Bankinn sem kom í fang Breta tapar og tapar

Royal Bank of Scotland (RBS) tapaði 134 milljónum punda á þriðja ársfjórðungi, eða sem nemur um 26 milljörðum króna. Þetta er viðsnúningur frá sama tíma í fyrra, þegar bankinn hagnaðist um 1,1 milljarða punda, eða tæplega 210 milljarða króna.

Frá því að breska ríkið bjargaði rekstri bankans, með 46 milljarða punda framlagi haustið 2008, hefur bankinn gengið í gegnum mikið hagræðingar­skeið og erfið­leika. Meira en tíu þúsund störf hjá bankanum hafa verið aflögð á heimsvísu og niður­skurðurinn nemur meira en þremur milljörðum punda árlega í rekstri.

Samkvæmt tilkynningu frá bankanum, sem Reuters vitnar til í dag, þá eru frekari erfið­leikar framundan þar sem bankinn á enn eftir að gera upp gamlar syndir sínar gagnvart yfir­völdum, þrátt fyrir að breskir skatt­greiðendur eigi bankann að mestu, eða 73 prósent. Bankinn hefur þegar lagt til hliðar 4,5 milljarða punda, vegna mögulegra sekta­greiðslna, þar sem rann­sóknir eru enn í gangi vegna meintra lögbrota bankans, einkum á markaði meða vaxtaálög á milli­banka­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár