Greinandi Capacent um verðið á Ögurvík: Svarið er 42

Fram­halds­að­al­fundur HB Granda sam­þykkti á dög­unum kaup HB Granda á Ögurvík fyrir 12,3 millj­arða króna.

Grein­andi Capacent segir að honum hafi liðið „eins á laug­ar­dags­morgni eftir kvöld á Kaffi­barnum“ þegar rýnt væri í for­sendur kaup­verðs HB Granda á Ögurvík. „Svarið við alheim­inum og til­gangi lífs­ins er 42,“ segir meðal ann­ars, og vitnað til þess að hægt sé að fá út hin ýmsu verð á Ögurvík, þegar það er verið að greina kaup HB Granda á félag­inu.

Töluna 42 í sam­hengi við svarið við spurn­ing­unni um til­gang lífs­ins, má rekja til bók­ar­innar The Hitchhiker's Guide to the Galaxy eftir Douglas Adams.

Fram­halds­hlut­hafa­fundur sam­þykkti á dög­unum kaup HB Granda á Ögurvík, en selj­andi þess er Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, áður Brim, sem jafn­framt er stærsti eig­andi HB Granda, með rúm­lega 35 pró­sent hlut.

Guð­mundur Krist­jáns­son er stærsti eig­andi þess, en hann er jafn­framt for­stjóri HB Granda.

Gildi líf­eyr­is­sjóður óskaði eftir því að fyr­ir­tækja­svið Kviku banka tæki saman minn­is­blað um kaupin, áður en þau yrðu borin upp til sam­þykkis á hlut­hafa­fundi, var var það gert.

Minn­is­blaðið studd­ist við gögn frá stjórn­endum HB Granda, og sagði kaupin, upp á 12,3 millj­arða króna, geta skilað HB Granda umtals­verðum ávinn­ingi.

Í umsögn grein­anda Capacent segir að mark­aður með afla­heim­ildir sé um margt hul­inn leynd. „Markaður með afla­heim­ildir er hulin gráu skýi og væri það mikil breyt­ing til batn­aðar ef haldið væri kerf­is­bundið um verð afla­heim­ilda og gögnin gerð opin­ber. Líkt og Ásgeir Dan­í­els­son bendir á í Kjarn­anum myndi slík birt­ing leiða til sann­gjarn­ari veiði­gjalda,“ segir meðal ann­ars í umfjöllun Capacent.

Í umfjöllun Capacent segir að gróft reiknað sé verðið á Ögurvík 9,5 millj­arðar króna og því sé 28 pró­sent „álag“ á kaup­verð­inu. „HB Grandi gerði samn­ing um kaup á Ögurvík í byrjun sept­em­ber sem gerir út skipið Vigra RE, kaup­verðið er 12,3 millj­arðar króna. Það er full ástæða til að klóra sér í skall­anum yfir verð­inu en rekstr­ar­hagn­aður eða EBITDA Ögur­víkur var 348 millj­ónir árið 2017 og 366 millj­ónum árið 2016. Kaup­verðið nemur því um 35-földum rekstr­ar­hagn­aði (P/EBITDA=35). Afla­heim­ildir Ögur­víkur eru 7.680 tonn af botn­fiski og 1.663 tonn af mak­ríl. Gróft reiknað fær Capacent að verð­mæti afla­heim­ilda nemi 8,5 til 9 millj­örðum króna og eigið fé félags­ins nemur um 750 millj­ónum. Samkvæmt grófum útreikn­ingum fær Capacent út að verð Ögur­víkur sé um 9,5 millj­örðum og því sé um 28% álag á kaup­verðið. Þessi nið­ur­staða fæst með að meta verð­mæti afla­heim­ilda en ljóst er að sjóðs­streym­is­verð­mat gefur mun lægra verð. Þessum útreikn­ingum verður þó að taka með öllum fyr­ir­vörum en ekki er um nákvæma eða ítar­lega úttekt um að ræða. Auk þess upp­lýs­ingar um verð afla­heim­ilda mættu vera áreið­an­legri,“ segir í umfjöllun Capacent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár