Verður morðið á Gabby Petito leyst á TikTok?

Margrét Valdi­mars­dóttir, doktor í afbrota­fræði, segir enga ástæðu til að ótt­ast breyttan veru­leika við umfjöllun saka­mála en mik­il­vægt sé að að gera grein­ar­mun á saka­málum sem afþr­ey­ingu og lög­reglu­rann­sókn.

Gabby Petito
Gabby Petito Mynd: Instagram

Gabrielle Venora Petito var 22 ára banda­rísk kona sem þráði að skapa sér nafn á sam­fé­lags­miðlum. Í sumar ákvað hún að láta draum­inn ræt­ast þegar hún lagði upp í ferða­lag um Banda­ríkin ásamt kærasta sínum, Brian Laundrie. Gabby, eins og hún var gjarnan kölluð, deildi frá ferða­lag­inu á sam­fé­lags­miðlum, aðal­lega Instagram og Youtube.

Ferða­lagið hófst í júní. Gabby og Brian ferð­uð­ust á hvítum Ford sendi­ferða­bíl sem Gabby átti og ætl­aði parið að ferð­ast um ríki og þjóð­garða í vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna. Gabby var í góðu sam­bandi við fjöl­skyldu sína á ferða­lag­inu en síð­ustu vik­una í ágúst heyra þau lítið sem ekk­ert frá henni og SMS-skila­boð sem hún sendi vöktu upp grun­semdir.

Fjöl­skyldan til­kynnti um hvarf Gabby 11. sept­em­ber. Fimm dögum síðar biðl­aði fjöl­skylda Gabby til fjöl­skyldu Brians að aðstoða við leit­ina. Daginn eftir, 17. sept­em­ber, til­kynnti fjöl­skylda Brians að hann væri einnig horf­inn. Lík Gabby finnst tveimur dögum síðar í skógi í Wyoming. Öll spjót bein­ast að Brian sem lög­regla leitar enn.

Frá þúsund fylgjendum í 1,3 milljónir

Málið hefur vakið gríð­ar­lega mikla athygli, ekki síst þar sem Gabby og Brian höfðu leyft fylgj­endum að fylgj­ast með ferða­lag­inu á sam­fé­lags­miðlum. Gabby var með um 1.000 fylgj­endur á Instagram en þegar fregnir bár­ust af hvarfi hennar stækk­aði fylgj­enda­hóp­ur­inn ört. Mjög ört. Í dag, tæpum mán­uði eftir að lík hennar fannst, eru fylgj­endur hennar 1,3 millj­ónir.

[adspot]Þessi öra fjölgun er lík­lega skýrasta dæmið um breyttan veru­leika þegar kemur að rann­sókn saka­mála. Hlaðvörp þar sem fjallað er um sönn saka­mál, svokölluð „true crime“-hlað­vörp, njóta gríð­ar­legra vin­sælda og hlaupa á tugum, ef ekki hund­ruðum. Nú getur líka hver sem er sett sig í spor rann­sókn­ar­lög­reglu með auknu upp­lýs­inga­flæði og leiðum til að miðla efni, ekki síst á sam­fé­lags­miðlum.

Margrét Valdi­mars­dóttir, doktor í afbrota­fræði og dós­ent í lög­reglu­fræði við Háskól­ann á Akureyri, segir þessa þróun ekki koma á óvart. „Heilinn á okkur er hann­aður til að veita því sem er ógn­væn­legt meiri athygli en því sem er gott og jákvætt. Til að forða okkur frá hættu. Við ofmetum hætt­una eða lík­urnar á því að vera drepin af morð­ingja eða maka til dæmis. Í ljósi hver við erum sem mann­eskjur er þessi áhugi ekk­ert skrýt­inn, þetta er bara meira spenn­andi núna. En fyrir marga er þetta bara spennu­saga en þetta gefur okkur meira af því þetta er að ger­ast núna og þetta er alvöru og því meira spenn­andi.“

Mál Gabby, að mati Mar­grétar, upp­fyllir flest skil­yrði til að vekja athygli almenn­ings. „Þetta er fórn­ar­lamb sem er auð­velt að hafa samúð með, og ég tala nú ekki um að hún er ung, hún er hvít, hún er fal­leg. Þetta fal­lega unga hvíta par passar akkúrat inn í það sem fræðin hafa verið að fjalla um og benda á að sé til þess fallið að mál fái mikla athygli. Í þessa sögu vantar bara hetju og þá væri þetta full­komið, í þeim skiln­ingi að vekja athygli almenn­ings.“

Ýmis gagn­rýni hefur komið upp í tengslum við mál Gabby, ekki síst vegna þeirrar miklu athygli sem það hefur fengið. Gagn­rýnin snýst m.a. um svo­kallað „hvítrar konu saknað“-heil­kenni þar sem fjöl­skyldur þeldökkra Banda­ríkja­manna gagn­rýna athygl­ina sem mál eins og mál Gabby fá á meðan mál þeldökkra Banda­ríkja­manna sem hverfa spor­laust fá litla sem enga athygli. Margrét segir þessa gagn­rýni eiga rétt á sér þar sem stað­reyndin er sú að þessi mál fá mun minni athygli. „Fatlað fólk, hinsegin og kynsegin fólk og fólk sem er ekki hvítt er lík­legra til að vera þolendur ofbeld­is­glæpa og heim­il­is­of­beldis. En þau mál fá ekki eins mikla athygli því almenn­ingur hefur ekki áhuga.“

„Þetta er það sem við höfum áhuga á“

Aukin athygli yfir­stand­andi morð­rann­sókna geta þó haft jákvæðar hliðar. „Lög­reglan fær upp­lýs­ingar sem hún myndi ann­ars aldrei fá en það verður miklu erf­ið­ara fyrir lög­reglu að greiða úr þeim þar sem meiri­hluta upp­lýs­ing­anna er ekki hjálp­legur,“ segir Margrét. Flækju­stigið eykst hins vegar með auknum áhuga. „Það munu miklu fleiri stíga fram sem vitni þegar umfjöllun verður svona mikil en frá­sagnir vitn­anna verða á móti ómark­tæk­ari af því að öll umfjöllun sem er í gangi hefur áhrif á hvernig fólk man það sem það sá. Stöðug umfjöllun hefur áhrif á það hvernig við munum atburði sem við sjáum og teljum okkur þess vegna ekki vera að ljúga.“

En er þetta hættu­leg þróun?

„Fyrir fjöl­skyldur þolenda og ger­enda held ég að þetta sé slæmt af því að frið­helgi einka­lífs þeirra er ekki virt,“ segir Margrét. Þá bendir hún á að það sé ekki gott fyrir fólk að ein­blína frekar á hættur og hið nei­kvæða í umhverf­inu frekar en hið jákvæða. Hvað umfjöllun fjöl­miðla um rann­sókn yfir­stand­andi morð­mála segir Margrét að það sé undir miðl­unum sjálfum komið hvernig fjallað er um málin. „Það fer eftir þeirra eigin siða­reglum hvert þeir vilja fara. En við verðum að gera okkur grein fyrir að í huga almenn­ings er þetta afþrey­ing.“

Saka­mála­hlað­vörp, heim­ilda­myndir og ýmsar frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum eru einmitt fyrst og fremst afþrey­ing og Margrét segir mik­il­vægt að gera skýran grein­ar­mun á afþr­ey­ing­unni og morð­rann­sókn­unum sjálfum og þau áhrif sem hún hefur á fjöl­skyldu þolenda. „Heim­ilda­þættir vekja oft athygli á ein­hverju sem þarf að laga í sam­bandi við rétt­ar­kerfið, sem er jákvætt, en ef fólk vill í alvöru læra eitt­hvað um saka­mál og af hverju ein­stak­lingur ákveður að fremja voða­verk þá mæli ég með því að fólk læri afbrota­fræði.“

[adspot]

Margrét segir þó ekki telj­andi ástæðu til að hafa áhyggjur af þessum aukna áhuga á morð­málum sem kemur skýr­ast fram á sam­fé­lags­miðlum. „Ég held að við þurfum ekki að hafa sér­stakar áhyggjur af þessu. Þetta er tæknin og þetta er sam­fé­lagið. Þetta er það sem við höfum áhuga á. Þetta er afþrey­ing. Sem afbrota­fræð­ingur veit ég það vel að fólk hefur lít­inn áhuga á fréttum um að afbrotum sé að fækka en mik­inn áhuga ef þeim er að fjölga eða ef það er eitt­hvað sér­stakt mál. Það er ekk­ert skrítið, það er bara eins og það er, en rann­sóknir sýna að það er ekki endi­lega gott fyrir okkur sem neyt­endur að vera stöðugt að fók­usera á voða­verk.“

Haley Toumaian er ein af fjöl­mörgum TikTok-not­endum sem hafa fjallað um Gabby. Hún er með 650 þús­und fylgj­endur á TikTok og hefur fylgst með máli Gabby frá upp­hafi og deilt fréttum og eigin hug­renn­ingum um málið frá 16. sept­em­ber. Toumaian greinir frá því í sam­tali við BBC að fyrstu dag­ana eyddi hún um sex klukku­stundum á dag í að afla sér upp­lýs­inga um Gabby og rann­sókn máls­ins.

Margrét segir að svo lengi sem not­endur fari eftir fyr­ir­mælum lög­reglu sé ekk­ert athuga­vert við þessa frá­sagn­ar­að­ferð. „Ef þau virða fyr­ir­mæli lög­reglu um að fara ekki á ákveðið svæði eða nota ákveðnar upp­lýs­ingar, að fara eftir ákveðnum reglum, þá þurfum við ekki að koma ákveðnum skila­boðum til þeirra.“

„Mér líður eins og ég þekki Gabby“

Áhuginn á rann­sókn á morði Gabby er ekki ein­ungis bund­inn við Banda­ríkin, hann er einnig grein­an­legur hér á landi. Inga Krist­jáns­dóttir, rit­höf­undur og stjórn­andi hlað­varps­ins Illverks, fjall­aði um málið í þætti sínum 25. sept­em­ber. Inga segir að áhugi hennar á mál­inu hafi kviknað þar sem hún geti tengt við Gabby á marga vegu.

„Mér líður eins og ég þekki Gabby því málið var svo opið alheim­inum. Sama má segja um Brian, þótt það sé orðið ansi ljóst að meira býr að baki hans karakt­ers. Það er hægt að tengja við þau á svo marga vegu og held ég að margir hafi sömu drauma og þau, langi að ferð­ast, vera stór á sam­fé­lags­miðlum og eiga þetta ævin­týra­líf,“ segir Inga.

Inga hefur gefið út rúm­lega 100 þætti um hin ýmsu saka­mál. Í fyrstu voru 90% hlust­enda konur en í dag er hlut­fallið jafnt og segir Inga hafa fundið fyrir auknum áhuga und­an­farið. Þátt­ur­inn um Gabby hefur til að mynda fengið þrefalt meiri hlustun en meðal þáttur Illverka.

Aðspurð hvort það sé mik­ill munur á að fjalla um mál þar sem rann­sókn stendur enn yfir, líkt og í máli Gabby, og málum sem eru upp­lýst segir hún að svo sé. „Vanalega get ég hlustað á bækur og aflað mér upp­lýs­inga á net­inu í nokkra daga áður en ég sem hand­ritið. Þegar ég rann­saka svona nýleg mál eru alltaf að bæt­ast við upp­lýs­ingar svo ég er stans­laust að bæta við hand­ritið.“ Þá segir Inga að alls konar get­gátur sem upp koma á sam­fé­lags­miðlum geti flækt málin þar sem þær eru mis­gáfu­legar. „Það er vissu­lega meira krefj­andi að skrifa svona þátt, því þú vilt ekki fara með fleipur, en mun líf­legra og skemmti­legra.“

TikTok eigi þátt í að varpa ljósi á sannleikann

Inga er sann­færð um ágæti TikTok við rann­sókn saka­mála. „Sann­leik­ur­inn er sá að TikTok á stóran part í að koma sann­leik­anum upp á yfir­borðið. Ég er ekki viss um að málið væri komið jafn langt ef ekki væri fyrir for­ritið. En öllu má nú ofgera. Per­sónu­lega finnst mér slæmt þegar fólk er farið út fyrir ákveðin mörk og mögu­lega farið að traðka á vinnu lög­reglu. Ég skil vel að fólk vilji að málið gangi hraðar og það vill hjálpa. En það hefur gerst ítrekað að upp­lýs­ingar hafa lekið sem gætu skemmt fyrir. Sem er ekki gott.“

Rann­sókn­ar­vinna Ingu heldur áfram en hún er hætt að nýta sér TikTok og Instagram. „Þetta er komið út fyrir öll mörk og leið­inda „get­gátupésar“ komnir af stað. Ég fylgist með spjall­síðu á Facebook þar sem rúm­lega 50.000 manns fylgj­ast með og skoða reglu­lega frétta­síður. Mitt plan er svo að gera fljót­lega annan þátt þar sem ég mun fara yfir allt sem er búið að stað­festa.“

Inga telur að draga megi ýmsan lær­dóm af máli Gabby, meðal ann­ars að ekki er allt sem sýn­ist á sam­fé­lags­miðlum. „Ég vona að vit­und­ar­vakn­ing verði um bæði allt sem þú sérð á net­inu, að þú ættir að taka því með fyr­ir­vara, og að við pössum upp á hvort annað. Vinir okkar og vanda­menn gætu verið í hræði­legum sam­böndum. Það er okkar verk­efni að spyrja og hunsa ekki rauð flögg sem við sjáum.“

Morðið á Gabby Petito er fyrst og fremst harm­leikur. Stað­reyndin er hins vegar sú að málið vekur athygli og lög­regla jafnt sem sam­fé­lags­miðla­not­endur kepp­ast við að kom­ast að sann­leik­anum um lát hennar. Krufn­ing­ar­skýrsla Gabby var gerð opin­ber á mið­viku­dag og þar kemur fram að dán­ar­or­sök hennar var kyrk­ing og að hún hefði verið látin í þrjár til fjórar vikur þegar líkið fannst 19. sept­em­ber. Leit stendur enn yfir af Brian, kærasta Gabby, sem er sá eini sem hefur rétt­ar­stöðu grun­aðs í mál­inu. En þá er bara spurn­ing hvort hetjan, sem Margrét minnt­ist á hér að ofan, verði sá eða sú sem nær að leysa málið. Og ætli það verði lög­reglan eða jafn­vel TikTok-stjarna?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár