Kærunefnd útlendingamála kvað upp 138 úrskurði á átta mánuðum

„Nefndin hefur haldið sjó og vel það,“ segir formaður kæru­nefndarinnar í samtali við Stundina. Málum fjölgaði skyndi­lega í lok september og hefur nefndin fengið þrjá nýja starfs­menn til liðs við sig.

Stundin fjallaði um mál hælisleitandans Felix í apríl. Hér er hann ásamt félögum sínum, en mynd tengist frétt ekki beint.
Stundin fjall­aði um mál hæl­is­leit­and­ans Felix í apríl. Hér er hann ásamt félögum sínum, en mynd teng­ist frétt ekki beint.

Frá því að kærunefnd útlendinga­mála tók til starfa í lok janúar hefur hún kveðið upp 138 úrskurði og lokið 15 málum með öðrum hætti. Á tíma­bilinu 1. mars til 24. september fækkaði málum í vinnslu um 34 prósent og meðal­aldur slíkra mála lækkaði um 42 prósent. Alls fóru 153 mál farið af borði nefndarinnar. 

Þetta eru upplýsingar sem Stundin fékk frá kæru­nefndinni í seinni hluta september­mánaðar. Eins og fram kom í frétt þann 9. september síðastliðinn er fjallað um reynsluna af hinni nýstofnuðu kærunefnd í greinar­gerð fjár­laga­frum­varpsins fyrir árið 2016. 

Greint er frá því að framlög til hælismála verði aukin um 175 milljónir króna, meðal annars vegna „vandkvæða kæru­nefndar í útlendinga­málum við að uppfylla áform um þann málshraða sem að var stefnt með stofnun hennar“. Þá er vísað til þess að komið hafi upp „tíma­bundnir erfið­leikar í máls­meðferð hælis­leitenda sem veldur því að biðtími hælis­leitenda eftir niður­stöðu hefur lengst á ný“. 

Hjörtur Bragi Sverrisson
Hjörtur Bragi Sverrisson er formaður kæru­nefndar útlendinga­mála. Áður starfaði hann sem framkvæmda­stjóri mann­réttinda­deildar ÖSE í Kosovo

Lægri meðalaldur mála

Samkvæmt tölfræði­legum upplýsingum sem Stundin fékk frá nefndinni hefur hins vegar talsverður árangur náðst frá því að nefndin tók til starfa. 112 mál voru á borði nefndarinnar þegar hún gat byrjað að úrskurða, en flest þeirra höfðu verið framsend frá innan­ríkis­ráðuneytinu. Þann 24. september voru 74 mál í vinnslu hjá nefndinni. Um síðustu áramót var meðal­aldur mála í vinnslu 296 dagar. Þann 24. september var meðal­aldur mála 171 dagur. 

„Af þessum tölum má sjá að nefndin hefur haldið sjó og vel það. Það þakka ég fyrst og fremst harðduglegum samverka­mönnum mínum og utan­aðkomandi nefndar­mönnum sem hafa lagt á sig miklu meiri vinnu en gefið var til kynna þegar þeir voru skipaðir,“ segir Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður nefndarinnar, í samtali við Stundina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár