Dæmdur fyrir að segja frá drónadrápum

Eftir að hafa ofboðið beit­ing Banda­ríkja­hers á drónum til þess að ráð­ast gegn óvinum sínum í Afganistan ákvað ungur her­maður að ger­ast upp­ljóstr­ari. Í gær var hann dæmdur í tæp­lega fjög­urra ára fang­elsi.

Daniel Hale var í gær dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir að láta blaðamanni í té gögn frá Bandaríkjaher sem vörpuðu ljósi á það hvernig drónum hefur verið beitt í hernaði í Mið-Austurlöndum.
Daniel Hale var í gær dæmdur í tæp­lega fjög­urra ára fang­elsi fyrir að láta blaða­manni í té gögn frá Banda­ríkja­her sem vörp­uðu ljósi á það hvernig drónum hefur verið beitt í hern­aði í Mið-Aust­ur­löndum.

Daniel Everett Hale, 33 ára gam­all fyrr­ver­andi sér­fræð­ingur í banda­ríska flug­hernum, var í gær dæmdur í 45 mán­aða fang­elsi fyrir að láta blaða­manni í té leyni­legar upp­lýs­ingar sem vörp­uðu ljósi á það hvernig Banda­ríkja­her hafði beitt flygildum, drónum, í sprengju­árásum í Mið-Aust­ur­löndum.

Hale var fund­inn sekur um að brjóta gegn njósn­a­lög­gjöf Banda­ríkj­anna, Espionage Act, en hann ját­aði fyrr á árinu að hafa lekið átta leyni­legum og þremur háleyni­legum skjölum, sem hann taldi eiga erindi við almenn­ing, til blaða­manns. Fyrst eftir að hann var ákærður árið 2019 hafði hann neitað sök og reynt að fá mál­inu vísað frá með því að færa rök fyrir því að beit­ing njósn­a­lög­gjaf­ar­innar gegn upp­ljóstr­unum eins og honum sjálfum færi gegn mál­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skrár Banda­ríkj­anna.

Það gekk ekki og ákæru­valdið fór fram á Hale yrði dæmdur í allt að 10 ára fang­elsi.

Skotmörk dróna lítið hlutfall látinna

Blaða­mað­ur­inn Jeremy Scahill hjá vefrit­inu Intercept var blaða­mað­ur­inn sem Hale setti sig í sam­band við. Scahill not­aði upp­lýs­ing­arnar sem Hale fól honum til þess að segja ítar­lega frá flygilda­árásum Banda­ríkja­hers í frétta­skýr­ingum á vef Intercept og til þess að rita bók sem kom út árið 2016. Í bók­inni rit­aði Hale sjálfur einn kafla undir dul­nefni til þess að útskýra af hverju hann lak upp­lýs­ing­unum um dróna­hern­að­inn.

Á meðal þess eld­fimasta sem fram kom í skjöl­unum sem Hale lak til blaða­manns­ins var það að í flygild­is­árásum Banda­ríkja­hers í norð­aust­ur­hluta Afganist­ans frá jan­úar 2012 og fram í febr­úar 2013 hefðu fleiri en 200 manns verið drepin. Þar af voru þó ein­ungis 35 ein­stak­lingar sem töld­ust form­lega skot­mörk árásanna.

Hin sem lét­ust, stundum konur og börn, voru ein­fald­lega svo óheppin að vera nærri skot­mörk­unum þegar banda­rískt flygildi, fjar­stýrt úr hund­ruð kíló­metra fjar­lægð, varp­aði sprengjum sínum með ban­vænum afleið­ingum.

Á einu fimm mán­aða tíma­bili í þess­ari hern­að­ar­að­gerð í Afganistan voru, sam­kvæmt einu skjal­anna, nærri því 90 pró­sent þeirra sem lét­ust í dróna­árásum aðrir ein­stak­lingar en þeir sem árásin beind­ist gegn. Þessar upp­ljóstr­anir vöktu tölu­verða athygli og umræðu um sið­ferði þess að nota dróna í hern­aði.

Samviskan rak hann til leka

Hale gekk í banda­ríska flug­her­inn er hann var 21 árs gam­all. Nokkrum árum síðar, árið 2012, var hann sendur til Afganistan þar sem hann hafði hlut­verki að gegna við að stað­setja víga­menn óvin­ar­ins, en honum var falið að rekja stað­setn­ingu far­síma þeirra.

Stundum var ákveðið að láta til skara skríða gegn þeim sem Hale átti þátt í að finna. Nýlega skrif­aði hann dóm­ar­anum í mál­inu 11 blað­síðna langt hand­skrifað bréf, sem banda­rískir fjöl­miðlar hafa fjallað nokkuð um und­an­farna daga, í aðdrag­anda dóms­upp­kvaðn­ing­ar­innar í gær. Bréfið er til­finn­inga­þrungið, en þar lýsir Hale því hvernig upp­lifun hans af hlut­verki sínu í flug­hernum í Afganistan varð honum smám saman óbæri­leg.

Í bréf­inu segir Hale meðal ann­ars að hann hafi, allt frá því að hann fylgd­ist með fyrstu mann­skæðu dróna­árásinni sem hann átti þátt í, efast um rétt­læt­ingu gjörða sinna. Á hverjum ein­asta degi.

Hann skrifar einnig að þrátt fyrir að ef til vill hafi honum verið heim­ilt, sam­kvæmt reglum Banda­ríkja­hers um vald­beit­ingu, að taka þátt í að drepa þessa ókunn­ugu menn á voða­legan hátt, hafi hann velt því fyrir sér hvernig nokkur sæmd gæti falist í því.

„Hvað sem sæmd líður, hvernig mátti það vera að nokkur hugs­andi mann­eskja gæti haldið áfram að trúa því að það væri nauð­syn­legt fyrir öryggi Banda­ríkj­anna að vera í Afganistan og drepa fólk, sem ekki á nokkurn hátt var ábyrgt fyrir árás­unum á þjóð okkar þann 11. sept­em­ber. Þrátt fyrir það var ég árið 2012, heilu ári eftir að Osama bin Laden var drep­inn í Pakistan, þátt­tak­andi í því að drepa unga villu­ráf­andi menn, sem voru ekk­ert nema börn þann 11. sept­em­ber,“ skrif­aði Hale meðal ann­ars í bréfi sínu.

Eftir að dómur var kveð­inn upp í gær sagði Hale að til þess að sinna því starfi að drepa fólk með drónum þyrftu menn á sama tíma að drepa hluta af sam­visku sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár