Stærsti banki Rússlands varar við því að það stefni í bankakreppu

Evgeny Gavrilenkov, aðal­hagfræðingur fjárfestingabankaarms rússneska bankans Sberbank CIB, hefur varað við því að þær aðgerðir sem rússnesk stjórn­völd hafa ráðist í til að bjarga rússneskum bönkum sem eiga í miklum vandræðum, gætu leitt til risa­vaxinnar banka­kreppu.SberBank CIB er stærsti lánveitandi Rússlands.

Í frétt á vef Business Insider er haft eftir honum að ef seðla­banki Rússlands heldur áfram að endur­fjármagna banka í skiptum fyrir skulda­bréf sem enginn markaður er fyrir, en bankarnir geti framleitt í nánast ótæmandi magni, þá muni það leiða til banka­kreppu af stærstu gerð.


Munu ekki geta endurgreitt lán


Þetta er staða sem er Íslend­ingum að nokkru kunnug. Í aðrag­anda banka­hruns­ins sem átti sér stað hér­lendis í októ­ber 2008 dældu íslensku bank­arnir skulda­bréfum gefnum út af sjálfum sér inn í Seðla­banka Íslands í skiptum fyrir lausafé. Þegar þeir voru búnir með kvót­ann þá fengu þeir smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki til að vera milli­göngu­að­ilar gegn þóknun. Þessi svoköll­uðu ást­ar­bréfa­við­skipti end­uðu með ósköpum og því að íslenska ríkið þurfti að taka yfir miklar skuldir Seðla­bank­ans.

sberbank
sber­bank

Í kjölfar þeirrar miklu efnahags­lægðar sem lagst hefur yfir Rússland undafarið vegna hríð­lækkandi olíuverðs og falls rúblunar um yfir 40 prósent á þessu ári hefur rússneski Seðla­bankinn ákveðið að styðja við bakið á bönkum landsins með þvi að veita þeim umfangs­mikla lausafjár­fyrir­greiðslu gegn veðum, meðal annars í skulda­bréfum þeirra.

Í síðustu viku hækkaði seðla­bankinn hins vegar stýri­vexti sína í 17 prósent og við það hækkuðu vitanlega lánin sem rússnesku bankarnir hafa tekið hjá honum. Gavrilenkov telur að bankarnir muni ekki geta greitt til baka þau lán sem þeir hafa tekið hjá seðla­bankanum og að veðin sem sett hafi verið fyrir lánunum séu ekki nægilega góð til að geta brúað fyrir­sjáanlegt tap seðla­bankans.

Ummæli Gavrilenkov eru óvenjuleg, enda er um að ræða hvassa gagnrýni á efnahags­stefnu rússneskra stjórn­valda. Það er ekki mikil hefð fyrir slíkri á undan­förnum árum í Rússlandi undir stjórn Vladimír Pútins.

Neytendur hamstra neysluvörur


Staðan í Rúss­landi er að verða verri og verri með hverjum deg­inum sem líður. Vegna þess að rúblan er í frjálsu falli þá hefur almenn­ingur reynt að binda fé sitt í ein­hverju sem tapar ekki virði, meðal ann­ars dýrri neyslu­vöru á borð við hús­gögn, bíla eða far­síma.

Rússneskur almenningur hefur verið að hamstra varning.

Rússneskur almenningur hefur verið að hamstra varning.
Rúss­neskur almenn­ingur hefur verið að hamstra varn­ing.

Stórir fram­leiðendur neyslu­vara, á borð við Apple og Ikea, hafa brugðist við með því að hækka verð á vörum sínum sem eru seldar í Rússlandi mikið og hætt við allar fyrir­hugaðar útsölur. Bíla­fram­leiðendurnir General Motores, Jaguar, Land Rover og Audi hafa stöðvað sendingar með nýjum bílum sem ætlaðar voru á Rúss­landsmarkað og Apple hefur lokað vefverslun sinni fyrir Rússum eftir að 25 prósent hækkun á útsölu­verði á iPhone 6 dró ekkert úr eftir­spurn eftir honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár