Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson sýknaðir í CLN-málinu

Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson voru allir sýknaðir í CLN-málinu svokallaða í Héraðs­dómi Reykja­víkur í dag.

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnar­formaður bankans, og Magnús Guðmundsson, fyrrum banka­stjóri Kaupþings í Lúxemborg, voru sýknaðir í CLN-málinu fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur að því er kemur fram í frétt RÚV.

CLN-málið snýst um meint stórfelld umboðs­svik upp á 72 milljarða króna út úr Kaupþingi. Í september síðastliðnum vísaði fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur málinu frá. Ástæðan var að rann­sókn máls­ins væri ófull­nægj­andi og að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi ekki orðið við fyr­ir­mælum Hæsta­réttar um að rann­saka málið bet­ur. Frá þessu var greint á vef RÚV.

Þar segir að við rann­sókn máls­ins hafi hér­aðs­sak­sókn­ari ekki leitað til Deutche Bank eða skipta­stjóra tveggja aflands­fé­laga til að fá upp­lýs­ingar sem skipti höf­uð­máli við úrlausn saka­máls­ins. Þess í stað hafi hann ein­ungis leitað til Kaup­þings ehf. og tekið skýrslu af lög­manni sem vann fyrir Deutsche Bank. Það væri ekki full­nægj­andi.

Í mál­inu eru Hreiðar Már, Sig­­­urður og Magnús ákærð­ir fyr­ir lán til Chesterfi­eld United Inc., Partridge Mana­gement Group S.A. og eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­laga þeirra, sam­an­lagt um 510 millj­­­ónir evra, eða sem nemur um 64 millj­­­örðum króna á núver­andi geng­i. Í ákæru var því haldið fram að við lán­veit­ing­una hafi ýmsar reglur Kaup­­­þings banka hf. verið brotn­­­ar.

Magn­úsi Guð­­­munds­­­syni er gefin að sök hlut­­­deild í brotum Hreið­­­ars Más og Sig­­­urð­­­ar, en í ákærunni er lýst með hvaða hætti sá banki hafi tekið þátt í fram­­­kvæmd kaupanna á hinum láns­hæf­istengdu skulda­bréf­­­um.

Með þessu voru ákærðu taldir hafa stefnt fé Kaup­­­þings banka hf. í veru­­­lega hættu. Í ákærunni segir jafn­­­framt um öll lán­in, en þau námu sam­tals 510 millj­­­ónum evra, að þau hafi ekki verið greidd til baka og láns­­­féð yrði að telj­­­ast Kaup­­­þingi banka hf. glat­að. Ákærðu voru upp­haf­lega sýkn­aðir í hér­aði en þeirri nið­ur­stöðu áfrýjað til Hæsta­réttar af hálfu ákæru­­­valds­ins. Hann vís­aði mál­inu aftur heim í hérað til efn­is­með­ferð­ar.

Málið hefur hringlast í dómskerfinu

CLN-málið hefur hringlast í dóms­kerfinu þar sem í fyrstu atrennu voru allir ákærðu sýknaðir fyrir Héraðs­dómi, málinu var síðar aftur áfrýjað til Hæstaréttar en nýjar upplýsingar um að Deutsche Bank í London hefði greitt þrotabúi háar fjárhæðir bárust áður en það var tekið fyrir í Hæstarétti að nýju. Hæstiréttur taldi að rannsaka þyrfti málið betur og var því sýknu­dómurinn í héraði ómerktur og vísað til löglegrar meðferðar á ný. Hérað vísaði því frá og sú niður­staða var kærð til Landrettar sem vísaði því aftur í hérað.

Kjarninn hefur áður fjallað um málið, þar sem kom fram að með grein­­­ar­­­gerð ákæru­­­valds til Hæsta­réttar á sínum tíma fylgdi sam­komu­lag, sem gert hafði verið 12. des­em­ber 2016 milli Kaup­­­þings ehf. sem er félag sem sér um umsýslu eigna Kaup­­­þings banka hf. eftir að slitum á bank­­­anum lauk, og Deutsche Bank í London.

Með sam­komu­lag­inu luku aðilar þess ágrein­ingi sem rek­inn hefur verið fyrir ýmsum dóm­stólum um kröfur Kaup­­­þings ehf. á hendur Deutsche Bank AG um greiðslur vegna þeirra láns­hæf­istengdu skulda­bréfa sem ákæra í mál­inu tekur til. Með sam­komu­lag­inu skuld­batt bank­inn sig til þess að greiða Kaup­­­þingi ehf. 212,5 millj­­­ónir evra gegn því að fallið verði frá mála­­­rekstr­in­­­um.

Fram kom einnig að annað sam­komu­lag með áþekku efni hafi verið gert við félögin Chesterfi­eld United Inc. og Partridge Mana­gement Group SA, en þau voru kaup­endur að þeim láns­hæf­istengdu skulda­bréfum sem um ræðir í ákæru og þágu beint eða óbeint lán til þess frá Kaup­­­þingi banka hf.

Deutsche Bank AG mun sam­­­kvæmt því sam­komu­lagi einnig hafa skuld­bundið sig til þess að greiða þeim félögum 212,5 millj­­­ónir evra, en að Kaup­­­þing ehf. muni við upp­­­­­gjör einnig fá um 90 prósent af þeirri fjár­­­hæð. Sam­­­kvæmt þessu hefur Deutsche Bank AG skuld­bundið sig til þess að greiða 425 millj­­­ónir evra vegna þeirra lána sem Kaup­­­þing banki hf. veitti og ákæra tekur til og námu sam­tals 510 millj­­­ónum evra.

Fjallað var um efn­is­at­riði þess­­­arar for­m­hliðar máls­ins á vef Hæsta­rétt­­ar á sínum tíma. Þar sagði: „Það er skil­yrði þess að sak­­­fellt verði fyrir umboðs­­­svik sam­­­kvæmt 249. gr. almennra hegn­ing­­­ar­laga að ákærður maður hafi haft til­­­­­tekna aðstöðu til þess að skuld­binda annan mann eða lög­­­að­ila, að hann hafi mis­­­notað þessa aðstöðu sína og með því valdið þeim, sem hann skuld­batt, veru­­­legri fjár­­­tjóns­hætt­u. Þar sem ákæra í mál­inu er reist á þeim grund­velli að lánin sem Kaup­­­þing banki hf. veitti eign­­­ar­halds­­­­­fé­lögum þeim sem í ákæru grein­ir, sam­tals að fjár­­­hæð 510.000.000 evr­­­­­ur, hafi ekki greiðst til baka og séu Kaup­­­þingi banka hf. glötuð, en nú hefur verið lagt fram sam­komu­lag sem felur í sér að Deutsche Bank AG hefur skuld­bundið sig til að greiða 425.000.000 evrur af þeirri fjár­­­hæð hefur Hæst­i­­­réttur tekið ákvörðun um að nauð­­­syn­­­legt verði að saka­­­málið gegn ákærðu verði í fyrstu umferð að minnsta kosti flutt um tvö atriði, sem lúta að formi þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár