við­skipti sem Davíð á við eru fyr­ir­ætluð kaup HB Granda á öllu hlutafé í sölu­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er stærsti hlut­hafi HB Granda og for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, er stærsti hlut­hafi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

Gildi til­kynnti fyrr í dag að sjóð­ur­inn muni greiða atkvæði gegn kaup­unum á hlut­hafa­fundi sem fram fer á fimmtu­dag. Í til­kynn­ingu vegna þess kom meðal ann­ars fram að við­skipti við tengda aðila yrðu að vera hafin yfir allan vafa. Þær fyr­ir­ætl­anir sem fyrir liggi séu ekki trú­verð­ugar og sjóð­ur­inn telji að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­mið­um, mögu­lega með minni til­kostn­aði.

[adspot]Davíð segir að það hafi vakið athygli Gildis hversu stórum hluta í HB Granda lagt væri upp með að verja í þessa fjár­fest­ingu og hversu skamman tíma stjórn félags­ins tók sér til að taka ákvörðun um við­skiptin. Ætlað kaup­verð er 4,4 millj­arðar króna og lagt hefur verið til að kaup­verðið verði greitt með 7,3 pró­sent aukn­ingu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin sam­þykkt mun hlutur Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í HB Granda hækka úr 35,01 pró­sent í 42,31 pró­sent í HB Granda. „Að mati Gildis hefur ekki tek­ist að sýna fram á að þessi við­skipti séu hag­felld eða nauð­syn­leg fyrir HB Granda,” segir Davíð.

Upphaflegt kaupverð ekki opinbert

Umrædd sölu­fé­lög voru keyptar af Brim, sem nú heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, af Icelandic Group í lok árs 2015. Engar upp­lýs­ingar eru um hver verð­mið­inn á þeim var í árs­reikn­ingum Icelandic Group frá þeim tíma né í árs­reikn­ingi þáver­andi eig­anda félags­ins, Fram­taks­sjóðs Íslands.

Aðrir hlut­hafar í HB Granda sem Kjarninn hefur rætt við segj­ast ekki hafa upp­lýs­ingar um hvert kaup­verðið var á sölu­fé­lög­unum þegar þau voru keypt né frek­ari skýr­ingar á því hvað í starf­semi sölu­fé­lag­anna útskýri þann háa verð­miða sem sé á þeim. Þá taka við­mæl­endur Kjarnans undir gagn­rýni Gildis um að afgreiðsla stjórn­ar­innar á kaup­unum hafi átt sér afar skamman aðdrag­anda.

[adspot]Fjórir líf­eyr­is­sjóðir: Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi og líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta eiga sam­tals 40,11 pró­sent hlut í HB Granda.

Kaupin á sölu­fé­lög­unum er ekki eina til­lagan sem liggur fyrir hlut­hafa­fund­inum á morgun. Þar verður einnig lagt til að nafni HB Granda verði breytt í Brim, sem er það nafn sem Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur bar áður en að það keypti ráð­andi hlut í HB Granda.

Ekki einu viðskiptin við við stærsta eigandann

Kaupin á sölu­fé­lög­unum verða ekki einu við­skiptin sem átt hafa sér stað milli Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og HB Granda, verði þau að veru­leika. Seint á síð­asta ári sam­þykkti fram­halds­að­al­fundur kaup á Ögurvík, sem gerir út skipið Vigra RE, á 12,3 millj­arða króna.

Gildi hafði einnig efa­semdir um þau kaup og óskaði eftir því að fyr­ir­tækja­svið Kviku banka tæki saman minn­is­blað um kaup­in, áður en þau yrðu borin upp til sam­þykkis á hlut­hafa­fundi. Það var gert.

Minn­is­blaðið studd­ist við gögn frá stjórn­endum HB Granda, og sagði kaup­in, upp á 12,3 millj­arða króna, geta skilað HB Granda umtals­verðum ávinn­ing­i.

Kjarninn greindi frá umsögn grein­anda Capacent um kaupin í nóv­em­ber 2018. Þar kom fram að grein­and­anum hafi liðið „eins á laug­ar­dags­morgni eftir kvöld á Kaffi­barn­um“ þegar rýnt væri í for­sendur kaup­verðs HB Granda á Ögur­vík. „Svarið við alheim­inum og til­gangi lífs­ins er 42,“ sagði í grein­ing­unni, og þar vitnað til þess að hægt sé að fá út hin ýmsu verð á Ögur­vík, þegar það er verið að greina kaup HB Granda á félag­in­u.

Töl­una 42 í sam­hengi við svarið við spurn­ing­unni um til­gang lífs­ins, má rekja til bók­ar­inn­ar The Hitchhiker's Guide to the Galaxy eftir Douglas Adams.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hbgrandi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár