Dreifing Fréttablaðsins fer úr 80 þúsund í 45 þúsund eintök á dag eftir breytingarnar

Lesendur fá ekki lengur prent­útgáfu Frétta­blaðsins inn um lúguna snemma að morgni heldur þurfa að sækja sér blaðið á fjölfarna staði í þar til gerða kassa. Upplag blaðsins var 80 þúsund þegar því var dreift í hús. Það næstum helmingast við breytinguna.

Þeir sem vilja lesa Fréttablaðið á prenti þurfa nú að nálgast blaðið í kassa sem þessum, sem er að finna í matvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem vilja lesa Frétta­blaðið á prenti þurfa nú að nálg­ast blaðið í kassa sem þessum, sem er að finna í mat­vöru­verslun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Kjarninn

Frétta­blaðinu, sem áður kom út í 80 þúsund eintökum á dag og var dreift inn á heimili fólks á höfuð­borgar­svæðinu og Akureyri að morgni, er nú dreift í 25 þúsund eintökum á höfuð­borgar­svæðinu og tíu þúsund eintökum á lands­byggðinni. Dreifingin fer fram á 120 stöðum, á borð við matvöru­verslanir, bensín­stöðvar og sund­laugar, á höfuð­borgar­svæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Dreifing blaðsins í liðinni viku var því um 43 prósent af því sem hún var þegar blaðið var borið í hús.

Í Frétta­blaðinu í dag er greint frá því að til standi að auka daglega dreifingu í 45 þúsund í næstu viku. Það er 56 prósent af því upplagi sem dreift var af síðasta Frétta­blaði ársins 2022.

Greint var frá því í upphafi árs að hætt yrði að dreifa Frétta­blaðinu inn á heimili fólks, líkt og gert hefur verið frá því að fríblaðið var stofnsett árið 2021. Dreifingin var í höndum Póst­dreifingar, fyrir­tækis sem Torg, útgáfu­félag Frétta­blaðsins, á stóran hluta í á móti framkvæmda­stjóra þess og Árvakri, útgáfu­félagi Morgun­blaðsins. Með því að hætta dreifingu í hús áætlar Torg að Póst­dreifing verði af um einum milljarði króna í tekjum á þessu ári, en heildar­tekjur þess fyrir­tækis voru um 1,7 milljarðar króna árið 2021.

Lestur dregist hratt saman

Með þeirri dreifingu sem áður var, þar sem blaðið kom inn um lúgu fjölda fólks á hverjum morgni, náði Frétta­blaðið yfirburða­stöðu á prent­markaði á Íslandi. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­­­­­sent lands­­­­­manna lesa Frétta­­­­­blað­ið. 

Síðan hefur fjarað jafnt og þétt undan lestrinum vegna ýmissa ástæðna. Tækni­bylting samhliða snjall­væðingu og stafrænum framförum hefur skilað breyttri neyslu­hegðun, enda leiðir lesenda og áhorfenda til að nálgast fréttir allt aðrar í dag en þær voru fyrir 15 árum síðan.

Lestur Frétta­blaðsins hefur dregist hratt saman samhliða þessum breytingum. Hann fór undir 50 prósent 2015, undir 40 prósent fyrir tæpum þremur árum undir 30 prósent í fyrra og í síðustu mælingu fyrir breytingarnar á dreifi­kerfinu stóð hann í 28,2 prósentum. Samdrátturinn er enn meiri hjá yngri hluta þjóðarinnar, full­orðnum einstaklingum undir 50 ára sem alla jafna eru taldir mikil­vægustu skotmörk auglýsenda. Hjá þeim hópi hefur lesturinn farið úr 64 prósent í 17,9 prósent á tólf árum.

Til að bregðast við þessari þróun fækkaði Frétta­blaðið útgáfu­dögum úr sex í fimm árið 2020. Í haust boðaði jón Þórisson, forstjóri útgáfu­félags blaðsins, svo frekari breytingar og sagði óumflýjanlegt að á einhverjum tíma­punkti myndi Frétta­blaðið hætta að koma út á prenti.

„Er álverið hætt að veita bjartsýnisverðlaunin?“

Skrefið sem var stigið í byrjun árs var þó ekki full tilfærsla yfir í stafræna útgáfu, heldur að dreifa blaðinu í þar til gerða kassa á fjöl­förnum stöðum. Gunnar Smári Egilsson, sem tók þátt i að stofna Frétta­blaðið, var einn helsti hugmynda­fræðingurinn á bakvið útgáfu­módelið í árdaga þess og stýrði útgáfunni á þeim tíma sem hún var í mestum vexti, virðist ekki hafa mikla trú á þessari breytingu. Hann skrifaði í stöðu­uppfærslu á Facebook: „Fólk í vanda verður oft vonglatt. Útgefandi Frétta­blaðsins, sem telur sér trú um að halda megi óbreyttum lestri með því að hætta að bera út blaðið, er að slá einhver met að þessu leyti. Er álverið hætt að veita bjartsýnis­verðlaunin?“

Fyrir­komulagið sem nú verður á dreifingunni felur í sér að Frétta­blaðið liggur ekki lengur á mottunni hjá fólki að morgni, heldur þurfa áhuga­samir að sækja sér blaðið, vilji þeir það á prenti, í matvöru­verslun, á bensínstöð, í sundlaug eða á aðra staði þar sem það er fáanlegt í þar til gerðum stöndum. Í þessu fyrir­komulagi felst sú eðlis­breyting að íbúar á dreifingar­svæði Frétta­blaðsins þurfa að velja að sækja sér blaðið, í stað þess að fá það nema þeir óski sérstak­lega eftir því að fá það ekki. Auk þess stendur fólki áfram sem áður til boða að lesa blaðið stafrænt á netinu eða í appi, líkt og verið hefur árum saman.

Hver áhrif þessara breytinga verða á lestur Frétta­blaðsins mun koma í ljós þegar Gallup birtir fyrstu mælingu sínu á lestri prent­miðla þar sem að fullu verður tekið tillit til þeirra. Það verður líkast til ekki fyrr en í byrjun febrúar.

Nýir eigendur sett mikið fé inn í reksturinn

Frétta­­blaðið er í eigu útgáfu­­­­fé­lags­ins Torgs og er flagg­­­­skip þess félags. Félagið rekur einnig vefmiðlana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is, frettabladid.is og sjón­­­­­varps­­­­­stöð­ina Hring­braut.

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­­­­nefnda félags­­­­­­ins er fjár­­­­­­­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­­­­son og hann á 82 pró­­­­­­sent í því síð­­­­­­­­­­­ar­­­­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­for­­­­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­­­­urður Arn­gríms­­­­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­­­­skipta­­­­­­fé­lagi Helga til margra ára, áður­­­nefndur Jón Þór­is­­­­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­­­­stjóri Frétta­­­­­­blaðs­ins og núver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Torgs, og Guð­­­­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­­­­varps­­­­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­­­­kvæmda­­­­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­­­­skrár­­­­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­­­­arra en Helga er hverf­andi.

Hóp­­­­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­­­­að­­­­­­ar­­­­­­mál en í árs­­­­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­­­­ins. Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­­­ónir króna í lok árs 2020 og aftur um 300 millj­­ónir króna um ári síðar. Með nýju hluta­fjár­­­aukn­ing­unni höfðu verið settir 1,5 millj­­­arðar króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­­­aukn­ingar frá því að Helgi og sam­­­starfs­­­menn hans komu að rekstr­inum 2019.

Tap af reglu­­legri starf­­semi fjöl­miðla­­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs var 325,7 millj­­ónir króna á árinu 2021, sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi félags­­ins. Heild­­ar­tapið var 252,5 millj­­ónir króna en þar munar mestu um að tekju­skattsinn­­eign vegna taps árs­ins var bók­­færð sem tekjur upp á 73 millj­­ónir króna. Upp­­safnað skatta­­legt tap nýt­ist ekki nema að fyr­ir­tæki skila hagn­að­i.

Á árunum 2019 og 2020 var millj­­­arðs króna tap af reglu­­­legri starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­an­lagt hefur því verið rúm­­lega 1,3 millj­­arða króna tap af henni á þremur árum. Heild­­ar­tap, þegar búið er að taka til­­lit til þeirrar tekju­skattsinn­­eignar sem skap­að­ist vegna taps­ins á þessum árum, var tæp­­lega 1,1 millj­­arður króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár