Vissuði að frændur Marokkómanna eru Samar í Skandinavíu?

Marokk­ó­menn hafa komið ærlega á óvart á heims­meist­ara­móti karla í fót­bolta. Hér segir Illugi Jök­uls­son sögu lands­ins

Atlasfjallaljón
Atlas­fjalla­ljón — Því miður eru þau útdauð, nema á fót­bolta­vell­inum!

Í kvöld verður háður einn af mik­il­væg­ari leikjum fót­bolta­sög­unnar þegar Marokk­ó­menn freista þess að verða fyrsta Afr­íku­þjóðin til að kom­ast alla leið í úrslita­leik heims­meist­ara­keppni karla.

Sú fer nú fram í Katar eins og frægt er orðið.

Merki­legt má heita að þessi leikur er háður gegn Frökkum og til að ná á þennan stað hafa Marokk­ó­menn sigrað fyrst Spán­verja og síðan Portú­gali.

Saga Marokkó flétt­ast einmitt á ýmsan hátt saman við sögu akkúrat þess­ara þriggja Evr­ópu­þjóða.

Frá sögu Marokkó segir hér á eftir.

Hálf öld síðan ljónin dóu út

Marokkó á í austri landa­mæri að Alsír og deila löndin bæði Atlas-fjöllum og norð­vest­ur­hluta Sahara-eyði­merk­ur­innar.

Nútíma­mað­ur­inn homo sapi­ens kom fyrst fram í Austur-Afríku fyrir rúmum 300.000 árum og virð­ist furðu snemma hafa verið mættur til Marokkó — sem nú heitir. Þá var Sahara ekki sami far­ar­tálm­inn og nú, því svæðið var bæði gróð­ur­ríkt og frjósamt og gnægð veiði­dýra.

En í norðri við Mið­jarð­ar­hafið voru Atlas­fjöll og eru enn, afleið­ingar árekst­urs jarð­skorpufleka Afríku og Evrópu.

Bjuggu nú stein­ald­ar­menn í Marokkó í tug­þús­undir ára og reyndar meira en tvö hund­ruð þús­und ár.

Ekki er vitað annað en vel hafi farið um stein­ald­ar­menn í Marokkó. Helstu keppi­nautar þeirra um veiði­bráð voru hin mynd­ar­legu ljón sem bjuggu á svæð­inu, stór voru þau og stæði­leg.

Það eru nú aðeins rúm 50 ár síðan síð­ustu Atlas­fjalla­ljónin dóu út í Marokkó.

Fyrir um 10 til 15.000 árum bjó meira og minna sama fólkið í Atlas­fjöllum og á Íber­íu­skaga (þar sem nú eru Spánn og Portúgal).

Óvæntir frændur

Óvænt má heita að DNA-grein­ing hefur gefið til kynna að þetta fólk sem þá bjó í Marokkó var mjög skylt þjóð Sama sem nú byggir norð­ur­slóðir Skand­in­av­íu­skaga. Skýr­ingin á þessu er helst talin vera sú að um þetta leyti var ísöld að ljúka í Evrópu og ætla má að hluti íbú­anna á Íber­íu­skaga hafi fylgt bráðn­andi ísrönd­inni norður á bóg­inn.

Þeir sem eftir urðu í Marokkó (sem nú heitir) undu þar enn lengi við sitt en fyrir um 3.000 árum tóku þeir að fær­ast nær menn­ingu og sam­fé­lagi Mið­jarð­ar­hafs­ins.

Í Atlas­fjöllum varð þá til ný þjóð eða ætt­flokkur, hinir svo­nefndur Berbar, en með strönd­unum sigldu Fönik­íu­menn frá Líbanon og síðar arf­takar þeirra, Karþagómenn frá Túnis.

Fönik­íu­menn voru komnir með nýlendu þar sem nú heitir Essaouira svo snemma sem á sjöttu öld fyrir Krist en sú borg var langt suður með Atl­ants­hafs­strönd Marokkó, and­spænis Kanarí­eyjum eða þar um slóðir.

Nokkrum öldum seinna tók að þró­ast kon­ungs­ríki Berba á svæð­inu og köll­uðu Róm­verjar það Márit­aníu.

Varast ber að rugla þeirri Márit­aníu saman við nútíma­ríkið Márit­aníu sem er tölu­vert sunnan á Atl­ants­hafs­hafs­strönd Vestur-Afríku.

Ef þeir hefðu siglt

Hin ber­bíska Márit­anía (nú Marokkó) var kringum Krists burð undir stjórn eigin kónga, sem þá voru samt oftar en ekki undir járn­hæl öfl­ugra nágranna­kónga í Númidíu (Alsír) eða þá Rómverja.

Frá og með fyrstu öld eftir Krist var Márit­anía skatt­land í Róma­veldi en heima­menn réðu sér þó mikið til sjálfir enda töldu Róm­verjar sig ekki margt að sækja þangað vestur.

Harma verður að Marokk­ó­menn í Márit­aníu hafi á þessum tíma ekki verið ævin­týra­gjarn­ari og/eða sigl­inga­fús­ari en raun bar vitni. Það hefði þá legið svo beint við að þeir færu að sigla suður með­fram Afr­íku­ströndum þús­und árum á undan Portú­gölum (sem fóru á sjó um 1400) eða þá legðu á úthafið í vestri langt á undan Spán­verjum (1492).

Marokk­ó­menn gerðu hvor­ugt.

Ef hinir þáver­andi Marokk­ó­menn hefðu lent í Ameríku hefðu þeir eflaust flutt með sér sömu eða svip­aða sjúk­dóma og Spán­verjar og Portú­galir gerðu síðar og fjöld­inn allur af Amer­íku­mönnum hefði vissu­lega dáið af þeim sökum — rétt eins og síðar varð.

Mannfall ekki jafn mikið?

En þó verður að telja að mann­fallið hefði ekki orðið jafn snöggt og hroða­legt og varð við komu Portú­gala og Spán­verja, og Amer­íku­fólki hefði gef­ist nokk­urt tóm til að aðlag­ast sótt­kveikjum Gamla heims­ins án þess að sam­fé­lög þeirra bein­línis hryndu í duftið — eins og raunin varð eftir 1492.

Þá (um árið 200-300) var heldur ekki alveg jafn mik­ill munur á hern­að­ar­tækni Amer­íku­manna og ann­arra og síðar varð. Evr­ópu­menn áttu alla vega engar byssur ennþá. Áfallið, sem Amer­íku­menn hlutu að verða fyrir við að kom­ast í sam­band við „Gamla heim­inn“ hefði því senni­lega orðið tölu­vert minna en eftir 1492.

Amer­íku­menn hefðu ugg­laust plu­mað sig tölu­vert betur en raun varð á.

En hvað sem því líður:

Á sjö­undu öld eftir Krist komu arab­ískir inn­rás­ar­menn úr austri og lögðu undir sig hina róm­versku Márit­aníu/Marokkó. Þá höfðu Marokk­ó­menn verið kristnir í nokkur hund­ruð ár en næstu ára­tugi og aldir und­ir­geng­ust þeir trú hinna arab­ísku sig­ur­veg­ara og urðu múslimar. Þó er nú talið að ein­hverjir kristnir söfn­uðir hafi haldið velli í Marokkó í mörg hund­ruð ár.

Portúgal og Spánn voru „nýlendur“ Marokkó!

Nokkur tog­streita var síðan öldum saman — og stundum átök — milli hinna nýkomnu Araba og Berbanna sem fyrir voru.

En í byrjun átt­undu aldar gerðu múslimar í Marokkó svo inn­rás norður á Íber­íu­skaga. Þeir náðu á skömmum mestum hluta skag­ans og stofn­uðu á end­anum kalífa­dæmi sem náði bæði yfir hið núver­andi Portúgal og stærstan hluta Spánar.

Og kalífa­dæmið og arf­takar þess héldu velli á Íber­íu­skaga  þar til kom fram á 15. öld.

Múslimar — þar á meðal og ekki síst harð­snúnir ber­bískir her­menn frá Marokkó — héldu síðan beina leið áfram yfir Pýrena­fjöll og til Frakk­lands og hugð­ust leggja það undir sig líka, fyrst 719 og svo 732.

Frakkar náðu þó að hrinda þeim inn­rásum og Marokk­ó­menn og félagar hrökkl­uð­ust aftur suður yfir Pýrenea­fjöll.

Næstu ald­irnar var Marokkó yfir­leitt hluti af því kalífa­dæmi sem réði múslima­löndum á Spáni en stundum sner­ust hlut­irnir við og spænska kalífa­dæmið komst allt eða mest­allt undir stjórn fursta­ætta í Marokkó.

Því má segja að Portúgal og Spánn hafi verið marokkóskar nýlendur öldum saman! — þótt ekki væri það orðað svo í þá daga.

Harðlínumenn

Ástæðu­laust er að rekja þá flóknu sögu í smá­at­riðum — en frá 789 og í tæp 200 ár réði hin arab­íska Idris-ætt Marokkó (og Íber­íu­skaga) og stofn­aði sú ætt borg­ina Fes sem var hennar höf­uð­borg.

Síðar réðu hinir harð­neskju­legu Almora­vídar frá Marokkó ríkjum bæði á Spáni og vest­ur­hluta Norður-Afríku og allt suður til Gana 1050-1150. Höf­uð­borg Almora­vída var Marra­kesj sem þeir stofn­uðu um 1070.

Nafnið Marokkó er dregið af nafni Marra­kesj en upp­runa­leg merki­leg borg­ar­nafns­ins er ókunn.

Eftir að Almora­vídar voru úr sög­unni tók við ætt Almohada og réði í önnur hund­rað ár. Bæði Almora­vídar og Almo­hadar voru ann­ál­aðir fyrir sína ósveigj­an­legu múslim­sku ofsa­trú og báðar ætt­irnar voru ber­bískar að upp­runa.

Marokkómönnum ýtt frá Spáni

Þá voru kristnir menn farnir að ýta múslimum smátt og smátt út af Íber­íu­skaga, Portúgal losn­aði fyrst undan „nýlendu­stjórn“ múslima og síðan hvert svæði skag­ans af öðru, og risu þar nokkur kristin kon­ung­dæmi sem síðar runnu saman í kon­ungs­ríkið Spán.

Um 1510 reis svo nýtt arab­ískt ríki í Marokkó og var kennt við sold­án­inn Saadi. Þá höfðu múslimar hrak­ist alveg frá Íber­íu­skaga.

Hins­vegar tóku sam­einað kon­ungs­ríki Spánar og ríkið Portúgal þvert á móti að seil­ast til vax­andi áhrifa í Marokkó.

Saadi-ættin náði þó lengi vel að sporna gegn ásælni Spán­verja og Portú­gala inn á lendur sínar. Það sem meira var, Saadi-ætt­inni tókst líka að stand­ast áhlaup Tyrkja sem voru um þær mundir að leggja undir sig alla Norður-Afr­íku­strönd­ina.

Marokkó komst aldrei undir stjórn Tyrkja en var hins vegar iðu­lega í góðu sam­bandi við Tyrki og lepp­ríki þeirra í Alsír og Túnis. Evr­ópu­menn fóru því um þessar mundir að kalla íbúa allrar Norður-Afríku Tyrki þótt þeir væru alls ekki tyrk­neskrar ættar, hvorki að líf­ræði­legum né menn­ing­ar­legum upp­runa.

Marokkómenn ræna þrælum á Íslandi

Því voru þeir kall­aðir Tyrkir, ráns­menn­irnir sem komu siglandi til Íslands sum­arið 1627 og rændu fólki til að selja í þræl­dóm. Stærstur hluti þess leið­ang­urs var frá borg­inni Salé í Marokkó en þar réðu ríkjum sjó­ræn­ingjar sem herj­uðu bæði á Atlants- og Mið­jarð­ar­hafi.

Margir sjó­ræn­ingj­anna voru múslimar ætt­aðir frá Spáni og Portúgal, komnir af fólki sem var rekið burt þegar kristnir menn náðu end­an­legum yfir­ráðum þar á Íber­íu­skaga 15. öld.

Um það leyti sem „Tyrkir“ sigldu frá Salé til Íslands að ræna fólki til að selja á þræla­mörk­uð­unum í suðri, þá var einn mestur valda­maður í Salé rúm­lega fimm­tugur sjó­ræn­ingi sem gekk undir nafn­inu Murad Reis, en hann var raunar hol­lenskur og hét upp­haf­lega Jan Janszoon.

Jan hafði verið her­num­inn af sjó­ræn­ingjum frá Salé en und­ir­gekkst þá íslam og komst til áhrifa.

Það var einmitt þessi Jón Jónsson sem stýrði leið­angri Salé-manna til Grinda­víkur og Bessa­staða 1627 þegar þeir höfðu á brott með sér tólf Íslend­inga og þrjá Dani sem síðan voru seldir í þræl­dóm. Óhætt er að full­yrða að þarna sé um að ræða fyrstu kynni Íslend­inga við Marokk­ó­menn.

Einna fyrstir til að viðurkenna Bandaríkin

Einmitt um svipað leyti og Íslend­ingar voru orðnir þrælar í Marokkó var ný ætt að seil­ast til valda í Marokkó. Það var arab­ískur emír í vin­inni Tafilalt langt úti í Sahara-eyði­mörk­inni sem efldi ætt­ina til áhrifa. Smátt og smátt náði ættin völdum í öllu Marokkó.

Þessi emír hét Sharif ibn Ali. Sonur hans Mulay al-Radhid stofn­aði árið 1666 sold­áns­veldi í Marokkó. Svo tóku afkom­end­urnir sér kon­ungs­nafn.

Og sú kon­ungs­ætt — Alavítar — er enn við völd í Marokkó.

Á ýmsu gekk næstu öld­ina því ætt­ar­höfð­ingjar hér og þar í land­inu vildu oft ekki við­ur­kenna áhrif kóngs­ins en Marokkó hélst þó í einu lagi og þokka­lega sjálf­stætt. Portú­galir höfðu um tíma mikil áhrif í land­inu, ekki síst á strönd­inni, en þeir hrökkl­uð­ust að lokum brott. Árið 1777 varð Marokkó eitt allra fyrsta ríki heims­ins til að við­ur­kenna sjálf­stæði og lög­mæti hinna nýju Banda­ríkja í Norður-Ameríku.

Þegar kom fram á 19. öld áttu Marokk­ó­menn æ erf­ið­ara með að stand­ast  ásælni Evr­ópu­ríkj­anna, ekki síst Frakka sem lögðu undir sig nágranna­ríkið Alsír 1830. Nýlendu­græðgi greip Evr­ópu­ríkin hvert af öðru. Árið 1844 kom til átaka milli Frakka og Marokk­ó­manna en þeir síð­ar­nefndu leit­uðu þá banda­lags við Breta til að geta betur staðið upp í hár­inu á Frökkum.

„Verndarsvæði“ Frakka og Spánverja

Síðar á öld­inni fóru svo Spán­verjar að ágirn­ast Marokkó og um 1860 fóru Marokk­ó­menn hall­oka í stríði við Spán­verja sem sner­ist ekki síst um borg­ina Ceuta sem Spán­verjar réðu (og ráða enn) á strönd Marokkó.

Marokk­ó­menn þurftu þá að standa Spán­verjum skil á gríð­ar­legum fjár­upp­hæðum sem „stríðs­skaða­bótum“ og undir alda­mótin 1900 var illa komið fyrir Marokkó, landið var gjald­þrota meirog minna, plagað af inn­lands­ófriði og alls konar skelf­ingum.

Árið 1912 varð Marokkó svo­nefnt „vernd­ar­svæði“ Frakka og Spán­verja. Marokk­ó­mennv voru nátt­úr­lega ekki spurðir hvort þeir hefðu áhuga á slíku en þeir fengu ekki rönd við reist.

Og þar með var Marokkó vissu­lega komið í hóp nýlendna Evr­ópu­ríkj­anna þótt landið ætti enn að heita sjálf­stætt og kon­ungs­ættin sæti enn á valda­stólum. Sann­leik­ur­inn var sá að völd Alavíta-kóng­anna voru lítil sem engin í ára­tugi.

Stöðugar upp­reisnir brut­ust út í Marokkó næstu ára­tugi gegn yfir­ráðum Evr­ópu­manna. Ég skrif­aði flækju­sögu um eina þeirra upp­reisna fyrir nokkrum miss­erum, þegar íbúar í Atlas­fjöllum lýstu yfir stofnun sjálf­stæðs lýð­veldis en Spán­verjar og Frakkar brugð­ust við af ógeðs­legri hörku.

Lesið þá hörm­ung­ar­sögu hér: Eiturgas í gleymdu stríði.

Ekki er að undra þótt Marokk­ó­mönnum hafi þótt mikið til um að hafa unnið Spán­verja á HM og hafi gert sér vonir um að vinna Frakka líka!

Kúga sjálfir Vestur-Saharamenn

Árið 1956 fékk Marokkó fullt sjálf­stæði. Árið 1969 var svo ákveðið að stórt svæði sem Spán­verjar höfðu kastað eign sinni á fyrir sunnan Marokkó — oft­ast kallað Vestur-Sahara — myndi lúta stjórn Marokkó, og því miður hafa Marokk­ó­menn ekki tekið í mál að veita íbúum þar það sjálf­stæði sem þeir þrá.

Menn læra ekki ævin­lega nóg af sög­unni — jafn­vel ekki þótt þeir hafi sára reynslu af henni sjálfir.

Að öðru leyti hefur saga Marokkó frá sjálf­stæði verið þokka­lega gæfu­leg. Þar eru Alavítar enn við völd í þing­bundnu kon­ung­dæmi og bæði lýð­ræði og mann­rétt­indi eru betur í heiðri höfð en í flestum öðrum Arabaríkjum, lífs­kjör meiri og efna­hagur með þokka­legum blóma.

Marokkó er 4,5 sinnum stærra en Ísland (án Vestur-Sahara) og íbúar eru 37 millj­ónir.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár