Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins vill kynningu á sóttvarnaaðgerðum í velferðarnefnd

Allir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins nema ráðherrarnir fimm og forseti Alþingis hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér að heilbrigðis­ráðherra skuli kynna breyttar sóttvarna­ráðstafanir fyrir velferðar­nefnd áður en þær eru kynntar almenningi.

Bryndís Haraldsdóttur hér fyrir miðju ásamt þeim Vilhjálmi Árnasyni og Ásmundi Friðrikssyni. Öll eru þau á meðal flutningsmanna frumvarpsins.
Bryndís Har­alds­dóttur hér fyrir miðju ásamt þeim Vil­hjálmi Árnasyni og Ásmundi Frið­riks­syni. Öll eru þau á meðal flutn­ings­manna frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ellefu þingmenn Sjálfstæðis­flokksins sem ekki eru ráðherrar hafa í sameiningu lagt fram frumvarp til breytinga á sóttvarna­lögum, sem felur í sér að heilbrigðis­ráðherra þurfi að kynna ákvörðun um breyttar sóttvarna­ráðstafanir í velferðar­nefnd Alþingis áður en þær taki gildi, eða eins fljótt og hægt sé.

Fyrsti flutnings­maður frum­varpsins er Bryndís Haralds­dóttir, en í greinar­gerð með frum­varpinu segir að það verði að teljast „eðlilegt og í samræmi við lýðræðisleg sjónarmið að ákvarðanir um setningu sóttvarna­reglna séu kynntar Alþingi á einhvern hátt“ og mikilvægt sé að „framkvæmdar­valdinu sé veitt aðhald við jafn veiga­miklar ákvarðanir og sóttvarna­ráðstafanir“ sem oft takmarki stjórnar­skrár­varin réttindi borg­aranna.

Þessar breytingar sem þing­flokkur Sjálfstæðis­flokksins leggur til fela ekki í sér neina beina aðkomu Alþingis að ákvarðana­töku um sóttvarna­ráðstafanir, en þær myndu sem áður segir skylda Willum Þór Þórssyni heilbrigðis­ráðherra að kynna þær fyrir velferðar­nefnd áður en þær eru kynntar öllum almenningi.

Í greinar­gerð með frum­varpinu segir að í nágranna­löndum Íslands hafi þjóðþing almennt aðkomu að ákvörðunum um sóttvarna­ráðstafanir, „t.a.m. í Noregi þar sem 1/3 hluti þingmanna getur fellt reglugerðar­ákvæði um sóttvarna­ráðstafanir og í Danmörku þar sem sóttvarna­ráðstafanir þurfa að vera samþykktar af meiri hluta sérstakrar þing­nefndar.“

Svo segir frá því að í Bretlandi sé málum þannig háttað að upplýsinga­gjöf um sóttvarna­ráðstafanir samkvæmt kórónu­veirulögum landsins sé tíð og ítarleg, auk þess sem lögin eru tíma­bundin og hafi því þingið bæði tilefni og tækifæri til að endurmeta þau og framkvæmd þeirra reglulega.

Þrátt fyrir að laga­breytingarnar sem sjálfstæðis­menn leggja til geri ekki kröfu um að velferðar­nefnd hafi nokkuð ákvörðunar­vald um þær sóttvarna­ráðstafanir sem lagðar eru til af ráðherra og sóttvarna­lækni yrði umrædd breyting „engu að síður til hagsbóta þar sem ráðherra yrði gert skylt að kynna sóttvarna­ráðstafanir fyrir velferðar­nefnd og færa þar knýjandi rök fyrir nauðsyn þeirra,“ samkvæmt því sem segir í greinar­gerð með frumvarpi þing­flokksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár