Spilaði sakamálahlaðvarp stórt hlutverk í lausn Syed?

Hann er stjarna vin­sælasta saka­mála­hlað­varps heims­ins. En það þurfti meira til en „Serial“ til að leysa Adnan Syed úr haldi eftir 22 ára fang­els­is­vist.

Adnan Syed var tekið fagnandi þegar hann var leystur úr haldi á mánudag eftir nærri 23 ára fangelsisvist. SJálfur sagði hann ekki orð en brosti út í annað.
Adnan Syed var tekið fagn­andi þegar hann var leystur úr haldi á mánu­dag eftir nærri 23 ára fang­els­is­vist. SJálfur sagði hann ekki orð en brosti út í annað. Mynd: EPA

Saka­málið sem allir unn­endur saka­mála­hlað­varpa þekkja, mál Adnan Syed, komst í hámæli í vik­unni þegar Syed var sleppt úr haldi eftir 22 ára fang­els­is­vist.

Þakka má sam­spili klókinda lög­fræð­inga og vina Syed og laga­breyt­inga á dómum yfir sak­born­ingum undir lög­aldri fyrir að dómur yfir Syed var ógiltur, að ógleymdum tugum millj­óna hlað­varps­hlust­enda.

Adnan Syed, sem setið hefur í fang­elsi í 22 ár fyrir morðið á Hae Min Lee, fyrr­ver­andi kær­ustu sinni og bekkj­ar­fé­laga, var sleppt úr haldi í vik­unni eftir að dóm­ari ógilti dóm yfir honum vegna nýrra upp­lýs­inga. Syed hefur ekki verið lýstur sak­laus og verður í stofu­fang­elsi þar til frek­ari ákvarð­anir verða teknar.

Mál Syed er um margt áhuga­vert, ekki síst vegna umfjöll­unar um rann­sókn­ina og sak­fell­ing­una sjálfa. Fjallað var um málið í hlað­varps­þætt­inum Serial árið 2014, fyrsta saka­mála­hlað­varp­inu sem byggir á sönnum saka­málum (e. true crime). Serial greiddi götu saka­mála­hlað­varpa sem hlaupa nú á hund­ruðum en óhætt er að full­yrða að ekk­ert þeirra hefur náð jafn miklum vin­sældum og Serial.

Adnan Syed var 18 ára þegar hann hlaut lífs­tíð­ar­dóm fyrir morðið á Hae Min Lee, fyrr­ver­andi kær­ustu sinni, árið 1999. Lee, sem var 18 ára, sást síð­ast yfir­gefa Woodlawn-fram­halds­skól­ann í Baltimore 13. jan­úar 1999. Lík hennar fannst um mán­uði seinna, grafið í almenn­ings­garði. Rannsókn lög­reglu beind­ist fljótt að Syed sem var hand­tek­inn, grun­aður um morðið, en hann hefur frá upp­hafi haldið fram sak­leysi sínu og farið fram á end­ur­upp­töku­beiðni án árang­urs, síð­ast fyrir þremur árum.

Í rétt­ar­höld­unum yfir Syed árið 1999 sögðu sak­sókn­arar Syed vera „fyr­ir­lit­legan elsk­huga“ sem kyrkti Lee og hafi, með hjálp frá vini, falið lík hennar í Leakin-almenn­ings­garð­inum í Baltimore. Sak­sókn­arar studd­ust að hluta við stað­setn­ing­ar­gögn úr far­síma. Nýjar rann­sóknir hafa sýnt fram á að gögnin eru óáreið­an­leg. Það er einmitt aðal­á­stæða þess að Marilyn Mosby, yfir­sak­sókn­ari í Baltimore, fór fram á að dóm­ur­inn yfir Syed yrði ógiltur.

Upphafið af vinsældum sakamálahlaðvarpa

Tíu árum eftir að lífs­tíð­ar­dómur var kveð­inn upp yfir Syed hafði Rabia Chaudry, lög­maður og fjöl­skyldu­vinur Syed, sam­band við blaða­mann­inn Sarah Koenig og bað hana að rann­saka morðið á Lee. Koenig vissi lítið sem ekk­ert um málið á þessum tíma en það vakti athygli hennar. Rann­sókn­ar­vinna hennar skil­aði sér í hlað­varps­þátt­unum Serial, sem hófu göngu sína haustið 2014, þar sem mark­miðið var að setja saman tíma­línu um það sem átti sér stað kvöldið sem Lee var myrt.

Serial ýtti undir vin­sælda hlað­varpa, á því leikur eng­inn vafi. Stíl­bragð Koenig og við­fangs­efnið, nýlegt saka­mál, urðu til þess að hlust­endum fjölg­aði í hverri viku. Fyrstu þátta­röð­inni af Serial, þar sem fjallað er um mál Syed, hefur verið halað niður meira en 300 milljón sinnum sem setur það í hóp vin­sæl­ustu hlað­varpa í heimi. Þátt­arað­irnar þar á eftir nutu ekki jafn mik­illa vin­sælda en Koening og teymi hennar greiddu engu að síður leið ann­arra saka­mála­hlað­varpa.

Slík teg­und hlað­varpa, þar sem fjallað er um sönn saka­mál, njóta gríð­ar­legra vin­sælda. Með þeim getur hver sem er sett sig í spor rann­sókn­ar­lög­reglu með auknu upp­lýs­inga­flæði og leiðum til að miðla efni, ekki síst á sam­fé­lags­miðlum, allt frá Facebook til TikTok.

Heilinn veitir ógnvænlegu efni meiri athygli

Kjarninn ræddi við Margréti Valdi­mars­dóttur, doktor í afbrota­fræði og dós­ent í lög­reglu­fræði við Háskól­ann á Akureyri, síð­asta haust um breyttan veru­leika við umfjöllun saka­mála.

„Heil­inn á okkur er hann­aður til að veita því sem er ógn­væn­legt meiri athygli en því sem er gott og jákvætt. Til að forða okkur frá hættu. Við ofmetum hætt­una eða lík­urnar á því að vera drepin af morð­ingja eða maka til dæm­is. Í ljósi hver við erum sem mann­eskjur er þessi áhugi ekk­ert skrýt­inn, þetta er bara meira spenn­andi núna. En fyrir marga er þetta bara spennu­saga en þetta gefur okkur meira af því þetta er að ger­ast núna og þetta er alvöru og því meira spenn­and­i,“ sagði Margrét meðal ann­ars í sam­tali við Kjarnann í fyrra.

Að hennar sögn er engin ástæða til að ótt­ast þennan breytta veru­leika, það er þegar hver sem er virð­ist geta sett sig í spor rann­sókn­ar­lög­reglu, en að mik­il­vægt sé að gera grein­ar­mun á saka­málum sem afþr­ey­ingu og lög­reglu­rann­sókn.

Koenig virð­ist hafa tek­ist að feta ein­hvers konar milli­veg með Serial. Hún rann­sak­aði málið sjálf og það, auk laga­breyt­ingar, varð til þess að dómur yfir Syed var ógiltur.

Í hlað­varps­þátt­unum er meðal ann­ars varpað ljósi á fjöl­mörg Brady-brot (e. Brady violations), það er brot þar sem ákæru­valdið neit­aði að afhenda sönn­un­ar­gögn sem hefði mögu­lega getað leitt til sýknu í aðdrag­anda rétt­ar­hald­anna yfir Syed.

Lagabreyting sem skipti sköpum

Syed var hins vegar alltaf neitað um end­ur­upp­töku. En í októ­ber í fyrra tók laga­breyt­ing gildi í Maryland, rík­inu sem Syed afplánar lífs­tíð­ar­dóm sinn, sem kveður á um að fangar geti farið fram á mild­ari dóm ef þeir hafa setið inni í að minnsta kosti 20 ár fyrir glæpi sem þeir frömdu þegar undir lög­aldri. Lög­fræð­ingar Syed voru ekki lengi að vísa máli hans til Marilyn Mosby, yfir­sak­sókn­ara í Baltimore. Þá loks fór bolt­inn að rúlla.

Við yfir­ferð máls­ins kom ýmis­legt nýtt í ljós, meðal ann­ars ný sönn­un­ar­gögn sem sýndu fram á að ákæru­valdið vissi af tveimur öðrum mönnum sem voru mögu­legar grun­aðir um morðið. Þeim upp­lýs­ingum var ekki komið til verj­enda Syed. Sönn­un­ar­gögnin sýna meðal ann­ars að annar mann­anna hót­aði að láta Lee „hverfa“ og „drepa hana“.

Melissa Phinn, dóm­ari við svæð­is­dóm­stól í Baltimore, sagði við dóms­upp­kvaðn­ingu á mánu­dag að úrskurður hennar byggi á „sann­girni og rétt­læti“ og sagði hún rík­is­valdið hafa brugð­ist í að leggja fram sönn­un­ar­gögn sem hefðu varið hann fyrir dóm­stólum.

Syed, sem er 41 árs í dag, er þó ekki laus allra mála, síður en svo, þar sem ekki er búið að lýsa hann sak­lausan. Sak­sókn­ara­emb­ættið hefur 30 daga til að taka ákvörðun um hvort Syed verði ákærður að nýju eða fallið verði frá öllum mála­til­bún­aði.

„Við erum ekki búin að lýsa Adnan Syed sak­lausan,“ sagði Mosby yfir­sak­sókn­ari í sam­tali við fjöl­miðla fyrir utan dóms­húsið eftir að dóm­ari fyr­ir­skip­aði lausn Syed.

Ekki hlaðvarp heldur martröð

Young Lee, bróðir Hae Min Lee, var við­staddur þegar dómur yfir Syed var ógiltur í vik­unni

„Þetta er ekki hlað­varp fyrir mér. Þetta er alvara lífs­ins sem mun engan endi taka. Þetta hefur verið staðan í yfir 20 ár. Þetta er martröð,“ sagði Young Lee.

Fjöl­skylda Lee neit­aði frá upp­hafi að taka þátt í hlað­varps­þátt­unum og hafa ávallt haldið því fram að Syed sé sekur. Young Lee seg­ist samt sem áður hafa trú á rétt­ar­kerf­inu og styðji það ferli sem nú er fram undan: Að vita fyrir víst hver myrti systur hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár