Gripið inn í

Seðla­banki Íslands hefur að und­an­förnu ítrekað gripið inn í við­skipti á gjald­eyr­is­mark­aði með það að mark­miði að vinna á móti veik­ingu krón­unnar. Miklar sveiflur hafa ein­kennt gengi krón­unnar und­an­farna mán­uði. Hvað veldur? Hvers er að vænta?

Hinn 14. des­em­ber var lagt fram frum­varp á Alþingi, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mælti fyrir. Þegar það er orðið að lögum, sem hefur ekki gerst enn, þá munu eig­endur aflandskróna geta farið með fjár­muni úr landi.

Segja má að þetta sé loka­hnykk­ur­inn í þeirri for­dæma­lausu fjár­hags­legu end­ur­skipu­lagn­ingu sem Ísland hefur farið í gegnum frá því að neyð­ar­lögum var beitt í októ­ber 2008 og fjár­ma­gagns­höftum komið á mán­uði síðar.

Frelsi aflandskróna

Aflandskrónur, það er kvikar krónu­eignir í eigu erlendrar fjár­festa, eru nú rúm­lega 80 millj­arðar króna en á und­an­förnum árum hefur með mark­vissum hætti verið unnið að því að minnka þessa kviku krónu­eign. Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, lét hafa eftir sér í des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar frum­varpið var kynnt, að brátt yrði aflandskrónu­vand­inn úr sög­unni og það væri stórt og mikið skref.

Svo virð­ist sem þessi tíma­mót hafi hreyft við erlendum fjár­festum sem hafa verið nokkuð umsvifa­miklir hér á landi í við­skiptum. Þeir hafa verið að selja eignir á Íslandi og fara með þær úr landi, sem hefur sett þrýst­ing á krón­una til veik­ingar. Seðla­bank­inn hefur brugð­ist við þessu með inn­gripum í við­skipti, þar sem hann hefur keypt gjald­eyri og þannig unnið á móti veik­ingu krón­unnar. Fjóra við­skipta­daga í röð - föstu­dag­inn fyrir viku, mánu­dag­inn 8. jan­úar, þriðju­dag­inn 9. jan­úar og mið­viku­dag­inn 10. jan­úar greip hann að minnsta kosti sjö sinnum inn í við­skipti, þar af þrí­vegis á þriðju­dag­inn og í það minnsta tví­vegis á mið­viku­dag. Sam­an­lagt hafa við­skipti seðla­bank­ans verið upp á rúm­lega fjóra millj­arða króna.

Inngrip vekja undrun

Við­mæl­endur Kjarnans sögðu þetta óvenju­lega tíð inn­grip, og svo virt­ist sem ákveðið stefnu­leysi réði ríkjum, hvað þetta varð­aði. Már hefur sjálfur nefnt, að inn­gripa­stefnu bank­ans þurfi að skýra betur, og það sé vinna sem sé í gangi. Inn­gripin á gjald­eyr­is­mark­aði eru öðru fremur til að koma meiri stöð­ug­leika á mark­að­inn og draga úr óeðli­legum sveiflum. Inn­gripin virð­ast einnig skýr­ast af því, að það sé mat bank­ans að und­ir­liggj­andi stærðir í hag­kerf­inu bendi til þess að krónan hafi veikst óhóf­lega, meðal ann­ars þegar áhyggjur komu fram vegna slæmr­ar­stöðu flug­fé­laga.

Geng­is­sveiflur krón­unnar hafa verið hluti af íslenskum veru­leika alla tíð og seðla­bank­inn vill draga úr þeim, meðal ann­ars til að koma í veg fyrir of skað­leg áhrif á verð­bólgu. Innan fjár­magnas­hafta tókst að halda verð­bólg­unni í skefjum, en í um fjögur ár fór verð­bólgan ekki yfir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miðið. Á meðan gjald­eyr­is­tekj­urnar juk­ust jafnt og þétt, ekki síst vegna mik­ils vaxtar í ferða­þjón­ustu, þá styrk­ist gengi krón­unnar, sem svo dró úr verð­bólgu­þrýst­ingi.

Önnur tíð er nú á mörk­uðum, en segja má að það hafi verið tölu­verð tíma­mót þegar fjár­magns­höftum var aflétt. Á þeim tíma, á vor­mán­uðum 2017, var eft­ir­hruns­góð­ærið í hámarki. Árleg hækkun fast­eigna­verðs mæld­ist þá 23,5 pró­sent, hluta­bréf höfðu hækkað umtals­vert árin á undan, ferða­menn heim­sóttu landið sem aldrei fyrr, og end­ur­skipu­lagn­ing fjár­mála­kerf­is­ins hafði skapað alveg nýjan grund­völl til fram­tíðar litið, eins og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu á þessum vett­vangi í síð­ustu viku.

Frá þessum tíma hefur aðeins kólnað í hag­kerf­inu. Fjár­fest­ing hefur í meira mæli færst úr landi enda má segja að mikil upp­söfnuð þörf hafi verið fyrir hendi, þegar kemur að erlendri fjár­fest­ingu. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa ekki síst verið dug­legir við að fjár­festa utan land­stein­ana.

Eignir líf­eyr­is­sjóða námu 4.324 millj­örðum króna í lok nóv­em­ber og hækk­uðu um 57 millj­arða króna, eða 1,4 pró­sent, frá síð­asta mán­uði. Þar af voru eignir sam­trygg­inga­deilda 3.894 millj­arðar króna og sér­eigna­deilda 431 millj­arðar króna. Í lok nóv­em­ber námu inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða 3.151 millj­örðum króna. Þar af voru inn­lán í inn­lendum inn­láns­stofn­unum 171 millj­arðar króna og inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf 2.851 millj­arðar króna. Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða voru komnar upp í 1.173 millj­arða króna í lok nóv­em­ber en það er 31 millj­arða króna hækkun frá októ­ber. Hlutfall erlendra eigna af heild hjá líf­eyr­is­sjóð­unum, hefur sjaldan verið hærra en nú, eða í kringum 26 pró­sent að með­al­tali. Þeir hafa þó sett sér mark­mið um að hækka það veru­lega á næstu árum, eða upp í á bil­inu 30 til 40 pró­sent.

Titringur

Frá því í sept­em­ber hefur verið umtals­verður titr­ingur á gjald­eyr­is­mark­aði. Þar spilar inn í óvissan um fram­tíð WOW air. Ekki eru öll kurl komin til grafar enn þar sem samn­inga­við­ræðum banda­ríska félags­ins Indigo Partners, sem er með höf­uð­stöðvar í Arizona, og Skúla Mogensen, for­stjóra og eig­anda WOW air, er ekki lokið. Hinn 14. des­em­ber var til­kynnt að Indigo gæti fjár­fest í félag­inu upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.

Ekki liggur fyrir enn hvort samn­ingar náist, en óhætt er að segja að vonir standi til þess. Ragn­hildur Geirs­dóttir, sem verið hefur aðstoð­ar­for­stjóri WOW air frá því í ágúst í fyrra, er hætt störfum hjá félag­inu en hún tók við sem for­stjóri Reikni­stofu bank­anna á dög­unum.

Margir við­mæl­enda Kjarnans túlk­uðu þetta sem nei­kvæð tíð­indi fyrir WOW air, enda liggur fyrir að við­ræðum við Indigo er ekki lokið. Skyndi­legar breyt­ingar eins og þessar, á for­ystu félags­ins, geti varla verið til­viljun. En Skúli er þekktur fyrir allt annað en upp­gjöf og nei­kvæðni. Hann hefur tjáð sig öðru hvoru á sam­fé­lags­miðlum, í gegnum mik­inn rús­sí­bana sem hann og félagið hafa verið í und­an­farna mán­uði, vegna mik­illa fjár­hags­erf­ið­leika, og hefur hann sagt að upp­gjöf komi ekki til greina.

Miklar sveiflur hafa verið á gengi krón­unnar sam­hliða þessum tíð­indum og hafa aug­ljós­lega komið fram vænt­ingar á mark­aði um að mögu­lega geti WOW air fallið, með til­heyr­andi vand­ræðum fyrir hag­kerfið. Þannig hefur mark­aðsvirði Icelandair, helsta keppi­nautar WOW air, sveifl­ast fram og til baka sam­hliða jákvæðum eða nei­kvæðum tíð­indum af WOW air.

Seðla­bank­inn hefur látið til sín taka á gjald­eyr­is­mark­aði að und­an­förnu, en þó eru við­skipti Seðla­bank­ans óveru­legur hluti af heild­ar­velt­unni, sé miðað við töl­urnar í des­em­ber. Bankinn hefur þó verið virk­ari í inn­gripum sínum, nú í byrjun árs­ins, eins og áður segir.

Samkvæmt tölum sem Seðla­bank­inn birti fyrr í vik­unni, þá nam heild­ar­velta á milli­banka­mark­aði með gjald­eyri 145 millj­ónum evra, jafn­virði 20,1 millj­örðum króna, í des­em­ber 2018. Hlutur Seðla­bank­ans var 2 pró­sent af veltu mán­aðar. Með­al­gengi evru veikt­ist um 1,1 pró­sent milli mán­aða gagn­vart krónu, sam­kvæmt tölum seðla­bank­ans.

Í byrjun árs­ins hefur það helst verið tölu­vert sala erlendra aðila á eignum, sem sett hefur þrýst­ing á krón­una til veik­ingar. Meðal ann­ars Eaton Vance, sem fjallað er um hér að neðan, sem á mik­illa hags­muna að gæta hér á landi. 

Annað sem hefur sett þrýst­ing á gengi krón­unnar, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, eru vænt­ingar um að kjara­við­ræður fari mögu­lega á versta veg, og endi með verk­föllum. Eins og mál standa nú þá bendir fátt til þess að atvinnu­rek­endur og stétt­ar­fé­lög nái saman um kaup og kjör, en samn­ingar losn­uðu um ára­mót. Himinn og haf er á milli krafna stétt­ar­fé­laga og síðan mats atvinnu­rek­enda á því hversu mikið er hægt að hækka laun.

Könnun meðal atvinnu­rek­enda sýnir að þeir telja að laun geti hækkað um 1,9 pró­sent, en ekki meira en það. Kröfur stétt­ar­fé­lag­anna eru að laun hækki um 20 til 30 pró­sent, og að lægstu laun hækki úr 300 þús­und í 425 þús­und. Hættan er sú að þessar við­ræður sigli í strand, með þeim áhrifum að gengi krón­unnar falli. Það getur svo hleypt meira lífi í verð­bólgu­draug­inn.

Erfitt er þó að spá fyrir um hvernig málum mun lykta. Stundum koma lausn­irnar hratt og óvænt fram, þó langt virð­ist í land. Augljóst er að reyna mun á Bryndísi Hlöðvers­dóttur, rík­is­sátta­semj­ara, við að brúa bilið og ná aðilum vinnu­mark­að­ar­ins saman um nýja þjóð­ar­sátt. Deil­urnar eru nú þegar komnar inn á hennar borð að hluta til.

Seðla­banki Íslands er, þrátt fyrir allt, í góðri stöðu til að takast á við geng­is­sveiflur og óvænt áföll. Hreinn gjald­eyr­is­forði, þ.e. erlendar eignir að frá­dregnum erlendum skamm­tíma skuldum, nam um 769,1 millj­örðum króna í lok nóv­em­ber sam­an­borið við um 760,6 millj­arða í lok októ­ber. Mikill forði hefur safn­ast upp í góð­æri síð­ustu ára, sem gefur seðla­bank­anum færi á því að reyna að halda stöð­ug­leika á gengi krón­unnar. Ekki er þó á vísan að róa í þeim efnum, eins og sagan sýnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár