Mynd: Anton Brink

Sjávarútvegsfyrirtæki áttu 709 milljarða um síðustu áramót

Frá hruni hefur hagur allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins batnað um hátt í 500 millj­arða króna. Eigið fé þeirra hefur tífald­ast frá árinu 2010 og það jókst um 28,8 millj­arða króna í fyrra. Veiði­gjöld hafa hins vegar lækkað.

Eignir íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru 709 millj­arðar króna í lok árs í fyrra. Þær hafa hækkað feiki­lega í verði á und­an­förnum árum. Fyrir tveimur ára­tugum síðan voru þær 182,7 millj­arðar króna, 443 millj­arðar króna fyrir ára­tug en 709 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Frá árs­lokum 2010 hafa þær hækkað um 207 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tíð­indum Hagstofu Íslands, sem tekur árlega saman yfir­lit um rekstur helstu greina sjáv­ar­út­vegs. Tölurnar ná yfir fleiri fyr­ir­tæki í geir­anum en þær sem mynda sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunn Deloitte, sem tek­inn er saman árlega og kynntur á við­burði á vegum Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Sá gagna­grunnur nær yfir rekstur 92 pró­sent geirans. Kjarninn greindi frá síð­ustu birtu tölum hans í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Helstu eignir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, sem færðar eru í árs­reikn­inga, eru veiði­heim­ildir sem þeim er úthlutað, fiski­skip og annar útbún­aður sem er nauð­syn­legur til veiða og vinnslu. Hluti þeirra veiði­heim­ilda sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa fengið úthlutað er veð­settur bönkum.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar var eigið fé íslensks sjáv­ar­út­vegs 297 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Frá lokum árs 2010 hefur eigið féð tífald­ast sam­kvæmt þessum tölum, en það var þá 28,8 millj­arðar króna. Á síð­asta ári einu saman jókst eigið féð um 28,1 millj­arð króna.

Aukið eigið fé og háar arðgreiðslur

Þegar staðan er skoðuð frá hruni þá hefur eigið fé sjáv­ar­út­vegs auk­ist um 377 millj­arða króna, en eig­in­fjár­staða geirans var nei­kvæð í lok árs 2008 um rúm­lega 80 millj­arða króna. Í tölum Hag­stof­unnar er hægt að sjá hverjar arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa verið á und­an­förnum árum. Í grunni Deloitte, sem nær líkt og áður sagði yfir 92 pró­sent geirans og þar með talið allra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna, kemur hins vegar fram að frá árinu 2010 hafi arð­greiðslur numið 92,5 millj­örðum króna. Í fyrra greiddu fyr­ir­tækin sér út 12,3 millj­arða króna í arð.

Frá árinu 2010 hefur hagur eig­enda sjáv­ar­út­veg­ar­ins – aukn­ing í eigin fé auk arð­greiðslna – batnað um tæpan 361 millj­arð króna. Frá hruni hefur hann batnað um 470 millj­arða króna hið minnsta.

Sam­herj­­a-­­sam­­stæðan, sem er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og sam­anstendur af tveimur félög­um, átti ein og sér upp­gefið eigið fé upp á 110,7 millj­­arða króna í lok síð­­asta árs. Hagn­aður Sam­herja vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­­örðum króna. Hagn­aður Sam­herj­­­a­­­sam­­­stæð­unnar hefur þar með numið yfir 112 millj­­­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka síð­­­asta árs. Hagn­að­­­ur­inn dróst lít­il­­­lega saman milli áranna 2017 og 2018, en hann var 14,4 millj­­­arðar króna á fyrra árin­u.

Veiðigjöld lækka vegna fjárfestingar

Veiði­gjöld, sér­stakt gjald sem útgerðir greiða fyrir aðgengi að kvóta, hafa að sama skapi verið að lækka. Þau voru 11,3 millj­arðar króna í fyrra, sem eru þau hæstu sem geir­inn hefur greitt. Það nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára, úr 6,8 millj­örðum króna árið 2017. Samtals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 63,3 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Ný lög um veiði­gjald tóku gildi um síð­ustu ára­mót þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns. Í fjár­laga­frum­varp­inu sagði að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­ferð upp­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­ár­s.

Veiði­gjöldin lækka á þessu ári, en áætlað er að þau skili um sjö millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í ár sam­kvæmt gild­andi fjár­lögum. Á næsta ári munu þau hins vegar lækka umtals­vert aftur og verða um fimm millj­arðar króna.

Í umræðum um breytt fjár­laga­frum­varp vegna árs­ins 2020 kom ítrekað fram að lækk­unin sé að uppi­stöðu vegna mik­illar fjár­fest­ingar í grein­inni. Um er að ræða skatta­legar fyrn­ingar skipa og skips­bún­aðar.

Frá­drætti vegna fjár­fest­inga var breytt með nýju lög­unum sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mælti fyrir og tóku gildi í byrjun árs 2019.

Safnast á fáar hendur

Úthlut­aður kvóti hefur safn­ast á fárra hendur frá því að hann var gerður fram­selj­an­legur á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Samkvæmt lögum mega tengdir aðilar ekki halda á meira en 12 pró­sent af heild­ar­kvóta hverju sinni. Rík­is­end­ur­skoðun benti hins vegar á það í stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu, sem birt var í jan­úar síð­ast­liðnum, að hún kanni ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en 12 pró­sent af heild­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög. „Fiski­stofa treystir nán­ast alfarið á til­kynn­ing­ar­skyldu fyr­ir­tækja við eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda,“ segir í skýrsl­unni.

Ef ein­hver reyn­ist vera með yfir 12 pró­sent af kvót­anum, sam­kvæmt eigin skil­grein­ingu á því hvað felist í tengdum aðilum, þá fær við­kom­andi sex mán­uði til að kom­ast undir þakið.

Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni að ráð­ast þyrfti í end­ur­skoðun á ákvæðum laga um stjórn fisk­veiða um „bæði yfir­ráð og tengsl aðila svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda“.

Hvað eru tengdir aðilar?

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er líka rakið að Fiski­stofa hafi, á árunum 2009 og 2010, fram­kvæmt frum­kvæð­is­rann­sókn á Samherja, Síld­ar­vinnsl­unni og Gjögur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar með 34,2 pró­sent eign­ar­hlut. Gjögur, sem er meðal ann­ars í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar, sitj­andi for­stjóra Samherja, og systk­ina hans, heldur einnig á 1,05 pró­sent alls kvóta um þessar mundir. Björgólfur er auk þess í stjórn Gjögurs. Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja og einn aðal­eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins, var auk þess stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar árum saman, þangað til að hann sagði af sér í síð­asta mán­uði.

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji með 7,1 pró­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­ar, sem er í 100 pró­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækið Berg­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. 

Sam­an­lagt er afla­hlut­­deild þess­­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­­sent, eða langt yfir lög­bundnu hámarki, sem var sett til að koma í veg fyrir að of mikið af afla­heim­ildum myndi safn­ast á fárra hend­ur.

Björgólfur Guðmundsson, sitjandi forstjóri Samherja, er einn eigenda Gjögurs.
Björgólfur Guð­munds­son, sitj­andi for­stjóri Samherja, er einn eig­enda Gjögurs.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að sér­stakur vinnu­hópur Fiski­stofu hafi þá haft „til skoð­unar hvort telja ætti fyr­ir­tækin sem tengda aðila. Þau svör­uðu því til að engin rök væru fyrir því að Samherji og Gjögur færu með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni. Rann­sóknin átti sam­kvæmt upp­lýs­ingum Rík­is­end­ur­skoð­unar stóran þátt í þeirri nið­ur­stöðu Fiski­stofu að erfitt sé að sýna fram á óbein yfir­ráð aðila yfir afla­hlut­deildum miðað við núgild­andi lög og færa rök fyrir því hvenær tveir eða fleiri aðilar skuli telj­ast tengdir[...]Fiski­stofa hafi af þeim sökum ekki sinnt virku eft­ir­liti með tengslum fyr­ir­tækja sam­kvæmt ákvæð­inu.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað, í kjöl­far skoð­unar Fiski­stofu, að kanna hvort að Samherji, Gjögur og Síld­ar­vinnslan væru ótengd líkt og þau hefðu haldið fram. Þeirri könnun lauk aldrei og var að lokum hætt vegna anna eft­ir­lits­ins við önnur störf. 

Kjarninn greindi frá því 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að í glæru­kynn­ingum Samherja, sem eru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks hefur birt á net­inu og eru ræki­lega merktar trún­að­ar­mál, megi skýrt sjá að erlendis er Síld­ar­vinnslan kynnt sem hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni.

Eftir að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um Fiski­stofu var birt í jan­úar skip­aði Kristján Þór Júl­í­us­son verk­efn­is­stjórn til að koma með til­lögur um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni. Hún átti meðal ann­ars að bregð­ast við ábend­ingum um þá stöðu að eft­ir­lit með kvóta­sam­þjöppun væri í molum. Í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins hefur Kristján Þór látið flýta vinnu verk­efna­stjórn­ar­innar og á hún nú að skila fyrir lok árs. Fáir hópar halda á þorra kvót­ans

Sam­herj­a­sam­stæðan er ekki sú eina sem liggur undir grun um að vera komin vel yfir 12 pró­sent afla­hlut­deild­ar­mark­ið. Raunar liggur fyr­ir að Brim fór yfir það hámark fyrr í nóv­em­ber þegar stjórn þess sam­þykkti samn­inga um kaup á tveimur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækjum í Hafn­­ar­­firði, Fisk­vinnsl­unni Kambi og Grá­brók. Sam­an­lagt kaup­verð nemur rúm­­lega þremur millj­­örðum króna.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á um 46,26 pró­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag var 1. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­­sent afla­hlut­­deild. Stærstu ein­­stöku eig­endur þess eru Guð­­mundur Krist­jáns­­son, aðal­­eig­andi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur og for­­stjóri Brims, og tvö syst­k­ini hans með sam­an­lagðan 36,66 pró­­sent end­an­­legan eign­­ar­hlut. Eigandi KG Fisk­verk­unar er Hjálmar Þór Krist­jáns­son, bróði Guð­mundar.

Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga, sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var því 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins, og hið minnsta rúm­lega 17 pró­sent eins og er.

Aðrir hópar eru líka stór­ir. Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á til dæmis FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­sent heild­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­sent í Vinnslu­­stöð­inni í Vest­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­sent heild­­ar­afla­hlut­­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­­ías Cecils­­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­ar­kvóti þess­­ara þriggja aðila 10,6 pró­­sent.

Vísir og Þor­björn í Grinda­vík halda síðan sam­an­lagt á 8,4 pró­­sent af heild­­ar­kvót­­an­um. Þau fyr­ir­tæki eru nú í sam­eig­ing­­ar­við­ræð­­um. Sam­an­lagt eru þessar fjórar blokkir því með vel yfir helm­ing alls úthlut­aðs kvóta, eða tæp­lega 53 pró­sent hið minnsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár