Hvorki atkvæðagreiðsla um ESB né uppboðsleið í stjórnarsáttmálanum

Viðreisn og Björt framtíð náðu ekki fram tveimur af helstu stefnu­málum sínum í viðræðum við Sjálfstæðis­flokkinn en mynda samt ríkis­stjórn undir forsæti Bjarna Benedikts­sonar.

Stefnu­yfirlýsing ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar felur hvorki í sér fyrirheit um að boðað verði til þjóðar­atkvæða­greiðslu um framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið né að látið verði reyna á uppboðs­leið í sjávar­útvegi. Hvort tveggja var á meðal helstu stefnu­mála Bjartrar framtíðar og Viðreisnar í þing­kosningunum sem fram fóru þann 29. október síðastliðinn. 

Í stjórnar­sáttmálanum er hnykkt á því að við ráðstöfun nýtingarréttinda á auðlindum í opinberri eigu skuli ekki „gengið á eignar- og nýtingarrétt einstaklinga nema brýnir almannahags­munir krefjist þess“. Fram kemur að núgildandi fiskveiðistjórnarkerfi hafi skilað miklum þjóðhagslegum ávinningi og ríkisstjórnin telji kosti aflamarks­kerfisins mikilvæga fyrir áfram­haldandi verðmætasköpun í sjávarútvegi.

„Kannaðir verða kostir þess að í stað ótímabundinnar úthlutunar verði byggt á langtímasamningum og samhliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem markaðs­tengingu, sérstöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna. Gæta þarf að langtímarekstraröryggi í greininni og stöðugleika í byggðum,“ segir í kafla stefnu­yfir­lýsingarinnar um sjávarútvegsmál.

Í kaflanum um Evrópumál er tekið fram að ef þingmál um þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið verði lagt á Alþingi séu stjórnarflokkarnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjörtímabilsins.

„Ríkisstjórnin mun byggja samstarf við Evrópusambandið á samningnum um Evrópska efnahags­svæðið. Fylgjast þarf vel með þróun Evrópusambandsins á næstu árum og gæta í hvívetna hagsmuna Íslands í samræmi við aðstæður hverju sinni. Sérstakan gaum þarf að gefa mögulegri úrsögn Bretlands úr sambandinu,“ segir í stjórnar­sáttmálanum. „Alþingi fylgist grannt með þróun mála í Evrópu og efli tengsl við systur­stofnanir í öðrum Evrópuríkjum. Komi fram þingmál um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildar­viðræður við Evrópusambandið eru stjórnarflokkarnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjörtímabilsins. Stjórnarflokkarnir kunna að hafa ólíka afstöðu til málsins og virða það hver við annan.“

Hér má lesa stjórnar­sáttmálann í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár