Álútflutningur hefur aldrei verið verðmætari

Nýtt met var slegið í útflutnings­verðmætum áls og álafurða í síðasta mánuði, en þau hafa ekki verið meiri frá upphafi mælinga.

Verðmæti útflutnings á áli og álafurðum nam alls tæpum 34 milljörðum króna desember, samkvæmt nýjum tölum um útflutnings­verðmæti frá Hagstofunni. Þetta eru hæstu fjár­hæðirnar sem fengist hafa fyrir útflutningi á vörunni frá byrjun mælinga Hagstofunnar, þrátt fyrir að litlar breytingar hafi verið á fram­leiðslu hennar á síðustu tíu árum.

37 prósenta aukning á milli ára

Líkt og sést á mynd hér að neðan hefur mánaðarlegt útflutnings­verðmæti áls hækkað stöðugt frá haust­mánuðum 2020, eftir að hafa haldist nokkuð stöðugt í um 18 milljörðum króna frá árinu 2009. Á síðustu þremur mánuðum hafa meðal­verðmætin þó verið 64 prósentum meiri, eða í kringum 30 milljarða króna.

Ef litið er til síðasta árs í heild sinni voru útflutnings­verðmætin þar 37 prósentum meiri þá en á árinu 2020. Þetta er langmesta aukningin í útflutnings­verðmætum á milli ára frá árinu 2010.

Þessa aukningu má rekja til mikilla hækkana á heims­markaðs­verði áls. Eitt tonn af málminum kostar nú tæpa þrjú þúsund Bandaríkja­dali, en til saman­burðar hefur tonnið venjulega kostað í kringum tvö þúsund Bandaríkja­dali á síðustu árum.

Þrátt fyrir þessar verð­hækkanir hefur magn álút­flutnings ekki aukist á síðustu mánuðum. Þar sem slík fram­leiðsla er treg­breytanleg hérlendis hefur útflutningurinn verið mjög stöðugur síðustu tíu árin, þar sem að meðaltali eru flutt út um 70 þúsund tonn af áli og álafurðum í hverjum mánuði.

Seðlabankinn spáir meiri vexti

Í síðasta hefti Peninga­mála spáði Seðla­bankinn að útflutnings­verð áls myndi hækka um 43 prósent. Ólíklegt er þó að sú spá hafi gengið upp, þar sem aukningin í útflutnings­verðmætum á milli ára var töluvert minni og fram­leiðslan stöðug.

Bankinn spáði því einnig að álverð myndi halda áfram að hækka á þessu ári og bjóst við því að hækkunin myndi nema 16 prósentum. Gangi sú spá upp má gera ráð fyrir því að útflutnings­tekjur af áli og álafurðum aukist um 40 milljarða króna í ár og auka hagvöxt um 1,3 prósentu­stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár