Ísland kaupir 72 skammta af lyfi til að draga úr alvarlegum COVID-19 veikindum

Land­spítalinn mun sjá um kaup á lyfinu Sotrovimab sem á að gagnast best þeim sem eru óbólusettir eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúkdóma.

Heilbrigðis­yfirvöld hafa ákveðið að kaupa 72 skammta af nýju lyfi sem þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvarlegum veikindum fólks vegna COVID-19 við vissar aðstæður. Lyfið heitir Sotrovimab og er frá lyfja­fram­leiðandanum GlaxoSmithKline. Um er að ræða svokallað einstofna mótefni. Land­spítali mun annast framkvæmd innkaupanna.

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins segir að meðferð með einstofna mótefnum gagnist best þeim sem eru óbólusettir eða þeim sem mynda illa mótefni vegna lyfja eða sjúkdóma. Notkunin er bundin við upphaf veikinda hjá þeim sem eru í aukinni hættu á að þróa með sér alvarlegan sjúkdóm.

Til að byrja með hefur verið ákveðið að kaupa 72 skammta af lyfinu, sem svokallað undanþágulyf og er það væntanlegt er til landsins síðar í þessum mánuði.

Sem stendur eru 76 prósent allra lands­manna full­bólusettir og 90 prósent þeirra sem eru tólf ára og eldri. Þá hafa 113.677 einstaklingar fengið örvunar­skammt af bóluefni auk þess sem 39.396 manns fengu viðbótar­skammt eftir að hafa þegið Janssen-bóluefnið.

Alls hafa 18.333 staðfest COVID-19 smit greinst á Íslandi frá upphafi faraldurs. 548 manns hafa lagst inn á spítala vegna smita, þar af 95 á gjörgæslu. Tæpur helmingur þess hóps sem lagst hefur inn á gjörgæslu, alls 41 einstaklingur, hefur verið lagður inn eftir 1. júlí 2021. Nýgengi innan­landssmita nú er 488,4, en um er að ræða 14 daga nýgengi á hverja 100 þúsund íbúa. Eins og er eru 23 á sjúkra­húsi vegna smita, þar af fjórir á gjörgæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár