Lífeyrissjóður verzlunarmanna vill breytingu á kaupverði á sölufélögum

Einn stærsti eig­andi HB Granda vill að end­an­legt kaup­verð á sölu­fé­lögum sem félagið vill kaupa af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur verði tengt við afkomu næstu ára.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna vill að end­an­legt kaup­verð HB Granda á öllu hlutafé í sölu­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­víkur verði tengt við afkomu næstu ára. Samkvæmt til­lögu sem stjórn HB Granda hefur sam­þykkt, og kosið verður um á hlut­hafa­fundi í dag, átti kaup­verðið að vera 4,4 millj­arðar króna.

[links]Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er stærsti hlut­hafi HB Granda og for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, er stærsti hlut­hafi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur.

Í til­kynn­ingu frá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna segir að hann muni leggja fram breyt­inga­til­lögu við fyr­ir­liggj­andi til­lögu á hlut­hafa­fundi HB Granda síðar í dag. Tillagan felur í sér að gangi áætl­anir selj­anda eftir verður umsamið kaup­verð greitt að fullu en ella kemur til lækk­unar þess. „Tillagan felur í sér að enda­legt kaup­verð verði tengt við afkomu næstu ára. Að öðru leyti telur sjóð­ur­inn að sölu­fé­lögin falli vel að rekstri HB Granda og að þau séu í sam­ræmi við yfir­lýsta stefnu þess um efl­ingu sölu- og mark­aðs­starfs. Þetta er nið­ur­staða sjóðs­ins eftir grein­ingu á fyr­ir­liggj­andi gögnum.“

Gildi segir nei

Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur, sem er einnig stór hlut­hafi í HB Granda, til­­kynnti í fyrra­dag að sjóð­­ur­inn muni greiða atkvæði gegn kaup­unum á hlut­hafa­fundi sem fram fer í dag. Í til­­kynn­ingu vegna þess kom meðal ann­­ars fram að við­­skipti við tengda aðila yrðu að vera hafin yfir allan vafa. Þær fyr­ir­ætl­­­anir sem fyrir liggi séu ekki trú­verð­ugar og sjóð­­ur­inn telji að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­mið­um, mög­u­­­lega með minni til­­­­­kostn­að­i.

[adspot]Davíð Rúd­­­ólfs­­son, for­­stöð­u­­maður eigna­­stýr­ingar og stað­­geng­ill for­­stjóra Gildis líf­eyr­is­­sjóðs, sagði í sam­tali við Kjarn­ann á þriðju­dag að „um­fangs­­mikil og ítrekuð við­­skipti stærsta hlut­hafa HB Granda við félagið eru óheppi­­leg að okkar mati. Slíkt er for­­dæma­­laust á inn­­­lendum hluta­bréfa­­mark­að­i.“

Fjórir líf­eyr­is­­sjóð­ir: Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­ar­manna, Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LS­R), Gildi og líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Birta eiga sam­tals 40,11 pró­­sent hlut í HB Granda.

A og B-deild LSR eru sam­an­lagt stærsti eig­and­inn í líf­eyr­is­sjóða­hópnum með alls 15,15 pró­sent eign­ar­hlut. A-deildin á 11,37 pró­sent hlut en B-deildin 3,78 pró­sent. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um afstöðu sjóðs­ins til kaupanna á sölu­fé­lög­unum kom fram að málið væri enn í skoð­un.

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna á 12,53 pró­sent hlut í HB Granda. Nú liggur fyrir afstaða hans til kaupanna.

Verður greitt með nýju hlutafé

Ætlað kaup­verð á sölu­fé­lög­unum er, líkt og áður sagði, 4,4 millj­­arðar króna og lagt hefur verið til að kaup­verðið verði greitt með 7,3 pró­­­sent aukn­ingu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin sam­­­þykkt mun hlutur Útgerð­­­ar­­­fé­lags Reykja­víkur í HB Granda hækka úr 35,01 pró­­sent í 42,31 pró­­­sent í HB Granda. Við það verður eign­ar­hlutur Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur stærri en sam­eig­in­legur eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna fjög­urra sem eiga stóran hlut í HB Granda.

Fyrir hlut­hafa­fund­inum á morgun liggur einnig fyrir breyt­ing­ar­til­laga um að breyta nafni HB Granda í Brim, sem er það nafn sem Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur bar árum saman og Guð­mundur Krist­jáns­son er oft­ast kenndur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hbgrandi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár