Baldvin ritstjóri nýs Kastljóss – Hættir sem dagskrárstjóri Rásar 2

Nýtt Kastljós mun hefja göngu sína á RÚV í byrjun árs 2022.

Baldvin Þór Bergsson
Baldvin Þór Bergsson Mynd: RÚV/Skjáskot

Baldvin Þór Bergsson mun láta af störfum sem dagskrár­stjóri Rásar tvö og númiðla RÚV um áramót og taka við starfi ritstjóra nýs Kastljóss, samkvæmt heimildum Kjarnans. Samhliða mun hann áfram leiða verkefnið „nýr ruv.is“ og móta tillögur að framtíðar­fyrir­komulagi vefrit­stjórnar ríkis­miðilsins.

Nýtt Kastljós mun hefja göngu sína í byrjun árs 2022.

Baldvin sneri aftur á árið 2015 þegar hann gekk til liðs við Kastljós sem einn umsjónar­manna þáttarins og varð síðar annar ritstjóri hans. Hann hafði áður starfað um ára­bil sem frétta­stjóri og vakstjóri á frétta­stofu RÚV en búið erlendis árin á undan.

Í byrjun desember 2017 var tilkynnt að Baldvin hefði verið ráðinn dagskrár­stjóri Rásar 2 og númiðla RÚV. Samhliða tók hann sæti í dagskrár­stjórn og framkvæmda­ráði RÚV.

Baldvin var á meðal þeirra sem sóttust eftir því að verða útvarps­stjóri RÚV þegar sú staða var síðast auglýst, síðla árs 2019. Stefán Eiríksson var þá ráðinn í starfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár