Plain Vanilla fækkar um 27 stöðugildi - Krafa um hagnað á árinu

Þorsteinn B. Friðriksson er forstjóri Plain Vanilla.
Þor­steinn B. Frið­riks­son er for­stjóri Plain Vanilla. Mynd: Kjarninn.

Íslenska tölvuleikja­fyrirtækið Plain Vanilla hefur fækkað stöðu­gildum hjá sér um 27 og ráðist í endur­skipulagningu á starfsemi sinni hér á landi. Í breytingunum var 23 manns sagt upp störfum en fjórir hætta að eigin frumkvæði um næstu mánaðarmót. Starfs­menn verða eftir breytingarnar rúmlega 40 en voru þegar mest lét 86 talsins. Plain Vanilla flutti í stærra húsnæði við Laugaveg 77 árið 2014 og starfsemin verður þar áfram til húsa, en starfsmanna­fjöldinn verður nú aftur svipaður og þegar fyrir­tækið flutti inn.

Í tilkynningu frá fyrir­tækinu kemur fram að það ætli að auka umsvif sín í Los Angeles í Banda­ríkjunum og kröfur verða gerðar á það að skila hagnaði á árinu 2016. Stefnt er að því að Plain Vanilla sameinist bandaríska fyrir­tækinu Glu Mobile á næstu tólf mánuðum, en það keypti stóran hlut í Plain Vanilla í byrjun árs.

Þar segir einnig að Plain Vanilla stefni að því að skila hagnaði á árinu, annars vegar með því að afla meiri tekna í samvinnu við tölvuleikja­fram­leiðandann Glu Mobile og hins vegar með samrekstri á ákveðnum sviðum sem skila mun samlegðar­áhrifum. „Tekjur fyrir­tækisins af QuizUp hafa aukist en draga þarf úr rekstrar­kostnaði til að flýta því að fyrir­tækið skili hagnaði. Umhverfi tækni­fyrirtækja hefur breyst mikið undan­farið og víðast hvar í heiminum er nú áhersla á að þau skili hagnaði, en megin­áherslan var áður á vöxt óháð tekjum."

Verið er að lokahönd á spurninga­þáttinn QuizUp í stúdíói sjónvarps­risans NBC Í Los Angeles um þessar mundir og fór prufu­keyrsla á þættinum fram aðfara­nótt fimmtudags að íslenskum tíma. Stefnt er að því að fyrsti þátturinn fari í loftið í september. Nú þegar starfa tíu manns á vegum Plain Vanilla við þróun þáttarins á vestur­ströndinni og á Íslandi.

Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, segir að það felist spennandi tækifæri í vaxandi umsvifum í Banda­ríkjunum. „Samhliða áherslunni á að nýta tækifærin sem fylgja munu í kjölfarið þá þurfum við að endur­skipuleggja fyrir­tækið og horfa á eftir duglegu og hæfileika­ríku fólki sem hefur unnið hörðum höndum við að koma QuizUp á þann stað sem það er í dag. Ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir eljuna og metnaðinn en veit jafnframt að þau munu ekki sitja lengi auðum höndum þar sem mikil eftir­spurn er hjá íslenskum og erlendum fyrir­tækjum eftir hæfileika­ríku starfs­fólki um þessar mundir.“

Setti milljarð í Plain Vanilla og fékk kauprétt á fyrirtækinu öllu

Í janúar fjárfesti Glu Mobile fyrir 7,5 milljónir dala, um einn milljarð íslenskra króna á þeim tíma­punkti, í Plain Vanilla. Glu Mobile er skráð á NASDAQ verðbréfa­markaðinn og þróaði m.a. appið Kim Kardashian: Hollywood. Eins hefur fyrir­tækið gert samning við söng­konuna Britney Spears um að þróa tölvuleik sem byggir á lífi hennar. Stærstu hluthafar Glu eru ýmsir fjár­festingar­sjóðir.Kín­verska fyr­ir­tækið Tencent, sem er stærsta net­fyr­ir­tæki Asíu og það fjórða stærsta í heimi, keypti 15% hlut í Glu fyrir um 15 millj­arða króna í apríl í fyrra, en Tencent er einnig á meðal stærstu hlut­hafa í Plain Vanilla.

Við kaupin tók Niccolo de Masi, for­stjóri Glu Mobile, sæti í stjórn Plain Vanilla en þar að auki öðl­ast Glu kaup­rétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyr­ir­fram umsömdu verði. Kaup­rétt­ur­inn gildir í 15 mán­uði frá fjár­fest­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár