Penninn og Storytel með yfirburði á bókamarkaði

Markaðs­hlutdeild Pennans í smásölu­markaði prentaðra bóka nemur 50-55 prósentum og Storytel selur nær allar bækur á hljóð­bókamarkaði, samkvæmt nýrri úttekt Samkeppnis­eftirlitsins.

Storytel selur nær allar íslenskar hljóðbækur hér á landi.
Storytel selur nær allar íslenskar hljóð­bækur hér á landi. Mynd: EPA

Penninn og Storytel eru hvor um sig með markaðs­ráðandi stöðu í smásölu prentaðra bóka og hljóðbóka. Sömuleiðis er Forlagið með lang­stærstu hlut­deildina á markaði fyrir útgáfu prentaðra bóka, en Storytel gefur út yfir­gnæfandi meirihluta allra hljóðbóka. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Samkeppnis­eftirlitsins um samþjöppun á bóka­markaði, sem birtist á vef stofnunarinnar fyrr í dag.

Tveir mismunandi markaðir

Í úttektinni vísar stofnunin í könnun sem Zenter framkvæmdi í fyrra á því í hvaða aðstæðum fólk læsi prentaðar bækur eða hlustaði á hljóð­bækur. Samkvæmt henni eru prentaðar bækur mun vinsælli til gjafa en hljóð­bækur, á meðan hljóð­bækurnar virðast nýtast við heimilis­störf, á æfingum eða í göngu­ferðum. Prentaðar bækur eru aftur á móti vinsælli meðal foreldra sem lesa fyrir börnin sín og þegar fólk fer í frí.

Samkvæmt Samkeppnis­eftirlitinu leiða þessar niður­stöður í ljós að vísbendingar séu um að hljóð­bækur og prentaðar bækur myndi sérstaka markaði, þar sem hljóð­bækur séu keyptar í öðrum tilgangi en rafbækur.

Mikil samþjöppun á markaði

Mikil samþjöppun er á markaði fyrir útgáfu bóka ef honum er skipt upp eftir því hvort bækurnar séu á prentuðu eða stafrænu formi. Þannig ber útgáfu­félagið Forlagið höfuð og herðar yfir önnur útgáfu­félög prentaðra bóka, en fyrir­tækið gefur út ríflega þriðju hverja prentaða bók hér á landi. Næst á eftir koma útgáfu­félögin Bjartur og Veröld, en markaðs­hlutdeild þeirra er þó einungis þriðjungur af hlutdeild Forlagsins.

Enn meiri samþjöppun ríkir á markaði yfir smásölu prentaðra bóka, en þar hefur Penninn 50-55 prósenta markaðs­hlutdeild, sem þýðir að fyrir­tækið selji meirihluta allra seldra bóka á prentuðu formi. Næst á eftir koma Hagar með 10-15 prósenta markaðs­hlutdeild.

Á markaði hljóðbóka hefur Storytel hins vegar algjöra yfirburði, bæði í útgáfu og smásölu bóka. Samkvæmt Samkeppnis­eftirlitinu gefur Storyside, útgáfu­fyrirtæki Storytel, út 80-85 prósent allra rafbóka á íslenska markaðnum, auk þess sem fyrir­tækið selur 95-100 prósent allra hljóðbóka á íslensku hérlendis.

Eru þetta tveir markaðir?

Samkvæmt Jóni Scheving Thorsteins­syni, sem vann tölfræði­lega greiningu á bóka­markaði fyrir Forlagið í fyrra, bendir könnun Zenter aftur á móti til þess að prentaðar bækur og hljóð­bækur séu á sama markaðinum. Í grein sem Jón skrifaði í Vísbendingu í byrjun þessa árs segir hann að best væri að skilgreina markaðinn út frá lesendum og hlustendum.

Þar sem meirihluti þeirra sem keyptu hljóðbók höfðu einnig keypt prentaða bók nýlega mætti draga þá ályktun að vörurnar séu að miklu leyti staðkvæmdarvörur og ætti því að skilgreina þær á sama markaði, að mati Jóns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár