Samþykkt að kaupa eignir af stærsta eiganda HB Granda á 4,4 milljarða

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur fær fulla greiðslu fyrir eignir sem það selur HB Granda en lofar að end­ur­greiða hana að hluta ef rekstr­ar­á­ætl­anir stand­ast ekki. Samþykkt að breyta nafni HB Granda í Brim.

HB Grandi er á meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins.
HB Grandi er á meðal stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins. Mynd: Anton Brink

Hlut­hafa­fundur í HB Granda, sem hófst klukkan 17 í dag, sam­þykkti með 88,85 pró­sent greiddra atkvæða þeirra sem fund­inn sátu að kaupa allt hlutafé í sölu­­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, af Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur. Kaup­verðið er 34,9 millj­ónir dala, eða tæp­lega 4,4 millj­arðar króna. Kaup­verðið var greitt með útgáfu nýs hluta­fjár í HB Granda. 11,15 pró­sent fund­ar­manna greiddi atkvæði á móti til­lög­unni.

[links]Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaupa­hallar Íslands.

Kaupin voru umdeild enda er Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur stærsti eig­andi HB Granda. Þá er Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, stærsti hlut­hafi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem er stór hlut­hafi í HB Granda, lagði fyrr í dag fram breyt­inga­til­lögu við fyr­ir­liggj­andi til­lögu á hlut­hafa­fundi HB Granda. Til­lagan fól í sér að gangi áætl­anir selj­anda eftir verður umsamið kaup­verð greitt að fullu en ella komi til lækk­unar þess. „Til­lagan felur í sér að enda­legt kaup­verð verði tengt við afkomu næstu ára. Að öðru leyti telur sjóð­ur­inn að sölu­fé­lögin falli vel að rekstri HB Granda og að þau séu í sam­ræmi við yfir­lýsta stefnu þess um efl­ingu sölu- og mark­aðs­starfs. Þetta er nið­ur­staða sjóðs­ins eftir grein­ingu á fyr­ir­liggj­andi gögn­um.“

[adspot]Svo virð­ist vera sem að þessi breyt­ing­ar­til­laga hafa verið tekin að ein­hverju leyti til greina, þó með þeim breyt­ingum að kaup­verðið verður allt greitt út strax en verði „sam­an­lagður rekstr­ar­ár­angur áranna 2019 og 2020, mælt í EBITDA, undir kynntri rekstr­ar­á­ætlun, sem er sam­tals USD 9,2 m, skal selj­andi end­ur­greiða hluta kaup­verðs. Sú lækkun kaup­verðs yrði þá greidd með sömu skil­málum og giltu í við­skipt­unum.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur fær því allt greitt strax í hlutafé en ef gengi hins keypta verður undir kynntri áætlun þá mun það skila hluta þess til baka. Félagið ábyrgist að hlutir verði til staðar til að efna þá leið­rétt­ingu ef með þarf.

Ein önnur til­laga var til umfjöll­unar á hlut­hafa­fund­inum. Hún snérist um að breyta nafni HB Granda í Brim, en það nafn bar Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur áður en félagið keypti sig af krafti inn í HB Granda. Auk þess er Guð­mundur Krist­jáns­son iðu­lega kenndur við Brim. Sú til­laga var sam­þykkt með atkvæðum 90,95 pró­sent þeirra hlut­hafa sem sátu fund­inn.

Gildi sagði nei

Fjórir líf­eyr­is­­­sjóð­ir: Líf­eyr­is­­­sjóður verzl­un­­ar­­manna, Líf­eyr­is­­­sjóður starfs­­­manna rík­­­is­ins (LS­R), Gildi og líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn Birta áttu sam­tals 40,11 pró­­­sent hlut í HB Granda fyrir við­skiptin.

A og B-deild LSR var sam­an­lagt stærsti eig­and­inn í líf­eyr­is­­sjóða­hópnum með alls 15,15 pró­­sent eign­­ar­hlut. A-deildin á 11,37 pró­­sent hlut en B-deildin 3,78 pró­­sent.

Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­­ar­­manna átti 12,53 pró­­sent hlut í HB Granda.

Gildi líf­eyr­is­­sjóð­­ur, sem er einnig stór hlut­hafi í HB Granda, til­­­kynnti í fyrra­dag að sjóð­­­ur­inn muni greiða atkvæði gegn kaup­unum á hlut­hafa­fundi sem fram fer í dag. Í til­­­kynn­ingu vegna þess kom meðal ann­­­ars fram að við­­­skipti við tengda aðila yrðu að vera hafin yfir allan vafa. Þær fyr­ir­ætl­­­­­anir sem fyrir liggi séu ekki trú­verð­ugar og sjóð­­­ur­inn telji að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­mið­um, mög­u­­­­lega með minni til­­­­­­­kostn­að­i.

Eftir við­skiptin mun hlutur Útgerð­­­­ar­­­­fé­lags Reykja­víkur í HB Granda hækka úr 35,01 pró­­­sent í 42,31 pró­­­­sent í HB Granda. Við það verður eign­­ar­hlutur Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur stærri en sam­eig­in­­legur eign­­ar­hluti líf­eyr­is­­sjóð­anna fjög­­urra sem eiga stóran hlut í HB Granda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár