Einar Þorsteinsson hættir á RÚV

Einn aðal­stjórnandi Kastljóss mun láta af störfum hjá RÚV í dag. „Um leið og ég hlakka til nýrra starfa þá á ég eftir að sakna ykkar óskaplega og ég vona að ykkur gangi vel í barátt­unni,“ skrifar hann til starfs­manna RÚV.

Einar Þorsteinsson frétta­maður á RÚV og einn stjórn­enda Kastljóss hefur ákveðið að láta af störfum hjá RÚV en hann greindi frá ákvörðun sinni í skila­boðum til starfs­manna RÚV fyrr í dag.

„Ég hef ákveðið að þiggja starf sem mér bauðst fyrir skömmu. Þetta er erfið ákvörðun því frétta­stofan er mitt annað heimili og það er erfitt að kveðja ykkur vini mína. Ég get því miður ekki sagt ykkur strax frá því hvert ég er að fara en það skýrist fljótlega. En ég hætti sem sagt í dag. Um leið og ég hlakka til nýrra starfa þá á ég eftir að sakna ykkar óskaplega og ég vona að ykkur gangi vel í barátt­unni,“ segir hann í skila­boðunum.

Baldvin Þór nýr ritstjóri Kastljóss

Nokkrar vendingar hafa átt sér stað í starfs­mannamálum á RÚV að undan­förnu en Kjarninn greindi frá því á Þorláks­messu að Bald­vin Þór Bergs­son myndi láta af störfum sem dag­skrár­stjóri Rásar tvö og núm­iðla RÚV um ára­mót og taka við starfi rit­stjóra nýs Kast­ljóss. Sam­hliða myndi hann áfram leiða verk­efnið „nýr ruv.is“ og móta til­lögur að fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lagi vefrit­stjórnar rík­is­mið­ils­ins.

Í byrjun nóvember greindi Rakel Þor­bergs­dóttir frá því að hún hefði ákveðið að láta af störfum sem frétta­stjóri RÚV. Rakel hafði gegnt starf­inu frá því í apríl 2014 og í heild starfað í 22 ár á frétta­stofum RÚV.

Í tilkynningu RÚV um málið sagði að starf frétta­stjóra yrði aug­lýst laust til umsóknar fljót­lega á nýju ári. Heiðar Örn Sig­ur­finns­son vara­f­rétta­stjóri myndi gegna starfi frétta­stjóra frá því að Rakel léti af störfum um ára­mótin og þar til nýr frétta­stjóri hefði verið ráð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár