Sérfræðingar og nemar við CBS rannsaka kaupasýki Dana

Talið er að um 300 þúsund Danir séu haldnir því sem kallað er kaupasýki (köbemani). Nú ætla nemar og sérfræðingar við Viðskipta­háskólann í Kaupmanna­höfn (CBS) að freista þess að komast að hvað veldur þessari sýki, tilgangurinn er að finna aðferðir til að lækna kaupa­sýkina.

Flestir hafa heyrt um eða þekkja jafnvel einhvern sem að sögn er haldinn kaupasýki. Erfitt er að skilgreina þetta fyrirbæri með nákvæmum hætti, en það lýsir sér oftast þannig að sá eða sú kaupa­sjúka getur varla stigið fæti inn í verslun án þess að kaupa eitthvað. Þá iðulega hluti sem viðkomandi hefur enga þörf fyrir og keypti bara án þess að hafa leitt hugann að því fyrirfram að akkúrat þennan hlut (jakka, blómavasa o.s.frv. o.s.frv.) væri þörf á að eignast.

Iðulega endar það sem keypt er með þessum hætti inni í skáp, ónotað, og endar loks í ruslinu eða í einhvers konar endur­nýtingu. Þeir sem eru illa haldnir af sýkinni missa algjör­lega stjórnina, eyða öllum sínum peningum í innkaupin, taka svo lán á lán ofan til að geta haldið áfram að kaupa og leggja á endanum fjárhag sinn og fjöl­skyldunnar í rúst. Í mörgum löndum eru stofnanir sem reyna að hjálpa fólki að takast á við kaupa­sýkina. Hér í Danmörku eru fleiri en ein slík, sú þekktasta er Dansk Misbrugs Behandling (DMB) sem reyndar hefur margt fleira á sinni könnu svo sem meðferð við áfengis­sýki og spilafíkn.

Stór hópur sem fer ört stækkandi


Í Danmörku hefur kaupa­sýkin verið tals­vert rann­sökuð. Fyrir nokkrum árum birt­ust í skýrslu stofn­unar sem heitir Psyki­at­ri­fonden tölur um kaupa­sjúka Dani, shopaholics eins og þeir eru nefndir. Mörgum kom á óvart hve margir eru, sam­kvæmt skýrsl­unni haldnir kaupa­sýk­inni, 300 þús­und manns. Þessi tala er þó ekki mjög áreið­an­leg og ýmis­legt bendir til að hún sé of lág. Til­tölu­lega fleiri konur en karlar eru haldnar sýk­inni að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Hvað veldur kaupasýkinni?


Á und­an­förnum árum hafa margir spurt þess­arar spurn­ingar en fátt verið um svör. Óánægja og lífs­leiði er iðu­lega nefnt til skýr­ingar, öfund­sýki og sam­an­burður við náung­ann (hann á fjöl­hraða bor­vél en ekki ég, Sigga í næsta húsi er barasta með nýja hanska á hverjum degi, hún er líka með nýtt borð­stofu­sett o.s.frv.). Sér­fræð­ingar DMB segja að þessar skýr­ingar geti vissu­lega stundum átt við en flestum til­vikum sé orsakanna þó að leita ann­ars staðar. En hvar? Það er stóra spurn­ingin.

Rannsóknir Viðskiptaháskólans


Í fyrra gerðu sér­fræð­ingar og nemar við Við­skipta­há­skól­ann, CBS rann­sókn sem segja má að sé und­an­fari þeirrar rann­sóknar sem nú er að hefj­ast. Í þeirri rann­sókn (sem 100 konur tóku þátt í) fékk hver um sig afhenta til­tekna pen­inga­upp­hæð sem eyða mátti til kaupa á fatn­aði, skóm eða töskum. Konunum voru jafn­framt sýndar myndir af ýmsum frekar dýrum merkja­vörum. Í ljós kom að af þessum hópi, sem val­inn var af handa­hófi voru um það bil 10 pró­sent sem flokka mætti kaupa­sjúkar. Þessi 10 pró­sent hættu ekki að kaupa þótt pen­ing­arnir sem þær fengu úthlutað væru búnir.

Rann­sóknin sem nú er að hefjast er með öðrum hætti. Hver þáttakandi fær sérstök gleraugu sem mæla augn­hreyfingar og með sérstökum mæli­tækjum (komið fyrir á höfðinu, undir húfu) verður hægt að mæla viðbrögð heilans meðan verslunar­ferðin stendur yfir. Eftir á verða svo tekin viðtöl við þáttakendur. Sérfræðingarnir vonast til að komast að því hvenær þær kaupa­sjúku lenda út af sporinu, ef svo má segja, er það áður en þær fara inn í búðina eða þegar þær sjá hlutinn eða hlutina sem þær verða að eignast. Nokkrar verslanir í Kaupmanna­höfn taka þátt í þessu verkefni, en ekki hefur verið látið uppi hvaða verslanir það eru og ekki heldur nákvæmlega hvenær rann­sóknin hefst. Sérfræðingarnir hjá CBS vonast til að þessi rannsókn leiði til þess að auðveldara verði að hjálpa þeim sem glíma við kaupa­sýkina að sigrast á henni.

„Við gerum okkur grein fyrir því að slík lækning hentar kannski ekki þeim sem standa í verslana­rekstri en hún er þeim mun gagnlegri fyrir þá sem haldnir eru sýkinni,“ sagði einn sérfræðinga Viðskipta­háskólans í blaða­viðtali fyrir nokkrum dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár